Fréttablaðið - 23.11.2010, Side 40
23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR32
sport@frettabladid.is
ÁSGEIR ARON ÁSGEIRSSON skrifaði í gær undir þriggja ára samning við
1. deildarlið HK. Hann kemur til félagsins frá ÍBV, þar sem hann náði ekki að festa
sig í sessi. Ásgeir Aron er 24 ára gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá KR en lék
með Fjölni í efstu deild eftir að hafa farið frá KR.
HANDBOLTI Dregið var í fjórðungs-
úrslit í Eimskipsbikarkeppni karla
og kvenna í gær. Í karlaflokki
fengu bikarmeistarar Hauka erf-
itt verkefni en liðið mætir Fram á
útivelli.
Þessi lið mættust í deildinni á
dögunum og þá höfðu Framarar
betur.
„Við höfum getuna til að klára
öll lið – hvar og hvenær sem er,“
sagði Reynir Þór Reynisson, þjálf-
ari Fram. „Haukarnir voru hins
vegar að gera fína hluti í Þýska-
landi um helgina og sýndu að það
er fullt til í þeirra liði,“ bætti hann
við en Haukar töpuðu þá naumlega
fyrir þýska úrvalsdeildar liðinu
Grosswallstadt í Evrópukeppn-
inni.
Í kvennaflokki sluppu fjögur
efstu lið N1-deildar kvenna við
að mætast innbyrðis en þar munu
bikar meistarar Fram mæta Val 2.
- esá
Dregið í fjórðungsúrslit Eimskipsbikarsins:
Meistararnir fengu
erfitt verkefni
MÆTAST AFTUR Fram vann Hauka þegar liðin mættust í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
8 liða úrslit bikarsins
Karlar:
Víkingur - Akureyri Fram - Haukar
ÍR - FH Selfoss - Valur
Leikið 5. og 6. desember
Konur:
HK - Stjarnan ÍBV - Valur
Fjölnir/Afturelding - Fylkir Valur 2 - Fram
Leikið 18. og 19. janúar
IE-deild karla
Keflavík-Njarðvík 78-72
Keflavík: Lazar Trifunovic 27/15 fráköst, Valentino
Maxwell 16/4 fráköst/3 varin skot, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 12/12 fráköst/3 varin
skot, Hörður Axel Vilhjálmsson 11/6 fráköst/7
stoðsendingar, Gunnar Einarsson 10, Þröstur Leó
Jóhannsson 2.
Njarðvík: Christopher Smith 15/10 fráköst/6 varin
skot, Guðmundur Jónsson 14, Friðrik E. Stefáns-
son 9/11 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 9, Páll
Kristinsson 6/6 fráköst, Lárus Jónsson 6, Jóhann
Árni Ólafsson 6/4 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson
3, Egill Jónasson 2, Kristján Rúnar Sigurðsson 2.
Hamar-Grindavík 78-76
Hamar: Andre Dabney 27/9 fráköst/7 stoðsend-
ingar, Ellert Arnarson 14/6 stoðsendingar/5
stolnir, Darri Hilmarsson 13/5 fráköst, Nerijus
Taraskus 8/6 fráköst, Svavar Páll Pálsson 7/11
fráköst, Ragnar Á. Nathanaelsson 4/5 fráköst,
Kjartan Kárason 3, Snorri Þorvaldsson 2.
Grindavík: Ólafur Ólafsson 19/7 fráköst, Jeremy
Kelly 17/4 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 15/9
fráköst, Ómar Örn Sævarsson 13/9 fráköst, Guð-
laugur Eyjólfsson 8, Ármann Vilbergsson 2, Björn
Steinar Brynjólfsson 2/7 fráköst.
Fjölnir-KFÍ 103-95
Fjölnir: Ben Stywall 32/7 fráköst, Ægir Þór Stein-
arsson 21/5 fráköst/7 stoðsendingar, Ingvaldur
Magni Hafsteinsson 14/9 fráköst/6 varin skot,
Arnþór Freyr Guðmundsson 10, Tómas Heiðar
Tómasson 9, Hjalti Vilhjálmsson 8, Jón Sverrisson
5/5 fráköst, Sindri Kárason 4.
KFÍ: Craig Schoen 20/6 fráköst/6 stoðsendingar,
Darco Milosevic 17/9 fráköst, Nebojsa Knezevic
17/5 fráköst, Carl Josey 13/13 fráköst, Daði Berg
Grétarsson 12/5 stoðsendingar, Hugh Barnett
7/4 fráköst, Ari Gylfason 7, Pance Ilievski 2.
STAÐAN
Snæfell 8 7 1 789-731 14
KR 8 6 2 809-687 12
Grindavík 8 6 2 718-637 12
Stjarnan 8 5 3 699-670 10
Hamar 8 5 3 668-650 10
Keflavík 8 5 3 701-682 10
Fjölnir 8 4 4 727-714 8
Haukar 8 3 5 690-739 6
KFÍ 8 2 6 737-802 4
Tindastóll 8 2 6 623-708 4
Njarðvík 8 2 6 607-695 4
ÍR 8 1 7 698-751 2
ÚRSLIT
P.o. Box 126 ::: 121 Reykjavík ::: Sími 546 1984 ::: info@1984.is ::: www.1984.is
Hýsing og lén - allt á einum
stað fyrir eitt lágt verð.
628 kr./mán.*
*Miðað við 3 ára hýsingarsamning
Portborgari og franskar kr. 1090
Portvefja, hýðishrísgrjón og salat kr. 1090
Bættu við súpu og salatbar fyrir aðeins kr. 590
Hádegistilboð
Gildir virka daga frá kl . 11 - 14.30 - www.portid.is -
Kringlunni
mán - mið 11 - 20
fim - lau 11- 22
sunnud. 12 - 20
553 8878
Opið:
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar yfir-
gáfu Toyota-sláturhúsið tómhent-
ir í gær. Baráttan var allsráðandi
í leik þeirra gegn erkifjendunum
í Keflavík. Viðureignin sveiflu-
kennd og spennandi þó ekki hafi
mikið verið skorað.
Undir lokin hélt undirritaður að
gestirnir væru að sigla sigrinum
í höfn en þá spýttu heimamenn í
lófana og kláruðu dæmið með sex
stiga sigri. Hrakfarir Njarðvík-
inga halda því áfram og þeir hafa
tapað fimm deildarleikjum í röð.
„Það er alltaf glatað að tapa,“
sagði Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Njarðvíkur. „Lið sem
hefur tapað nokkrum leikjum í röð
á oft erfitt með að ná sigrinum í
spennuleikjum. Það voru teknar
rangar og vafasamar ákvarðanir í
lokin sem skiluðu því að við unnum
ekki leikinn. Við vorum að spila
ágætlega í þessum leik og þessi
forysta sem við náðum í lokin ætti
að duga jafn reynslumiklu liði,“
sagði Sigurður.
Villurnar léku Njarðvík-
inga grátt strax í byrjun.
Jóhann Árni Ólafsson var
kominn með þrjár villur
um miðjan fyrsta leikhluta
og Christopher Smith fékk
svo sína þriðju stuttu síðar
við litla hrifningu
þjálfarans Sigurðar
Ingimundar sonar.
Magnús Þór Gunn-
arsson var mætt-
ur aftur í Njarðvíkur-
búninginn, hann byrjaði
á bekknum en þegar
hann kom inn gegn sínum
gömlu félögum og skoraði
sín fyrstu stig var mikið
fagnað í öðrum helmingi stúkunn-
ar. Það sást þó í gær að hann á enn
eftir að koma sér betur inn í leik
Njarðvíkur.
Keflvíkingar byrjuðu betur og
leiddu með tíu stiga mun að lokn-
um fyrsta leikhluta. Þeir kláruðu
fjórðunginn með stæl, með glæsi-
legri þriggja stiga körfu Harð-
ar Axels Vilhjálmssonar og svo
troðslu hjá Gunnari Einarssyni.
Njarðvíkingar komust í öllu
betri gír í öðrum leikhlutanum,
allt liðið var farið að virka betur
og þeir náðu að snúa stöðunni við,
komust í fyrsta sinn yfir 30-32.
Heimamenn fóru þó með forystuna
inn í hálfleikinn, staðan 37-34.
Spennan hélt áfram eftir hlé
og jafnræði var með liðunum en
Keflavík leiddi með fjórum stig-
um fyrir lokafjórðunginn. Hart
var barist og þurfti Keflvíkingur-
inn Hörður Axel Vilhjálmsson að
vera utan vallar um tíma eftir að
hafa hlotið skurð við augabrún.
Með góðum kafla komust Njarð-
víkingar skrefinu á undan en þegar
Valentino Maxwell setti niður
þrist og jafnaði féll stemningin
með heimamönnum. Lokamín-
útan var gríðarlega spenn-
andi, Keflavík var með
þriggja stiga forystu og
Njarðvíkingar fóru illa
að ráði sínu svo heima-
sigur varð staðreynd.
„Við vorum ekki
að spila góðan leik
fannst mér, náðum
fínum köflum en komumst aldrei
almennilega í gang. Þetta var ekki
að ganga upp hjá okkur í fráköst-
um og vítanýtingu,“ sagði Guðjón
Skúlason, þjálfari Keflavíkur, eftir
leikinn.
„Þetta var mjög harður leikur
og stress í gangi. Ég er ánægð-
ur með að við náðum allavega að
klára þetta. Við vissum að Njarð-
víkingar kæmu brjálaðir til leiks
enda að duga eða drepast fyrir þá.
Það er sterkt fyrir okkur að vinna
þetta.“
Serbinn Lazar Trifunovic var
stigahæstur hjá Keflavík en hann
hefur verið að koma sterkur í liðið.
„Hann hefur verið að gera vel en
getur enn betur en hann sýndi
í þessum leik. Hann hefur samt
komið með aukna samkeppni í
þessar stóru stöður, með meiri læti
og ég er mjög ánægður með hann,“
sagði Guðjón. elvargeir@frettabladid.is
Það er alltaf glatað að tapa
Njarðvíkingar töpuðu fimmta deildarleik sínum í röð er þeir biðu lægri hlut gegn grönnum sínum frá
Keflavík í miklum baráttuleik í gæir. Úrslit leiksins réðust ekki fyrr en á lokamínútunni.
KOMINN HEIM Magnús Gunnars-
son er kominn aftur frá Danmörku
og skoraði níu stig í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
UNDIR KÖRFUNNI Jóhann Árni Ólafsson átti ekki sinn besta leik í gær og skoraði
aðeins sex stig. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Danny Welbeck, láns-
maður frá Manchester United,
var ekki fjarri því að tryggja
Sunderland sigur gegn Everton
í gær.
Hann skoraði í tvígang fyrir
Sunderland eftir að liðið hafði
lent undir. Fyrst með skoti af
stuttu færi og síðan með glæsi-
legum skalla. Hann skoraði einn-
ig í síðasta leik gegn Chelsea og
er sjóðheitur þessa dagana.
Það var Tim Cahill sem kom
Everton yfir með skalla áður en
Welbeck skoraði tvisvar. Mikel
Arteta bjargaði síðan stigi fyrir
Everton er hann jafnaði leikinn
sjö mínútum fyrir leikslok. Skot
utan teigs fór í varnarmann og
þaðan í netið.
Sunderland er í sjöunda sæti
eftir leikinn en Everton er í fjór-
tánda sæti. - hbg
Sunderland mætti Everton:
Arteta tryggði
jafnteflið
SJÓÐHEITUR Danny Welbeck fagnar hér
marki gegn Everton í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES