Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 8
 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Reginn A3 ehf. Félagið á 7 fasteignir sem eru að meginhluta leigðar undir smásölurekstur á höfuðborgarsvæðinu. Félagið er með 24 leigusamninga við 19 leigutaka. Heildarfjöldi útleigðra fermetra er um 7.800. Söluferlið hefst formlega með þessari auglýsingu og er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 350 milljónir króna. Unnt er að nálgast allar frekari upplýsingar um söluferlið, félagið og önnur gögn, þar með talið trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað fyrir fjárfesta, á vefsíðu Landsbankans, landsbankinn.is, frá klukkan 15.00 þann 23. nóvember 2010. Frestur til að skila inn bindandi tilboðum rennur út klukkan 16.00 mánudaginn 20. desember 2010. Reginn ehf. er sértækt dótturfyrirtæki Landsbankans sem fer með eignarhald bankans á fasteignum eða hlutafé fasteignafélaga sem líklegt er að bankinn eigi um einhvern tíma. Stofnun Regins og starfsemi félagsins er einn þáttur í þeim víðtæku ráðstöfunum sem Landsbankinn beitir við fjárhagslega endurskipulagningu atvinnufyrirtækja. EN N E M M / S ÍA / N M 4 4 4 5 8 N B I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . Fasteignafélagið Reginn A3 ehf. til sölu Farsíminn hluti af Símavist FYRIRTÆKI Í Símavist eru farsímar hluti af IP símkerfinu og er greitt fast mánaðar gjald á hvern notanda. Við erum sérfræðingar í rekstri símkerfa Öll símtö l innan fyr irtækis á 0 kr. Það er 800 4000 • siminn.is VIÐSKIPTI Heiðar Már Guðjónsson og fjárfestar sem honum tengjast, einstaklingar og sjóðir, hafa hætt við kaup á 33 prósenta hlut í trygg- ingafélaginu Sjóvá. Með kaupun- um hefði hópurinn getað fengið forkaupsrétt á helmingi félagsins. Fyrirtækjasvið Íslandsbanka hefur séð um söluna á Sjóvá í tæpt ár, eða síðan í janúar á þessu ári. Samið var við fjárfestahópinn um mitt ár um verð og afhendingu hlutabréfa. Eignasafn Íslands- banka hefur farið með 73 prósenta hlut í trygginga- félaginu síðan fyrirtækinu var bjargað frá gjaldþroti í apríl í fyrra þegar ríkið og fleiri lögðu 11,6 milljarða inn í Sjóvá. Skila- nefnd Glitnis, sem á sautján pró- sent í félaginu, studdi söluferlið í byrjun árs en taldi verðið of lágt miðað við núverandi vaxtastig. Fulltrúar Glitnis höfðu ekki setið við samningaborðið frá í ágúst. Morgunblaðið sagði í gær ástæð- una fyrir því að fjárfestahópurinn hætti við kaupin þá að Már Guð- mundsson seðlabankastjóri hefði dregið að innsigla kaupsamning- inn með undirskrift. Heiðar úti- lokaði í október ekki að skrif DV um hann skýrðu tafirnar. Blaðið fjallaði ítarlega um aðkomu hans að íslensku efnahagslífi á árunum fyrir hrun og sagði hann hafa fjár- fest gegn krónunni ásamt banda- rískum vogunarsjóðum og átt hlut í falli hennar. Heiðar Már vildi ekki tjá sig um söluferli Sjóvár þegar Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum hans í gær. Í tilkynningu frá fjárfestahópnum segir að Seðlabankanum hafi verið veittur frestur til 22. október síð- astliðins til að staðfesta tilboðið, ellegar teldi hópurinn söluferlinu lokið. Ekki var skrifað undir samn- inginn innan tímamarka og því var hætt við kaupin. Í tilkynningu sem Seðlabank- inn sendi frá sér í gærkvöldi segir að bankinn hafi ekki getað tekið afstöðu til sölunnar fyrir þann tíma sem kaupendur settu. Lög- maður kaupendahópsins og einn meðlima hans hafi verið upplýst- ir um þessa niðurstöðu og ástæðu hennar á fundi í Seðlabankan- um. Seðlabankinn getur að öðru leyti ekki tjáð sig opinberlega um ástæðu þess að ekki var hægt að veita svar fyrir áðurnefndan tíma- frest. Aðrir viðmælendur gátu lítið sagt. Einn hluthafa taldi líklegt að hætt yrði við söluna í bili. Fjármálaeftirlitið, FME, vann enn að umsókn um hæfi fjárfesta- hópsins þegar eftirlitinu barst ósk um það á föstudag í síðustu viku að fresta afgreiðslu umsóknarinnar. FME vekur athygli á því að sam- kvæmt lögum um vátrygginga- starfsemi þurfi virkir eigendur tryggingafélaga að uppfylla ýmis skilyrði. Þar á meðal að þeir ráði yfir fjárhagslegum styrk og að orð- spor þeirra sé ekki með þeim hætti að það rýri traust félagsins. Ekki fengust svör frá FME um það í gær hvort fjárfestahópurinn hefði upp- fyllt skilyrðin eður ei, en aðeins að hætt hefði verið við könnun á hæfi þeirra. jonab@frettabladid.is Sjóvá ekki selt í bráð Salan á tryggingafélaginu Sjóvá er runnin út í sandinn í bili. Kaupendur segja eigendur trega til að selja. Skilanefnd Glitnis taldi verðið of lágt og hefur ekki setið við samningaborðið frá í sumar. Líklegt er að salan á Sjóvá verði sett í salt. HÖFUÐSTÖÐVAR SJÓVÁR Eigendur Sjóvár voru ekki ánægðir með söluverð fyrirtækisins. Skilanefnd Glitnis taldi það of lágt. Viðmælendur Fréttablaðisins telja að hætt verði alfarið við söluna í bili. HEIÐAR MÁR GUÐJÓNSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.