Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2010 13 islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 9220 Nú getur þú sparað í áskrift og við vöktum sparnaðinn Byrjaðu að spara á islandsbanki.is HEILBRIGÐISMÁL Hátt í 400 ofbeldis- tilvik eru skráð á hverju ári á geð- deild Landspítalans. Á það við um tilvik sem eru flokkuð sem munn- legt eða líkamlegt ofbeldi og eiga sér stað á geðheilbrigðissviðinu öllu. Flest atvikin snúa að starfs- fólki sjúkrahússins og er munnlegt ofbeldi, oftast hótanir, mun algeng- ara en líkamlegt. Jón Snorrason, deildarstjóri á Kleppi, segir rann- sóknir á viðfangsefninu komnar langt á veg erlendis þar sem fjall- að hefur verið um málið í fjölda ára. „Það er staðreynd að það er víða ofbeldi á heilbrigðisstofnun- um,“ segir Jón. „En þetta er vissu- lega vandmeð farið viðfangsefni vegna þess að maður verður að ná að setja sig í spor þeirra sem sýna þessa hegðun og skilja hvað liggur á bak við.“ Jón segir starfsfólk á geðdeild- um hér á landi fá bæði þjálfun og fræðslu um það hvernig bregðast eigi við ofbeldi og nauðsynlegt sé að viðhalda því reglulega. „Allar þær rannsóknir sem gerðar hafa verið stuðla að því að við reynum að skilja þetta fyrir- bæri betur. Af hverju það gerist og hvernig við getum komið í veg fyrir þetta,“ segir hann. Jón segir að í sumum tilvik- um hefðu getað skapast alvarleg- ar afleiðingar ef ekki hefði verið tekið rétt á málunum. Hann segir þó að sem betur fer séu alvarleg atvik mjög fá. Tíðni ofbeldistilvika á heilbrigðisstofnunum er lang- hæst á geðdeildum, en hún hefur haldist stöðug milli ára. Á árunum 2006 til 2008 eru skráð á milli 350 til 400 tilvik á geðdeildum Land- spítalans. Sigmundur Sigfússon, for- stöðulæknir geðdeildar Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri (FSA), segir að sökum manneklu komi stundum til þess að lögregl- an sé kölluð út til aðstoðar þegar ofbeldis atvik komi upp, en þó sé slíkt sjaldgæft. Nauðungarvist- un sé mun fátíðari hér á landi en í hinum Norðurlandaríkjunum og eru flest ofbeldistilvikin á geðdeild FSA tengd slíkum vistunum. „Við fáum um 250 innlagnir á ári og þar af eru um 3 prósent nauð- ungarvistanir,“ segir Sigmundur. Á Norðurlöndunum sé hlutfallið mun hærra, eða rúmlega 30 pró- sent af öllum innlögnum. Á geð- deild FSA hafa verið skráð fjögur ofbeldisatvik það sem af er ári. sunna@frettabladid.is 400 ofbeldismál komið upp Skráð ofbeldisatvik á geðdeild Landspítalans eru um 400 á ári. Flest tilvikin eru gagnvart starfsfólki og eru flokkuð sem munnlegt ofbeldi. Nauðungarvistun er tíu sinnum algengari annars staðar á Norðurlöndunum. KLEPPSSPÍTALI Ofbeldi á heilbrigðisstofnunum er algengast á geðdeildum og eru skráð á milli 350 og 400 tilvik á ári á geðdeildum Landspítalans. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI SIGMUNDUR SIGFÚSSON JÓN SNORRASON PENINGARNIR TALDIR Greining Íslands- banka telur ekki líkur á launaskriði á næstunni. HAGTÖLUR Vísitala launa hækkaði um 0,3 prósent í október. Hún hefur hækkað um sex prósent síð- astliðna tólf mánuði, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Hækkunin skýrist af árstíða- bundnum hækkunum á álags- og bónusgreiðslum. Í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka segir að sex prósenta hækkun sé meiri en á sama tíma í fyrra þótt hún sé minni en þegar vinnumarkaður- inn einkenndist af mikilli þenslu og launaskriði. Greiningin segir að þótt kjara- samningar margra séu lausir nú um stundir bendi ekki margt til launaþrýstings. Þvert á móti megi búast við verra atvinnu- ástandi. - jab Vísitala launa upp í október: Ekki búist við launaskriði

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.