Fréttablaðið - 24.01.2011, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 24.01.2011, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 24. janúar 2011 Ítalska Heiti námskeiðs Kennsludagar Tími Tímabil Lengd ITALIANO 1 - Byr mán. og mið. kl. 18:30-20 2. - 28. febrúar 4 vikur ITALIANO 2 - L.K. mán. og mið. kl. 20-21:30 7. - 30. mars 4 vikur ITALIANO CONVERSAZIONE þriðjudaga kl. 20-21:30 1. feb. - 22. mars 8 vikur Spænska Heiti námskeiðs Kennsludagar Tími Tímabil Lengd ESPAÑOL 1 Byr þriðjud. og fim. kl. 18:30-20 3. febrúar - 1. mars 4 vikur ESPAÑOL 2 L.K. þriðjud. og fim. kl. 20-21:30 8. - 31. mars 4 vikur ESPAÑOL CONVERSACIÓN miðvikudaga kl. 20-21:30 2. febrúar - 23. mars 8 vikur Talmáls námskeið Heiti námskeiðs Kennsludagar Tími Tímabil Lengd ÞÝSKA mánudaga kl. 18:30-20 7. febrúar - 28. mars 8 vikur FRANSKA þriðjudaga kl. 20-21:30 8. febrúar - 31. mars 8 vikur ENSKA miðvikudaga kl. 20-21:30 9. febrúar - 30. mars 8 vikur Íslenska Course Weekdays Hours Period Length Costs ICELANDIC 1 - Mon. and Wed 18:30-20 2. Feb. - 29. March 8 Weeks 5.000 kr. ICELANDIC 2 - Tues and Thu. 18:30-20:00 1. Feb. - 23. March 8 Weeks 5.000 kr. ICELANDIC CONVERSATION Mond. and Thu. kl. 20-21:00 2. Feb. - 31. March 8 Weeks Free ALLAR UPPLÝSINGAR Á WWW.LINGVA.IS EÐA Í SÍMA 561-0315 VORÖNN SPRING SEMESTER 2011 ÖLL NÁMSKEIÐ K0STA 25.000 KR. … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Sparaðu með Miele Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár. Miele þvottavélar og þurrkarar eru framleidd til að endast. Alþingishúsið er ekki mikið fyrir hús að sjá. Það minnir okkur á að Reykjavík er bara fámennur bær með víðáttumikl- um úthverfum og litlum miðbæ. Það væri hægðarleikur að her- taka þetta hús, væru menn á þeim buxunum. Þyki einhverjum Alþingishúsið óárennilegt er það vegna þess að hugmyndin um alþingi er stór, sjálf hugmyndin um þingræði er máttug – hug- myndin um alþingi sem vett- vang þar sem kjörnir fulltrúar þjóðar innar leiða til lykta mál- efni okkar vekur virðingu. Sú virðing vaknar ekki af því að menn kalli hver annan hátt- virtan og hæstvirtan. Hún vakn- ar ekki af því að klæðast tiltekn- um fötum umfram önnur. Hún vaknar af ábyrgð þjóðkjörinna fulltrúa gagnvart þjóð sinni og löggjafarhlutverki sínu og þyki þjóðinni sér misboðið með fram- göngu þingmanna þá mótmælir hún – af virðingu fyrir alþingi. Síðustu mánuði ársins 2008 og fyrstu mánuðina 2009 söfn- uðust þúsundir manna kringum alþingi og mótmæltu því hvernig landinu hafði verið stjórnað. Það var í kjölfar þess að sjálft efna- hagskerfi landsins hrundi vegna óstjórnar, græðgi, vanhæfni, glámskyggni, eftirlitsleysis og ranghugmynda stjórnvalda sem sátu í skjóli alþingis. Hvers vegna alþingi? Af hverju fór fólk ekki og mót- mælti við bankahallirnar í Borgartúni? Eða höfuðstöðvar Baugs? Kannski vegna þess að lítið þýðir að fara að glæpa- manni og heimta að hann hætti að vera glæpamaður – ekki síst þegar hann býr í London og Lúxembúrg og á lystisnekkjum – það er hlutverk laganna varða að sækja slíka menn og láta þá standa fyrir máli sínu. En eins og marg oft hefur verið bent á: Á meðan 9-menningarnir eru ofsóttir heldur partíið áfram hjá 7-menningunum. Þrátt fyrir allt sýndu þessi mótmæli að fólk ætlaðist til ein- hvers af alþingi, vænti þess að eitthvað þýddi að mótmæla þar. Hvernig svo sem sjálfir alþingis- mennirnir hafa litið á sig þá leit mannsöfnuðurinn á Austur- velli þessa mánuði svo á að þetta væru kjörnir fulltrúar íslensku þjóðarinnar og nú þyrfti að vekja athygli þeirra á skyldum sínum – skyldum þessarar stofn- unar við þjóð sína. Mótmælend- urnir voru að sinna eftirlits- skyldum við alþingi. Þó að hrunkvöðlarnir tali allt- af um hrunið eins og náttúru- hamfarir er erfitt að gera sér í hugarlund skýrara dæmi um það hvernig stjórnvöld bregðast þjóð sinni en undanfara þessara atburða. Það var með öðrum orðum full ástæða til að skunda á Austurvöll og krefjast úrbóta. Það væri nærtækara að þjóð- in sýndi þeim sem þar voru í farar broddi einhvern þakklætis- vott en að standa þegjandi hjá á meðan níu fulltrúar mótmæl- enda verða fyrir ofsóknum þess sama embættis sem nýlega hætti rannsókn á augljósum innherja- svikum í viðskiptum með bréf í SPRON. Það var upplausnarástand. Æsingurinn var ógurlegur. Takt- föst mótmæli dundu á húsinu og svo vildi fólk komast inn og fara á áheyrendapalla alþingis- hússins, eins og almenningur hefur rétt á að gera. Þingverðir vörnuðu fólki leiðar, héldu fólki, duttu hver á annan, það var hrint og ýtt, hrópað, hnoðast fram og aftur – þetta voru hálf- gerðar ryskingar. En fráleitt að tala um árás. Þessu máli er haldið til streitu af óskiljanlegri þrákelkni. Sé ætlunin með þessum mála- rekstri að varðveita virðingu alþingis þá hefur hann þveröfug áhrif. Sú virðing fæst ekki með valdboði eða ofbeldisaðgerðum á hendur mótmælendum heldur með framgöngu þingmanna, trúnaði þeirra við kjósendur og þjóðarheill. Láru V. Júlíusdóttur, sérstök- um saksóknara í málinu, hefur í málflutningi sínum ekki geng- ið vel að sýna fram á það hver glæpurinn var, hver framdi glæpinn, gegn hverjum glæpur- inn beindist, hver hagnaðist á glæpnum. Beit einhver vald- stjórnina þar sem hann lá í gólf- inu haldið af fimm löggum? Má vera og kannski er það satt að einhverjir hafi sýnt óhlýðni við valdstjórnina. Óhlýðni getur verið til marks um óraunhæf- ar skipanir og hún getur verið hvimleið en hún er ekki glæpur og á ekki að vera tugthússök. Hver er þá glæpurinn? Hvar er hann? Í Breiðholtinu skilst manni. Lára hefur í málflutn- ingi sínum þurft að fara í mjög einkennilegan leiðangur upp í Breiðholt til að leita að glæpn- um sem hún finnur ekki í Alþingishúsinu. Þar braust hópur raunverulegra glæpa- manna inn á heimili í Keilufelli á skírdag 2008 og voru menn- irnir samkvæmt fréttum vopn- aðir gaddakylfum, járnrörum, hömrum, sleggjum, hafnabolta- kylfum, exi, hnífum og golf- kylfum. Þessi fólskulega árás í Keilu- felli er hjá sérstökum saksókn- ara lögð að jöfnu við það þegar hópur fólks vill í upplausnar- ástandi nýta sér rétt sinn til að fara á áheyrendapalla alþingis – en fær ekki og er haldið af laganna vörðum með tilheyr- andi stimpingum. Þau örkuml sem hlutust af vopnum árásar- mannanna í Keilu felli eru að mati sérstaks saksóknara sam- bærileg við það þegar einn þingvörður dettur á annan sem fyrir vikið dettur á ofn. Það unga fólk sem hér er ákært fyrir að ætla að nýta sér lýðræðislegan rétt sinn til að fara á áheyrendapalla alþing- is, en var meinuð innganga, er í málflutningi sérstaks saksókn- ara lagt að jöfnu við atvinnu- glæpamenn með alvæpni sem rjúfa heimilis grið á varnar- lausu fólki. Æsingurinn var ógurlegur. Taugarnar voru þandar hjá starfsfólki alþingis og kannski ekki að undra að það skyldi bregðast harkalega við því sem það áleit árás á þessa stofnun. En þetta var ekki árás. Eina áhlaupið í alþingishúsinu þann 8. desember 2008 var að þingverðir hlupu á sig. Það áhlaup stendur enn. Áhlaupið á Alþingi Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Þessu máli er haldið til streitu af óskiljan legri þrákelkni. Sé ætlunin með þessum málarekstri að varðveita virðingu alþingis þá hefur hann þveröfug áhrif. Sú virðing fæst ekki með valdboði eða ofbeldisaðgerð- um á hendur mótmælendum heldur með framgöngu þingmanna, trúnaði þeirra við kjósendur og þjóðar- heill.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.