Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 34
 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR Hönnunarsafn Íslands leitar nú að húsmunum eða myndum af húsmun- um eftir Gunnar Magnús- son innanhússarkitekt. Tilefnið er yfirlitssýn- ing á verkum Gunnars í Hönnunarsafninu í febrú- ar næstkomandi. Gunnar Magnússon er einn af frumkvöðlum í íslenskum húsgagna- og innanhússarkitektúr og einn afkastamesti íslenski húsgagna- hönnuðurinn frá sjöunda áratugn- um fram til 1990. Þekkt eru hin hringlaga Apollo-húsgögn, sem Gunnar hannaði 1968 sem og skákborðið sem hann hannaði fyrir ein- vígi Fischers og Spasskís 1972. „Ég hugsa að flestir hafi séð verk Gunnars, en gera sér ekki endilega grein fyrir að þau séu eftir hann,“ segir Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands. „Því miður voru verkin hans ekki öll skráð og því biðlum við til fólks sem á eða telur sig eiga hönnun eftir Gunnar í sínum fórum að hafa samband við okkur.“ Auk þess að hanna húsgögn inn- réttaði Gunnar margar bygging- ar, til dæmis jarðhæðina á Hótel Holti, sem og mörg íbúðarhús, sérstaklega í Fossvoginum þegar hann var að byggjast upp á sjö- unda og áttunda áratugnum. „Eflaust hefur mörgum innrétt- ingum verið fleygt síðan þá,“ segir Harpa, „en það er líka hugsanlegt að einhvers staðar megi finna upp- runalegar innréttingar eftir hann, jafnvel þótt þær hafi verið málað- ar. Ef fólk á enn slíka húsmuni í fórum sínum eða lumar á gömlum ljósmyndum af þeim yrðum við mjög þakklát.“ - bs Leita að húsmunum eftir Gunnar HÖNNUN GUNNARS MAGNÚSSONAR Gunnar hefur verið einn afkastamesti innanhússarkitekt Íslands. Vinstra megin má sjá verk úr línunni Nývirki en hægra megin er sett úr Apollo-línunni. HARPA ÞÓRSDÓTTIR STJÓRNARHÆTTIR Í ÍSLENSKU VIÐSKIPTALÍFI HÁDEGISVERÐARFUNDUR FVH OG KPMG MIÐVIKUDAGINN 24. NÓVEMBER KL. 12:00 – 13:30 Á GRAND HÓTEL Daði Ólafsson, héraðsdómslögmaður verður með hugleiðingar um takmörkun á ábyrgð endurskoðenda og tilvik sem leitt geta til ríkari ábyrgðar stjórnarmanna í hlutafélögum. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur fjallar um Handbók stjórnarmanna sem KPMG var að gefa út. Ýmsar spurningar hafa vaknað um stjórnarhætti sem hafa viðgengist í íslensku viðskiptalífi og er viðskiptasiðferði í mörgum tilvikum dregið í efa. Samfélagið kallar á breytt vinnulag hjá félögum og að stjórnarmenn og stjórnendur axli ábyrgð á gerðum sínum. Margret G. Flóvenz, endurskoðandi fer yfir ábyrgð stjórnarmanna á ársreikningi og samskipti stjórnar og endurskoðanda. Rúnar Guðmundsson, sviðsstjóri vátrygginga- sviðs Fjármálaeftirlitsins fjallar um athugun FME á hæfi stjórnarmanna eftirlitsskyldra aðila með áherslu á fjármálafyrirtæki. Fundarstjóri er Georg Andersen, MBA Vinsamlegast skráið þátttöku á vef FVH, www.fvh.is eða í síma 551 1317. Verð með hádegisverði: 3.000 kr. félagsmenn, 4.900 kr. aðrir. 26 menning@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.