Fréttablaðið - 24.01.2011, Side 2
2 24. janúar 2011 MÁNUDAGUR
EVRÓPUMÁL Samninganefnd Íslands
kynnir íslenskt landbúnaðarkerfi og
sérstöðu þess fyrir samninganefnd
ESB á rýnifundi í Brussel í dag.
Þar verður ESB tilkynnt að ekki
verði ráðist í efnislegar breytingar
á íslenska kerfinu vegna aðildar-
ferlisins, fyrr en þjóðin hefur sam-
þykkt aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu,
samkvæmt heimildum úr stjórnar-
ráðinu.
Það að aðlögun hefjist ekki strax
er í takt við bréf utanríkisráðherra
til Bændasamtakanna í nóvember,
en þau hafa svarað bréfinu með
því að þar með telji þau staðfest að
aðlögun að landbúnaðarstefnu ESB
sé ekki á dagskrá. Bændasamtök-
in fóru í sama bréfi fram á að þessi
afstaða Íslendinga yrði sérstaklega
kynnt fyrir ESB og virðist utanríkis-
ráðherra ætla að verða við því.
Á fundinum ættu svör landbúnað-
arráðuneytis við spurningum ESB
að verða lögð fram, en rætt hefur
verið um meinta „ritskoðun“ utan-
ríkisráðuneytis á þessum svörum,
sem fjalla um byggðastefnu ESB og
um hvenær ný landbúnaðarstofn-
un yrði sett á laggirnar, samkvæmt
kröfum ESB. Heimildir herma að
landbúnaðaráðuneyti hafi sagt í
svörum sínum að ekki verði ráðist
í þessi verkefni fyrr en að lokinni
þjóðaratkvæðagreiðslu og eftir að
öll aðildarríki ESB hafa samþykkt
aðild Íslands. Ráðuneytið mun
síðar hafa fallist á að breyta svar-
inu þannig að miðað verði við þjóð-
aratkvæðagreiðsluna eina.
Svörin við tveimur fyrrgreindu
spurningum verða lögð fram munn-
lega, ólíkt hinum spurningunum,
segir heimildarmaður. Í herbúð-
um landbúnaðarráðherra ríkir því
ákveðin tortryggni um hvort þau
verði yfirleitt lögð fram, enda er þar
talið að yfirlýsing um engar breyt-
ingar geti virkað „mjög stuðandi“
fyrir aðildarferlið.
Talið er að fulltrúi Bændasamtak-
anna muni fylgjast með rýnifundin-
um á morgun í gegnum fjarskipta-
búnað utanríkisráðuneytis. - kóþ
Í BRUSSEL Samninganefnd Íslands kynn-
ir íslenskan landbúnað fyrir viðsemjend-
um sínum í Brussel í dag. NORDICPHOTOS/AFP
Maðurinn sem lést á Eyja-
fjarðarbraut fimmtudaginn 20.
janúar hét
Gísli Ólafur
Ólafsson, til
heimilis að
Vættagili 21
á Akureyri.
Gísli var
49 ára og
lætur eftir
sig eigin-
konu, fjögur börn á aldrinum 8
til 28 ára og eitt barnabarn.
Gísli lést eftir að hann varð
fyrir fólksbifreið þegar hann
var að skokka á Eyjafjarðar-
braut. Hann var fluttur með
sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á
Akureyri en úrskurðaður lát-
inn þegar þangað var komið.
Lést í slysi
við Akureyri
EFNAHAGSMÁL Ögmundur Jónas-
son innanríkisráðherra segir
það samkomulag sem náðst
hefur við Breta og Hollend-
inga í Icesave-
málinu mun
betra en það
sem náðist
fyrir rúmu ári.
Hann reikn-
ar að óbreyttu
með að styðja
samkomulagið.
„Það er fagn-
aðaratriði að
við skulum
ekki hafa látið glepjast til að
ganga að því samkomulagi sem
var á borðinu fyrir um ári,“
segir Ögmundur.
Farið verður yfir samkomu-
lagið á Alþingi, en Ögmundur
segir að nema fram komi efnis-
atriði sem hann hafi ekki orðið
var við hingað til reikni hann
með að styðja samkomulagið. - bj
Ögmundur sáttur við Icesave:
Reiknar með að
styðja samning
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
TÆKNI Vefsíðan Thjod.is varð fyrir
tölvuárás í á laugardag. Á síð-
unni mátti finna viðtöl við fjölda
ólíkra einstakl-
inga sem svara
því hvers vegna
Ísland ætti að
ganga í Evrópu-
sambandið. Lá
hún þá alfarið
niðri í kjölfarið.
Kolfinna
Baldvinsdóttir,
ein af forsvars-
mönnum síð-
unnar, segir málið hafa litið illa
út í fyrstu, en farið hafi betur en á
horfðist.
„Líklega er hægt að ná öllum
gögnunum aftur,“ segir hún.
„Maður veltir því fyrir sér hvaða
hagsmunir séu að baki hjá þeim
sem gera svona lagað.“ Árásin kom
frá GreenGeeks, hýsingar fyrirtæki
í Bandaríkjunum. - sv
Hakkarar réðust á ESB-síðu:
Þjóð.is varð
fyrir tölvuárás
DUBLIN, AP Írski Græningjaflokk-
urinn hætti í gær stuðningi við
ríkisstjórn Brian Cowen forsætis-
ráðherra. Úrsögn flokksins úr ríkis-
stjórn eykur enn þrýsting á Cowen
að segja af sér embætti en hann
hefur boðað að kosningar skuli fara
fram hinn 11. mars næstkomandi.
Ríkisstjórn Cowen hefur eftir
helgina ekki lengur stuðning meiri-
hluta þingmanna, auk þess sem ein-
ungis sjö af fimmtán ráðuneytum
eru nú mönnuð. Búist er við því að
stjórnarandstaðan knýi fram að
kosningar fari fram strax í næsta
mánuði.
John Gormley, leiðtogi Græn-
ingja, segir að flokkurinn muni
styðja fjárlagafrumvarp sem þingið
fjallar nú um en telji sig nú að öðru
leyti til stjórnarandstöðunnar.
Alþjóðlega fjármálakreppan sem
hófst árið 2008 hefur leikið írska
hagkerfið grátt og hefur ríkis stjórn
Cowens neyðst til að grípa til sárs-
aukafullra aðhaldsaðgerða í ríkis-
fjármálum. Vinsældir Cowens og
flokks hans, Fianna Fáil, eru nú í
sögulegu lágmarki en Cowen sagði
í síðustu viku af sér sem formaður
flokksins. Hann sagði við það tilefni
að flokkurinn þyrfti á nýrri forystu
að halda fyrir kosningabaráttu,
hann sjálfur væri of umdeildur.
- mþl
Forsætisráðherra Íra hefur boðað til kosninga í mars næstkomandi:
Írska stjórnin á brauðfótum
COWEN KVEÐUR Ríkisstjórn Brian
Cowen hefur misst meirihluta sinn á
írska þinginu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ísland kynnir ESB afstöðu sína til landbúnaðarmála á fundi í Brussel í dag:
Engin aðlögun fyrir samþykkt
UMHVERFISMÁL Sveitarstjórn
Skaftár hrepps hefur í samstarfi
við rekstaraðila sorporkustöðvar-
innar á Kirkjubæjarklaustri
ákveðið að hætta sorpbrennslu á
skólatíma. Íbúar á Kirkjubæjar-
klaustri lýsa ánægju sinni
með ákvörðunina en vilji er til
að ganga lengra og loka sorp-
brennslunni endanlega.
Fréttablaðið greindi frá því 14.
janúar að sorpbrennslan á staðn-
um, íþróttahúsið, sundlaugin, og
grunnskólinn stæðu vegg í vegg.
Aðeins eru um tuttugu metrar
frá reykháf sorpbrennslunnar að
sundlauginni, sama fjarlægð er í
leiksvæðið við skólann og í loft-
inntak loftræstikerfisins fyrir
samstæðuna. Mælingar á díox-
íni árið 2007 sýndu að eitrið var
95-falt yfir viðmiðunarmörkum í
útblæstri brennslunnar og önnur
mengun hefur jafnframt mælst
of mikil samkvæmt takmörkun-
um í starfsleyfi.
Eygló Kristjánsdóttir, sveitar-
stjóri Skaftárhrepps, segir
í bréfi til Fréttablaðsins að
Gámafélagið, sem rekur sorp-
brennsluna, hafi verið beðinn um
að athuga hvort mögulegt væri
að seinka brennslu á daginn og
var fallist á það. „Þannig vorum
við að reyna að koma til móts við
áhyggjur fólks og ekki síst að láta
börnin njóta vafans á meðan við
bíðum eftir nánari niðurstöðum
úr mælingum á útblæstri stöðvar-
innar. Okkur finnst við ekki geta
lokað stöðinni eins og staðan er
núna, en viljum gjarnan gera
það sem við getum til að koma
til móts við áhyggjur samborg-
ara okkar og nágranna,“ segir
Eygló, sem sendi foreldrum og
öðrum íbúum á Klaustri bréf
þessa efnis á fimmtudag.
Oddur Bjarni Thorarensen,
byggingaverkfræðingur á Kirkju-
bæjarklaustri, ákvað að halda
börnunum sínum heima vegna
mengunar frá sorpbrennslunni,
eins og Fréttablaðið sagði frá 14.
janúar. Hann hefur ákveðið að
senda börnin aftur í skólann vegna
ákvörðunar um að hætta brennslu
á skólatíma en fer ekki í grafgöt-
ur með þá skoðun sína að það dugi
skammt. Staðsetning sorpbrennsl-
unnar sé engan veginn viðunandi
og hún þurfi að fara.
Kjartan Kjartansson, skóla-
stjóri í Kirkjubæjarskóla, fagnar
ákvörðuninni. Spurður hvort sorp-
brennslan hafi ekki verið þyrnir
í augum kennara og starfsfólks
segir Kjartan að hann hafi verið
í sambandi við Umhverfisstofn-
un og sóttvarnalækni og verið
sannfærður um það af embættis-
mönnum að mengunin væri undir
hættumörkum. Hann hafi ekki
haft forsendur til að rengja það
en fagni því heils hugar að börn-
in á Klaustri séu látin njóta vaf-
ans um hvort umhverfi þeirra sé
heilsusamlegt. svavar@frettabladid.is
Brenna ekki sorp á
skólatíma á Klaustri
Sorpbrennslu á Klaustri verður hætt á skólatíma vegna umræðu um mengun.
„Börnin eiga að njóta vafans,“ segir sveitarstjóri. Íbúar fagna ákvörðuninni sem
jákvæðu skrefi en sætta sig ekki við neitt annað en að sorpbrennslan fari.
SORPORKUSTÖÐIN Á KLAUSTRI Sorpbrennslan er samvaxin skóla, sundlaug og
íþróttahúsi og er staðsetningin afar umdeild meðal íbúa á Klaustri. Myndin er tekin
við opnun stöðvarinnar og í baksýn er skólinn. MYND/SIGURÐUR HJÁLMARSSON
ALÞINGI Margrét Tryggvadóttir,
þingmaður Hreyfingarinnar, seg-
ist oft hafa tengt tölvu sína með
sama hætti og
tölvuna sem
fannst í tómri
skrifstofu í
skrifstofuhús-
næði Alþingis
í fyrra. Hún
segir umræð-
urnar um málið
hjákátlegar.
Í tilkynningu
á vefsíðu sinni í
gær segist Margrét lítið vit hafa á
njósnum, en sé þó viss um að það
hljóti að vera til árangursríkari
aðferð en að tengja tóma tölvu við
net þingsins. Hún fer fram á afsök-
unarbeiðni vegna ásakana um að
tölvan tengist Hreyfingunni. - sv
Þingmaður um njósnatölvu:
Umræðurnar
eru hjákátlegar
„Sigríður, var þetta frumsýn-
ingarhelgi dauðans?“
„Nei, þetta var heldur frumsýningar-
helgi lífsins.“
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir er höfundur
leikritsins Helgi dauðans sem frumsýnt
var á laugardag. Leikhópurinn Hugleikur
setur upp verkið, sem sýnt er í húsnæði
hópsins að Eyjarslóð.
MARGRÉT
TRYGGVADÓTTIR
KOLFINNA
BALDVINSDÓTTIR
STJÓRNSÝSLA Mervyn King, banka-
stjóri Englandsbanka, vísar á bug
fullyrðingum Árna M. Mathiesen,
fyrrverandi fjármálaráðherra, og
Davíðs Oddssonar, fyrrverandi
seðlabankastjóra, á þá leið að
King hafi sagt við Davíð að bresk
stjórnvöld myndu ekki gera kröfu
um greiðslu vegna Icesave.
Breska blaðið Guardian greindi
frá þessu í gærkvöldi. Að auki
var haft eftir talsmanni King að
hann hefði mánuðum saman hvatt
Íslendinga til að minnka banka-
kerfið hér á landi árið 2008. - mþl
Tjáði sig ekki um Icesave:
Neitar orðum
Árna og Davíðs
SPURNING DAGSINS
KONUNGUR ÞORRANS
Í 48 ÁR
GÓÐIR LANDSMENN, ÞORRINN NÁLGAST!
Hann hefst 21. janúar – Munið að panta tímanlega
Sími 553 7737 I www.mulakaffi.is
ÚTVEGUM
VEISLUSA
LI
FYRIR ÞOR
RABLÓT
Vid blótum enn og aftur!
OKKAR LANDSFRÆGU
HJÓNABAKKAR OG ÞORRATROG
HENTA VEL FYRIR STÓRA
OG SMÁA HÓPA
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R