Fréttablaðið - 23.11.2010, Síða 16
16 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
HALLDÓR
Samvinna
Hálsaskógarstemning ríkir í Kópavogi.
Þar ætla meiri- og minnihlutinn að
vinna saman að gerð fjárhagsáætlunar.
Að baki býr hugmyndin um að þegar
hart sé í ári sé heilladrýgst að allir
snúi bökum saman. Bæjarstjórnar-
flokkur Sjálfstæðisflokksins gengur
þó laskaður til leiks. Þrír af fjórum
ætla að vera með en Gunnar I.
Birgisson ekki. Hann ætlar að
leggja fram sína eigin tillögu
að fjárhags áætlun. Gunnar
var foringi flokksins í
bænum í tuttugu ár en
var í þriðja sæti í síðustu
kosningum eftir laka
útkomu í prófkjöri.
Hefðbundið
Þetta hefur vakið athygli en í heita
pottinum í Kópavogslauginni er rætt
um að þetta sé ekki nýtt. Gunnar
hafi allan sinn bæjarstjórnarferil lagt
fram eigin fjárhagsáætlanir. Aðrir í
meirihlutanum hafi svo stutt þær.
Nýbreytni hefði verið á ferðinni ef
Gunnar hefði ákveðið að leggja ekki
fram eigin fjárhagsáætlun.
Á fund
Ögmundur Jónasson dóms-
málaráðherra þarf að biðja
forsetann um að stöðva
réttarhöldin yfir níumenn-
ingunum. Flokksráð
VG hefur samþykkt
ályktun þar um. Ekki verður annað
séð en að dómsmálaráðherrann
verði að fylgja henni. Ef hann
virðir áskorunina að vettugi vakna
spurningar um hvort ráðherrar VG
geti almennt valið og hafnað hverju
þeir hlíta af ákvörðunum þessarar
valdastofnunar flokksins. Framhaldið
verður spennandi. Hitt er svo ljóst
að grundvölllur ályktunarinnar
sýnir að endurskoðun stjórnar-
skrárinnar er tímabær. Í henni
segir: „Forsetinn getur ákveð-
ið, að saksókn fyrir afbrot
skuli niður falla, ef ríkar
ástæður eru til.“ Það er
sérkennilega mikið vald.
bjorn@frettabladid.is
Leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Lissabon um helgina verður lengi
minnst, ekki bara fyrir nýja grunnstefnu
heldur einnig þá sögulegu ákvörðun Rússa
að taka höndum saman við bandalagið um
margvíslegt samstarf að sameiginlegum
hagsmunum. Medvedev, forseti Rússlands,
vísaði sérstaklega til nýju grunnstefnunnar,
þar sem segir skýrt, að Atlantshafsbanda-
lagið sé ekki ógn við Rússland.
Praktísk nálgun hans birtist vel í umræð-
um, þar sem hann sagði að torfærur yrðu
á leiðinni, og einstakar þjóðir kynnu að
móðgast hver við aðra enda ekki hægt að
fjarlægja söguna. Þjóðirnar ættu þrátt
fyrir það að halda saman á leiðarenda nýs
og árangursríks samstarfs. Í umræðum
leiðtoganna kom skýrt fram það viðhorf
margra þjóða, að Rússar og bandalagsþjóð-
irnar eigi í höggi við sameiginlegar ógnir.
Þar voru efst á baugi hermdarverk, sem
í dag eru mesta ógnun við stöðugleika og
frið í okkar heimshluta, sjórán, sem nú fær-
ast í vöxt, netógnir sem lamað geta fjar-
skipti og viðbúnaðarkerfi þjóða, auk ham-
fara af náttúrulegum völdum, eða manna.
Sarkozy, Frakklandsforseti, kvað skýrt að
orði, og sagði að mesta sameiginlega ógnin
við Rússland og þjóðir Atlantshafsbanda-
lagsins stafaði af framferði ofbeldisfullra
múslímskra öfgasamtaka.
Eitt af því sem Rússar vilja eiga sam-
starf um við bandalagsþjóðirnar að upp-
fylltum skilyrðum er gerbreytt skotflauga-
varnakerfi, sem á að verjast hugsanlegri
ógn frá þeim 27 þjóðum, sem taldar eru
búa yfir skotflaugum sem gætu á átaka-
tímum ógnað íbúum Vesturlanda, og Rúss-
um. Nokkrir leiðtoganna hikuðu ekki við að
nefna Íran og Sýrland sérstaklega. Upp-
bygging og staðsetning kerfisins verður
samkvæmt sameiginlegri ákvörðun hagað
með það í huga. Þetta kerfi er gerólíkt því
sem Bush fyrrverandi Bandaríkjaforseti
lagði upp með, sem sést best á því að í stað
þess að Rússar líti á það sem ógn við sig,
vilji þeir vera með. Þjóðir eins og Norð-
menn, Þjóðverjar, Lúxemborgarar, auk
Íslendinga sem hafa verið tregir í stuðn-
ingi við skotflaugavarnir, telja kerfið draga
úr vægi kjarnavopna og geta því ýtt undir
hraðari afvopnun á því sviði. Einstakar
bandalagsþjóðir halda enn fram gildi
kjarnavopnafælingar en engum dylst þó
að hin nýja grunnstefna markar þáttaskil
að því leyti að þar er sagt afdráttarlaust að
stefnt skuli að heimi án kjarnavopna. Aldrei
hefur slík yfirlýsing verið birt jafn afdrátt-
arlaust í stefnu Atlantshafsbandalagsins.
Annað nýmæli felst í sterkri áherslu á
mannréttindi og alþjóðalög hvað varðar
starfsemi bandalagsins.
Heimssögulegur fundur í Lissabon
NATO
Össur Skarp-
héðinsson
utanríkisráðherra
D
eila um grundvallaratriði er komin upp í borgarstjórn
Reykjavíkur. Þar vill meirihluti Samfylkingarinnar og
Bezta flokksins hækka fjárhagsaðstoð til þeirra sem
ekki hafa atvinnuleysisbætur. Með því verður hagstæð-
ara að þiggja aðstoð en að vera á atvinnuleysisbótum og
munurinn á ráðstöfunartekjum þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð og
fólks sem fær lægstu laun á vinnumarkaði þurrkast nánast út.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa lagzt gegn þessu og
gert að tillögu sinni að hluta af fénu sem á að verja til að hækka
fjárhags aðstoðina, 350 milljónum, verði fremur varið í svokölluð
virkni úrræði, þ.e. verkefni sem stuðla að því að koma fólki aftur
út á vinnumarkaðinn. Fulltrúar
Vinstri grænna vilja hins vegar
ganga enn lengra en meirihlutinn
í að hækka fjárhagsaðstoðina.
Hér er augljóslega hætta á að
í smíðum sé svokölluð velferðar-
gildra, en það hefur það verið
kallað þegar samspil bóta- og
skattkerfis í hinum þróuðu vel-
ferðarríkjum Vesturlanda hefur í för með sér að í raun er hagstæð-
ara að vera á bótum en að vinna fyrir lágmarkslaun, að minnsta
kosti ef tekinn er með í reikninginn ýmis kostnaður sem fylgir því
að vera í starfi, eins og að koma sér í og úr vinnu. Hættan er að
sjálfsögðu sú að til lengri tíma litið þyki mörgum meira freistandi að
geta varið tíma sínum eins og þeir kjósa á bótum frá samfélaginu en
að þiggja starf sem eykur ráðstöfunartekjurnar lítið sem ekkert.
Í mörgum nágrannalöndum okkar hafa þannig orðið til þjóðfélags-
hópar, þar sem það þykir sjálfsagt, jafnvel kynslóð fram af kynslóð,
að vinna ekki heldur þiggja bætur. Þessir hópar hafa verið rígfastir
í velferðargildrunni, í raun hnepptir í ævilanga fátækt af því að
hvatann til að rífa sig upp úr henni skortir. Aðgerðir til að rjúfa
vítahringinn hafa verið sársaukafullar og fela oft í sér að lækka
bæturnar en setja þess í stað meiri peninga í verkefni sem stuðla
að því að fólk afli sér þekkingar og þjálfunar og verði gjaldgengt
á vinnumarkaði.
Það skal ekki dregið í efa að flestir sem þiggja lágmarkslaun eiga
í erfiðleikum með að framfleyta sér og það sama á að sjálfsögðu við
um þá sem þiggja fjárhagsaðstoð eða atvinnuleysisbætur. Það á að
vera markmiðið að allir hafi það betra. En ef það er orðið hagstæð-
ara að vera á framfæri samfélagsins en að vinna er búið að snúa
á haus þeim gildum sem lengi hafa legið til grundvallar velferðar-
aðstoð á Íslandi.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur, segir
í Fréttablaðinu í gær að ákvörðun meirihlutans verði vonandi til
þess að hækka lægstu laun og atvinnuleysisbætur. Það er óskhyggja.
Atvinnuleysisbætur verða ekki hækkaðar nema þá með því að hækka
skatta á þá sem vinna enn frekar. Og lægstu launin hækka ekki svo
máli skipti nema það takist að skapa meiri verðmæti í fyrirtækjun-
um, sem reynist mörgum örðugt um þessar mundir.
Það ætti samt að vera keppikefli stjórnmálamanna, hvar í flokki
sem þeir standa, að örva verðmætasköpun í atvinnulífinu því að
aðeins þannig hafa fyrirtækin efni á að greiða betri laun og ríki og
sveitarfélög að hjálpa þeim betur sem ekki eru á vinnumarkaði.
Fjárhagsaðstoð dregur úr hvata til vinnu.
Velferðargildra
í smíðum
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871