Fréttablaðið - 24.01.2011, Blaðsíða 42
26 24. janúar 2011 MÁNUDAGUR
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
Baráttukveðjur
frá VÍS!
Strákarnir okkar eru svo skemmtilega
ólíkir og okkur þykir óskaplega vænt
um þá alla. VÍS er stoltur styrktaraðili
íslenska landsliðsins á HM í Svíþjóð.
Henry Birgir
Gunnarsson
og Valgarður
Gíslason
fjalla um HM í Svíþjóð
henry@frettabladid.is - valgard.gislason@365.is
Milliriðill eitt
Ísland-Þýskaland 24-27 (13-15)
Mörk Íslands (Skot): Alexander Petersson 7
(12), Róbert Gunnarsson 5 (5), Ólafur Stefánsson
4/2 (7/2), Arnór Atlason 4 (8), Guðjón Valur
Sigurðsson 2 (3), Aron Pálmarsson 2 (7).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 15/1 (41/3,
37%).
Hraðaupphlaupsmörk: 4 (Guðjón Valur 2,
Ólafur, Alexander)
Fiskuð víti: 2 (Róbert, Snorri Steinn)
Brottvísanir: 4 mínútur.
Mörk Þýskalands (Skot): Christian Sprenger
5 (8),Holger Glandorf 4 (5), Sebastian Preiss
4 (6), Michael Kraus 4/2 (9/3), Dominik Klein 3
(4), Adrian Pfahl 3 (4), Pascal Hens 2 (6), Jacob
Heinl 1 (2), Michael Haass 1(4).
Varin skot: Silvio Heinevetter 15 (38/2, 39%)
Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Sprenger 3, Pfahl 2,
Klein, Heinl)
Fiskuð víti: 3 (Preiss 2, Hens)
Brottvísanir: 6 mínútur.
Spánn-Noregur 32-27 (15-12)
Frakkland-Ungverjaland 37-24 (18-13)
STAÐAN
Frakkland 3 2 1 0 95-75 5
Spánn 3 2 1 0 86-79 5
Ísland 3 2 0 1 85-75 4
Þýskaland 3 1 0 2 74-80 2
Ungverjaland 3 1 0 2 76-92 2
Noregur 3 0 0 3 72-87 0
LEIKIR DAGSINS
Ísland-Spánn Klukkan 15.00
Ungverjaland-Þýskaland 17.15
Noregur-Frakkand 19.30
Milliriðill tvö
Króatía-Argentína 36-18 (19-6)
Serbía-Svíþjóð 24-28 (13-12)
Danmörk-Pólland 28-27 (15-9)
Svíþjóð-Króatía 29-25 (14-12)
Argentína-Danmörk 24-31 (12-17)
Pólland-Serbía 27-26 (10-11)
STAÐAN
Danmörk 4 4 0 0 127-107 8
Svíþjóð 4 3 0 1 103-97 6
Pólland 4 2 0 2 99-101 4
Króatía 4 1 1 2 114-105 3
Argentína 4 1 0 3 92-113 2
Serbía 4 0 1 3 101-114 1
HM Í HANDBOLTA
HM 2011 Íslenska landsliðið tapaði
24-27 á móti Þjóðverjum í fyrsta
leiknum sínum í milliriðli. Ísland
skoraði tvö fyrstu mörkin en Þjóð-
verjar svöruðu með sex mörkum
í röð og héldu frumkvæðinu síðan
út leikinn.
„Þetta er hálfömurleg og leiðin-
leg tilfinning. Mér finnst við hafa
verið að tapa fyrir liði sem er ekki
betra en við,“ sagði Guðjón Valur
Sigurðsson.
Íslensku strákarnir náðu að
jafna leikinn í 18-18 en þá tryggðu
Þjóðverjar sér í raun sigurinn
með því að loka á íslensku sókn-
ina í rúmlega tólf mínútur og ná
í kjölfarið fimm marka forskoti.
„Við erum að elta allan leikinn.
Ég hélt við værum að komast í
gang þegar við jöfnuðum en við
vorum nokkuð frá okkar besta.
Við vorum bara ekki nógu góðir,“
sagði Ólafur Stefánsson. - óój, hbg
Fyrsta tap Íslands á HM 2011:
Skoruðu ekki í
tólf mínútur
HM 2011 Íslenska landsliðið gerði sitt
besta í gær til þess að gleyma von-
brigðunum gegn Þýskalandi. Strák-
arnir fengu ekki að losna strax við
leikinn því í gærmorgun var hald-
inn myndbandsfundur þar sem farið
var yfir leikinn gegn Þjóðverjum.
Í kjölfarið var tekin æfing þar
sem liðið æfði þá hluti sem þurfa
að vera í lagi gegn Spánverjum í
dag. Síðar um daginn var svo hald-
inn annar fundur áður en liðið fór
saman út að borða en strákarnir
snæddu íslenskt lambalæri.
„Nóttin eftir Þjóðverjaleikinn
var löng og erfið. Ég er feginn að
hún er búin. Ég hlakka til að takast
á við Spánverjana. Eftir svona leik
eins og gegn Þýskalandi vill maður
koma til baka. Við erum búnir að
fara yfir Þjóðverjaleikinn og skoð-
uðum Spánverjana í framhaldinu,“
sagði Guðmundur en hann er full-
meðvitaður um að leikurinn í dag
er hreinn úrslitaleikur, ætli liðið
að eygja von um að komast í undan-
úrslit.
„Þetta er úrslitaleikur og við
förum í hann þannig. Við erum stað-
ráðnir í að bæta fyrir leikinn gegn
Þýskalandi, sem var okkar lang-
slakasti leikur á þessu móti. Því
miður kom sá leikur í þetta mikil-
vægum leik.“
Spánverjar hafa verið mjög vax-
andi á þessu móti og spilað sterkan
varnarleik. Sérstaklega hefur
5/1 vörnin þeirra verið mögnuð
og Frakkar lentu til að mynda í
stórkostlegum vandræðum gegn
henni.
„Hún hefur verið frábær og þeir
spila tvær útgáfur af henni. Þeir
gætu líka spilað 6/0 vörn á móti
okkur þannig að við erum tilbúnir
fyrir þrjú varnarafbrigði. Það verð-
ur bara gaman að glíma við það,“
sagði Guðmundur en hvaða breyt-
ingar vill hann sjá hjá sínu liði í
dag?
„Ég vil að menn komi með meiri
grimmd í leikinn. Ég fékk slæma
tilfinningu skömmu fyrir leik gegn
Þjóðverjum að menn væru ekki
nægilega grimmir. Mér fannst
vanta á grimmd í vörninni og við
vorum á eftir í öllum aðgerðum.
Sóknarleikurinn þarf líka að vera
miklu beittari og sóknarleikurinn
þarf að vera betri þar sem boltinn
fær að ganga betur. Ég var óánægð-
ur með hvernig við spiluðum kerf-
in. Menn voru ekki að spila það sem
búið er að æfa. Við höfum farið yfir
þetta og vonandi kemur það sama
ekki fyrir aftur.“
ÞETTA ER ÚRSLITALEIKUR
Það er allt undir hjá strákunum okkar í dag er liðið mætir Spáni. Strákarnir
verða að vinna til þess að halda draumnum um að komast í undanúrslit á lífi.
FRÁBÆR MARKVARSLA OG FRÁBÆR MYND Björgvin Páll Gústavsson ver hér víti frá Þjóðverjanum Michael Kraus með höfðinu.
HM 2011 Ólafur Stefánsson og félagar
í íslenska landsliðinu voru í sárum í
gær en efuðust ekkert um að þeir
myndi rífa sig upp fyrir leikinn í
dag.
„Sárin eru að gróa eftir Þjóðverja-
leikinn en það er enn meira fyrir
höndum eftir þennan leik. Kvöldið
var erfitt,“ sagði Ólafur Stefánsson
við Fréttablaðið í gær en hann var
að reyna að hrista af sér vonbrigðin
gegn Þjóðverjum.
„Við gerðum eiginlega allt rangt
gegn Þjóðverjum nema Bjöggi í
markinu sem var góður. Það er
margt að laga og við vitum líka að
ef við spilum eins vel og við getum
þá er það góður möguleiki að vinna
Spánverjana.“ Þó svo að strákarn-
ir hafi verið niðurlútir í gær þekkja
þeir flestir þær sveiflur sem fylgja
svona mótum og Ólafur vonast til að
leikmenn mætir tilbúnir í slaginn.
„Þetta verður hörkuleikur. Ef
vörnin heldur og við höldum breidd
og gerum það sem ætlast er til
kvíði ég ekki svo miklu. Við þurf-
um líka að skjóta vel því þeir eru
með toppmarkmenn. Það er margt
sem þarf að varast. Þetta verður
spennandi leikur,“ sagði Ólafur en
báðir markverðir spænska liðs-
ins spiluðu með honum hjá Ciudad
Real á sínum tíma.
Íslandi hefur gengið nokkuð
vel gegn Spánverjum en það telur
ekkert í dag. „Það átti að gera
það gegn Þjóðverjum en það telur
greinilega lítið hvað gerðist áður.
Maður verður því að peppa sig
upp.“ - hbg
Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði er ekki mjög kvíðinn fyrir Spánverjaleikinn:
Getum vel unnið Spánverja
ÓLAFUR STEFÁNSSON Hefur unnið Spán-
verja tvisvar á stórmótum, á HM 1997
og ÓL 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HM 2011 Strákarnir okkar lögðu
hótelfæðið til hliðar í gær og
gæddu sér á dýrindis íslensku
lambalæri sem HSÍ hafði komið
til Svíþjóðar.
„Þau verða elduð eins og
mamma gerði það. Vonandi hjálp-
ar það okkur í leiknum gegn
Spánverjum,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari
en hann var orðinn mjög spennt-
ur fyrir matnum.
Hann stóð í ströngu í gær því
hann átti fund með yfirmanni
dómaramála þar sem hann kom
á framfæri kvörtun vegna serb-
nesku dómaranna í leik Íslands
og Þýskalands. Guðmundur og
félagar voru búnir að klippa
saman myndband með helstu
dómum sem klikkuðu í leiknum.
Það mun ekki skila neinu en
Guðmundi fannst engu að síður
nauðsynlegt að koma á framfæri
kvörtun í stað þess að sitja þegj-
andi undir þeirri dómgæslu sem
boðið var upp á. - hbg
Strákarnir okkar í Svíþjóð:
Fengu íslenskt
lamb í gær
SNORRI STEINN Þurfti að fá meðferð í
miðjum Þjóðverjaleik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HM 2011 Danir tryggðu bæði sér
og Svíum sæti í undanúrslitum
í gærkvöldi þrátt fyrir að ein
umferð sé enn eftir í milliriðl-
inum. Svíar höfðu unnið 29-25
sigur á Króötum í frábærum leik
og Danir unnu síðan 31-24 sigur á
Argentínumönnum.
Danir hafa unnið alla sjö leiki
sína á HM og sigur þeirra á Arg-
entínu þýðir líka að ekkert lið
getur náð Svíum. Pólverjar geta
aðeins náð Svíum að stigum og
Svíar verða alltaf ofar, verði þau
jöfn, þökk sé 24-21 sigri á pólska
liðinu í riðlakeppninni. - óój
HM í handbolta í gærkvöldi:
Danir og Svíar í
undanúrslitin
FRÁBÆRIR Í GÆR Svíar eru komnir í
undanúrslit eftir sigur á Króatíu. MYND/AFP
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I