Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 32
24 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR BAKÞANKAR Þórunnar Elísabetar Bogadóttur Verkefnasjóður sjávarútvegsins, deild um sjávar rannsóknir á samkeppnis sviði, auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna. Sjóðurinn mun styrkja rannsóknir á sjávarlífverum sem nú eru nytjaðar eða sem mögulegt væri að nytja. Áhersla verður lögð á verkefni sem efla rannsókna- og þróunarstarf á lífríki sjávar umhverfis Ísland og styrkja til lengri tíma litið sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og samkeppnishæfni sjávarútvegs. Horft verður til grunnslóðarannsókna, vöktunar strandsvæða, þorskrannsókna og verkefna sem tengjast þróun aðferða við nýtingu á lífverum sjávar, svo sem líftækni sem og fleiri þátta sem kunna að falla að verkefnum og tilgangi sjóðsins. Við mat umsókna verður lögð áhersla á nýnæmi verkefnisins m.t.t. nýrrar þekkingar og/eða aukinna nýtingarmöguleika á lífríki sjávar. Veittir verða styrkir til stærri verkefna, allt að 8 m.kr. hver, og til smærri verkefna allt að 2 m.kr. hver. Styrkur nemur að hámarki 50% af áætluðum heildarkostnaði viðkomandi verkefnis. Styrkir eru veittir til eins árs í senn. Heimilt er að veita framhaldsstyrk á grundvelli nýrrar umsóknar, enda standist verkefnið kröfur um framvindu og gæði. Allir geta sótt um styrki, einstaklingar, fyrirtæki og rannsókna- og háskólastofnanir. Í stærri verkefnum er hvatt til samstarfs mismunandi aðila með þátttöku vísindamanna víða af landinu. Umsóknarfrestur er til 31. desember 2010 og skulu umsóknir sendar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúla götu 4, 150 Reykjavík. Umsóknir skulu einnig berast á rafrænu formi á netfangið: hulda@slr.stjr.is. Umsóknir sem berast eftir 31. desember 2010 verða ekki teknar gildar nema póststimpill sýni að umsóknin hafi verið póstlögð ekki síðar en þann dag. Þeir sem fengu styrk úr sjóðnum við síðustu úthlutun og hyggjast sækja um framhaldsstyrk skulu skila skýrslu um stöðu verkefnisins, ella koma viðkomandi umsóknir ekki til greina við úthlutun. Nánari upplýsingar um sjóðinn og leiðbeiningar um frá gang umsókna er að finna á heimasíðu sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytisins www.sjavarutvegsraduneyti.is Umsóknir um styrki úr Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Verkefnasjóði s j á v a r ú t v e g s i n s Ím yn d u n ar af l / S LR FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI HALLDÓR BALDURSSON Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad! ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. fyrstur, 6. tveir eins, 8. tunna, 9. fyrirboði, 11. ætíð, 12. skrælnuð trjágrein, 14. ísjaki á sjó, 16. í röð, 17. útsæði, 18. upphrópun, 20. til, 21. innyfla. LÓÐRÉTT 1. uss, 3. slá, 4. endurnefna, 5. mán- uður, 7. frami, 10. púka, 13. bókstafur, 15. fræ, 16. kk nafn, 19. frú. LAUSN Á ég að hringja niður í móttöku og biðja um annað handklæði? Það er ekkert gefins að taka svona á í ræktinni! Mér er illt um allan líkamann! Hm. Er þér illt... hérna? J... Einmitt... Nei, nei, nei! Haltu áfram að vild! Ég þoli það... Lúxus-spa í Sviss og löng helgi í Róm? Hvernig græj- aðirðu það? Með pynt- ingum! Ég get fengið hvað sem er! Þitt vandamál er að þú talar alltaf í staðinn fyrir að hlusta! Ég hef fylgst með hverjum ropa, brosi, hiksta og gráti sem þetta barn hefur gefið frá sér á kostnað áhugamála minna, starfsferils og félagslífs. Góð skipti! LÁRÉTT: 2. frum, 6. uu, 8. áma, 9. spá, 11. sí, 12. sprek, 14. hafís, 16. de, 17. fræ, 18. úff, 20. að, 21. iðra. LÓÐRÉTT: 1. suss, 3. rá, 4. umskíra, 5. maí, 7. upphefð, 10. ára, 13. eff, 15. sæði, 16. dúi, 19. fr. FÁTT í þessum heimi fer meira í taug- arnar á mér en vitlaus stafsetning og rangt málfar. Ég geri mér grein fyrir því að með því að játa þetta opna ég í fyrsta lagi fyrir það að fólk eins og ég muni grandskoða þennan pistil í leit að villum og í öðru lagi að þeim sem ekki falla í umræddan hóp finnist ég alveg hreint ótrúlega leiðinleg. ÉG get bara ekkert að þessu gert. Skiptin sem ég hef verið komin á fremsta hlunn með að senda tölvupóst á vefmiðla til þess að leiðrétta villur í fréttum eru óteljandi. Sem betur fer hef ég alltaf stoppað mig af. Þegar ég fæ tölvupóst frá háskólakenn- ara sem skrifar bandvitlaust get ég ekki annað en dæmt svolítið og það sama gildir um aðra. Nema náttúr lega þá sem eru les- eða skrifblindir, þá er ég samúðin uppmáluð. Sökum kurteisi eða kannski af ótta við að fá á mig málfarsfasista- stimpil leiðrétti ég samt yfir- leitt ekki. EINFALDAR stafsetningarvillur eru eitt, og að ruglast á i og y og –n og –nn getur nú komið fyrir alla. Boðskapurinn kemst alveg til skila. Það er þegar fólk ruglar saman orðum eða orðatiltækjum sem lítill hluti af mér deyr – villu fyrir villu. Svo ekki sé minnst á kolrangar beyging- ar. FÓLK virðist samt algjörlega vera hætt að kippa sér upp við „mig hlakkar til að sjá þig“. Nú eða það allra, allra versta í mínum bókum: að nota orðið víst í stað- inn fyrir fyrst. Afsakið leiðindin, en þessi víxlun bara gengur engan veginn upp. Er fólk bara hætt að hlusta á sjálft sig tala? ÞÓ að ég sé haldin þessum leiðindasjúk- dómi, eða kannski einmitt vegna þess, er ég skíthrædd um að fá á mig gagnrýni af þessu tagi. Mér finnst ég eiga að kunna þetta. Fyrir nokkrum árum hrósaði pabbi minn mér fyrir pistil sem ég skrif- aði í þetta blað en bætti við í gríni að ég hefði samt skrifað „músirnar“ í stað „mýsnar“ einhvers staðar. Af hverju ég var að tala um mýs er mér löngu gleymt. En ég var miður mín lengi og vonaði heitt að enginn annar hefði tekið eftir þessari hörmung. (Og nú er bara að vona að enginn finni villu hér). Málfarsfasisminn

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.