Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2010 19
Þann 4. nóvember sl. komu út frímerki , þar á meðal eitt með
málverki Sigurlaugar Jónasdóttur
frá Öxney af Pétri Einarssyni frá
Arney. Pétur var sannkallaður
brautryðjandi í jafnréttismálum
þar sem hann nefndi bæði kynin
kall minn. Hann var eini maðurinn
sem um er vitað sem lagði lóðir á
Breiðafirði og sofnaði síðan í bátn-
um. Pétur sofandi í bátnum með afla
sinn er myndefnið. Þeir sem sigla
Breiðafjörð vita að þar eru margar
hættur, boðar og voðasker sem hafa
grandað fólki frá því að land byggð-
ist. Sigurlaug stóðst ekki mátið og
hefur málað fjölmargar myndir af
Pétri þar sem botninn á stígvélun-
um er misstór. Allt eru þetta dásam-
legar myndir með mikilli dýpt, feg-
urð og virðingu fyrir manninum
sem verður hluti náttúrunnar .
Pétur dó á
síðari hluta
20. aldar og
á fyrri hluta
aldarinnar
v a r e k k i
lensk a að
hrósa konum
eða láta þær
gjalda sann-
mælis fyrir störfin. Pétur var ákaf-
ur talsmaður kvenna og hélt mjög
á lofti dugnaði breiðfirsku kvenn-
anna sem stunduðu sjó og tóku jafn-
an þátt í karlastörfum. Einkum var
hann hrifinn af Júlíönu Silfá hálf-
systur sinni sem var hreiður drútur
föður síns , þ.e.a.s. hún var ekki
hjónabandsbarn. Þessi frábæra
kona varð rúmlega hundrað ára
og bjó í Langey. Þegar karlmenn
sögðu afrekssögur af lúðu veiðum
eða erfiðum siglingum, kunni
Pétur ævinlega betri og kröftugri
sögu af Júllu systur. Pétur kvæntist
ekki en mikill og sterkur ættbogi er
út af Júlíönu í Langey.
Sigurlaug Jónasdóttir, listmál-
ari, fæddist 1913 í Öxney á Breiða-
firði. Hún missti móður sína 14 ára
gömul og varð að taka við heimili
með 12 börnum. Það þýðir víst lítið
að segja nútímafólki þetta. Enda
kvartaði hún oft yfir því hvað við-
mælendur hennar botnuðu ekkert í
heimi verka hennar, þar sem úir og
grúir af börnum við vinnu og alls
staðar er Elín móðir hennar ófrísk.
Hún braust til mennta og dvaldist
öll stríðsárin í Noregi þar sem hún
menntaðist sem kennari og stótti
teiknitíma hjá virtum skóla.
Veraldlegur auður þyngdi ekki
Öxneyingum en miklar gáfur og
listfengi einkennir þetta fólk sem
dreifst hefur um heiminn. Á mynd-
inni rammar báturinn efnið eins
og á fornum helgimyndum, sofandi
maðurinn, ómælisvíðátta hafsins,
aflanum raðað í skutinn, allt eins og
hún mundi þetta! Nú fer frímerkið
hennar Sigurlaugar með fegurð
Breiðafjarðar og kappanum Pétri
Einarssyni frá Arney um heiminn,
sannarleg breiðfirsk perla.
Breiðfirsk
perla
Frímerki
Erna
Arngrímsdóttir
sagnfræðingur
Sjálfbær bankastarfsemi
Hugtakið sjálfbær mun fyrst hafa fengið skýra merkingu í
umfjöllun Gro Harlem Brundtland
og þá sem hverjar þær athafnir
sem þjóna í nútíð án þess að spilla
möguleikum framtíðarinnar.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um hve bankastarfsemi undan-
farinna ára hefur verið langt frá
því að vera sjálfbær.
Nýlega fengu þrír norrænir
bankar umhverfisverðlaun Norður-
landa ráðs fyrir að byggja starf-
semi sína á að fjármagna þjóðfélag
framtíðarinnar, sem sýnir viðhorf
ráðsins til sjálfbærrar bankastarf-
semi.
Vaxandi áhugi virðist fyrir slíkri
bankastarfsemi a.m.k. á Vestur-
löndum sem skýrist vætanlega af
bankahruni undanfarinna ára og
vaxandi áhyggjum af að við séum
með athöfnum okkar að spilla
möguleikum komandi kynslóða á
of mörgum sviðum.
Hugleiðum hvernig sjálfbær
bankastarfsemi gæti litið út í
íslensku ljósi:
Upphaflegur tilgangur banka-
starfsemi var að taka við lausu fjár-
magni og miðla því til þeirra sem
þurfa fjármagn til uppbyggingar og
framkvæmda með sem minnstum
kostnaði, sú þörf er síst minni nú.
Jafnframt þyrfti að hyggja að því
hvaða áhrif þær framkvæmdir sem
lánað er til muni hafa á umhverfi
okkar og framtíðarmöguleika. Til
að tryggja jafnræði slíkrar lána-
starfsemi og þekkingu á viðfangs-
efnum virðist æskilegt að hún sé
staðbundin eða a.m.k. landshluta-
bundin.
Breið staðbundin þátttaka í
eignar haldi og stjórnum væri
væntan lega ávísun á aukna sjálf-
bærni og takmarkanir á arðgreiðsl-
um myndu virka á sama hátt.
Sú bankastarfsemi sem lýst er
hér að framan fellur vel að upphaf-
legum tilgangi sparisjóðanna og
gildandi lögum um sparisjóði.
Æskilegt virðist að starfandi
sparisjóðir og sparisjóðir framtíðar-
innar þróist í þessa átt, en það er
ekki sjálfgefið. Þar ráða ábyrgðar-
menn sparisjóðanna (stofnfjáreig-
endur) og stjórnendur miklu, en
ekki síður viðskiptavinir spari-
sjóðanna.
Fjármála-
markaður
Ari Teitsson,
stjórnarformaður
Sparisjóðs Þingeyinga
Ekki þarf að fara mörgum orðum um
hve bankastarfsemi undanfarinna ára
hefur verið langt frá því að vera sjálfbær.
Allt eru þetta
dásamlegar
myndir.
Gulls ígildi – Skyr.is vann gullverðlaun í sínum
flokkum í norrænni samkeppni mjólkurvara og
hlaut heiðursverðlaun þar að auki. Sjá nánar á ms.is.
Búum við á besta stað
blessa skyldum kúna
Íslendingar eiga það
sem aðra vantar núna
Öllum standa opnar dyr
andans kraft skal virkja
þá er best að borða skyr
búkinn til að styrkja