Fréttablaðið - 24.01.2011, Blaðsíða 6
6 24. janúar 2011 MÁNUDAGUR
®
ALÞINGI Dæmi eru um að læknar
hafi ráðlagt ungum stúlkum að
verða barnshafandi til að losna við
legslímuflakk. Þetta kemur fram
í greinargerð með þingsályktun
þar sem lagt er til að ráðist verði í
fræðsluátak um sjúkdóminn. Eygló
Harðardóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokks, er flutningsmaður
þingsályktunartillögunnar.
Legslímuflakk er krónískur
sjúkdómur sem orsakast af því að
frumur úr innra lagi legsins finn-
ast á öðrum stöðum í kviðarhol-
inu en legholinu. Sjúkdómurinn er
meðfæddur og virðist að verulegu
leyti háður erfð-
um. Einkennin
eru mikill sárs-
auki við blæð-
ingar, sársauki
við egglos, verk-
ir í kviðarholi á
milli blæðinga,
verkir við sam-
farir, þvaglát og
hægðir, ófrjó-
semi og erfið-
leikar á meðgöngu og við fæðingu.
Talið er að um tvö til fimm pró-
sent íslenskra kvenna þjáist af
leg slímuflakki. Af því leiðir að á
hverjum tíma eiga nokkur hundruð
konur í vanda vegna sjúkdómsins.
Fram kemur í greinargerðinni
að ranghugmyndir hafi lengi verið
ríkjandi um legslímuflakk og upp-
lýsingagjöf villandi. Í framhaldi
fullyrðingar um ráðleggingar
lækna um þungun er á það bent að
meðganga, líkt og hormónameðferð,
geti dregið tímabundið úr einkenn-
um en lækni ekki sjúkdóminn.
Þá segir að heilbrigðisstarfsfólk
skorti upplýsingar og þekkingu
á legslímuflakki og er lagt til að
heilbrigðisráðherra beiti sér fyrir
fræðslu um sjúkdóminn. - bþs
Læknar hafa ráðlagt konum að verða barnshafandi til að losna við sjúkdóm:
Ranghugmyndir um legslímuflakk
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
VIÐSKIPTI Pósthúsið í Garðabæ
fékk í byrjun árs vottun sam-
kvæmt ISO 9001:2008.
Staðallinn tekur til stjórnunar
á gæðum og verkferlum, stjórn
rekstrar, mannauðs, samskipta
við birgja og þjónustustigs. Til
dæmis felst í honum að starfs-
menn séu virkir þátttakendur í
umbótaferlum, deili þekkingu
sín á milli og ræði vandamál sín
hindrunarlaust.
Haft er eftir Hannesi A.
Hannes syni, framkvæmdastjóra
Pósthússins, að vottunin og ferlið
í kringum hana sé eðlilegt fram-
hald af því starfi sem unnið hafi
verið innan fyrirtækisins. - jab
Pósthúsið fær gæðavottun:
Deila þekkingu
sín á milli
FARIÐ MEÐ PÓST Pósthúsið hefur fengið
gæðavottun sem tekur til ýmissa þátta
í rekstri.
SLYS Líðan dansarans Steve Lorenz, sem lenti í
alvarlegu slysi á æfingu Íslenska dansflokksins á
föstudag, er óbreytt. Honum er enn haldið sofandi
í öndunarvél.
Slysið varð með þeim hætti að við spunaæfingu
á sirkustengdu dansverki var einn dansarinn að
nota band sem fyrir slysni hertist að hálsi Steve. Í
kjölfarið missti hann meðvitund og þurfti öndun-
araðstoð í framhaldi.
„Þetta er mjög óvanalegt dansslys, en þetta
sirkustengda dansverk skýrir það,“ segir Sigrún
Lilja Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska
dansflokksins. „Honum er haldið sofandi til að
takmarka skaða vegna súrefnisskorts. Þetta eru
mjög færir læknar og það er bara verið að útiloka
allt eins og reglur segja til um.“
Steve var fluttur á gjörgæsludeild Landspítal-
ans, þar sem honum er haldið sofandi á gjörgæslu-
deild.
Steve er frá Þýskalandi og er fastráðinn dansari
í Íslenska dansflokknum. Hann er búsettur hér á
landi ásamt íslenskri sambýliskonu sinni, sem er
einnig fastráðinn dansari í dansflokknum.
Sýningu á Ofviðrinu var frestað vegna slyssins,
en ekki er fyrirhugað að fresta fleiri sýningum.
Nýr dansari mun leysa Steve af tímabundið. - sv
Alvarlegt slys á æfingu á sirkustengdu atriði Íslenska dansflokksins á föstudag:
Enn haldið sofandi í öndunarvél
STEVE LORENZ Steve gekk til liðs við Íslenska dansflokkinn
árið 2002 og var fastráðinn árið 2003. Unnusta hans er einnig
fastráðinn dansari við flokkinn. MYND/CARINA MUSK-ANDERSEN
HEILBRIGÐISMÁL Ástand konunnar
sem lögð var inn á gjörgæsludeild
Landspítalans með svínaflensu
fyrir helgi er svipað og það var
fyrir helgi, samkvæmt upplýsing-
um frá lækni á gjörgæsludeild.
Ástand hennar er stöðugt en hún
er ennþá alvarlega veik.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Landlæknis var konan með und-
irliggjandi áhættuþætti sem auka
líkur á alvarlegum veikindum af
völdum inflúensunnar. Hún var
hins vegar við góða heilsu áður en
hún smitaðist af inflúensunni. - jhh
Alvarlegt tilvik svínaflensu:
Konan er enn
alvarlega veik
FRÉTTASKÝRING
Hver er afstaða samtaka sem tengd eru atvinnulíf-
inu til fyrirhugaðrar uppstokkunar á ráðuneytum?
Mikil andstaða er við það innan samtaka sem
tengd eru atvinnulífinu að auðlindamál verði
flutt yfir í umhverfisráðuneytið við fyrirhug-
aða uppstokkun á ráðuneytum.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
var þessi andstaða látin skýrt í ljós á fyrsta
fundinum í samráðsferli stjórnvalda og átta
samtaka atvinnurekenda á föstudag. Fundar-
menn sem Fréttablaðið ræddi við voru
flestir á því að búið væri að ákveða stóru
drættina í sameiningarmálunum, en enn
væri möguleiki að hafa áhrif á útfærslu.
Samkvæmt samstarfsyfirlýsingu ríkis-
stjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna stendur til að sameina iðnaðarráðu-
neytið, landbúnaðarráðuneytið og sjávar-
útvegsráðuneytið í eitt ráðuneyti; atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytið.
Samhliða því áforma stjórnvöld að færa
auðlindamál, sem nú heyra undir iðnaðar-
ráðuneytið, til umhverfisráðuneytisins. Í
því felst meðal annars að ákvarðanir um
nýtingu verði teknar í umhverfisráðuneyt-
inu, og að stofnanir á borð við Hafrannsókna-
stofnun og Matís muni heyra undir það
ráðuneyti í stað tilvonandi atvinnuvega-
ráðuneytis.
Á fundinn á föstudag mættu fulltrúar
Samtaka atvinnulífsins, Landssambands
íslenskra útvegsmanna, Bændasamtaka
Íslands og Samtaka iðnaðarins auk annarra
samtaka sem tengjast atvinnulífinu.
Mikill vilji var til þess meðal fundar-
manna að taka þátt í samráðsferli, og verður
næsti fundur væntanlega haldinn í dag.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
virtust fundarmenn sammála í andstöðu
sinni við að auðlindamálin yrðu færð
undir umhverfisráðuneytið. Skiptar skoð-
anir voru hins vegar um sameiningu
sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðar-
ráðuneytis í eitt ráðuneyti.
Vilja ekki auðlindamálin
yfir í umhverfisráðuneytið
Skiptar skoðanir eru innan samtaka sem tengd eru atvinnulífinu um sameiningu ráðuneyta í atvinnuvega-
ráðuneyti. Almenn andstaða virðist vera í atvinnulífinu um færslu auðlindamála til umhverfisráðuneytis.
HAFRANNSÓKNIR Verði auðlindamál færð til umhverfisráðuneytisins munu stofnanir á borð við Hafrannsókna-
stofnun Íslands og Matís flytjast þangað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHLEM
Frekari uppstokkun á ráðuneyt-
um er ekki brýnasta verkefnið
sem ríkisstjórnin stendur
frammi fyrir, segir Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra.
Ögmundur vill forgangsraða
öðruvísi í starfi stjórnvalda og
bíða með umræður um samein-
ingu ráðuneyta í eitt atvinnu-
vegaráðuneyti, þótt hann
styðji flutning auðlindamála til
umhverfisráðuneytisins.
Kenningar hafa verið uppi um
að forystumenn ríkisstjórnarinn-
ar vilji fara í sameiningu ráðu-
neytanna sem fyrst þar sem
þar með muni Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, hverfa úr ríkisstjórn.
Hann hefur að mati margra
samráðherra verið óþægur ljár
í þúfu við aðildarviðræður að
Evrópusambandinu.
Ögmundur segist ekki vilja
dæma um hvort fyrirhugaðri
uppstokkun á ráðuneytum
sé beint gegn Jóni. „En því er
ekki að neita að í huga margra
er tenging þarna á milli, við
verðum að horfa raunsætt á
það.“ Hann segir ljóst að miklar
deilur séu um Evrópumálin
innan Vinstri grænna. Tengist
uppstokkun ráðuneyta inn í
þau mál eigi að stíga varlega til
jarðar.
Ekki brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar
Bændasamtökin og útvegsmenn eru
alfarið á móti sameiningu þessara ráðu-
neyta. Skiptar skoðanir eru innan aðildar-
félaga Samtaka atvinnulífsins og hafa
samtökin sem slík ekki myndað sér skoðun.
Innan annarra samtaka úr atvinnulífinu er
almennt stuðningur við slíka sameiningu.
brjann@frettabladid.is
Hefur þú verið bólusett(ur) við
svínaflensu?
Já 53,9%
Nei 46,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Tekur þú mark á spádómum
dýra um úrslit íþróttaleikja?
Segðu þína skoðun á visi.is
SPIL Einn heppinn lottóspilari
var með allar tölur réttar í lottó-
útdrætti kvöldsins og er rúmum
17,2 milljónum króna ríkari fyrir
vikið. Vinningsmiðinn var seldur í
Tvistinum í Vestmannaeyjum.
Þá var einn með fjórar tölur
réttar auk bónustölunnar. Sá miði
var seldur í Kaupvangi á Egils-
stöðum. Hann fær tæpar 292 þús-
und krónur í sinn hlut. - jhh
Vann 17 milljónir í Lottó:
Var með allar
tölur réttar
KJÖRKASSINN