Fréttablaðið - 24.01.2011, Blaðsíða 18
24. janúar 2011 MÁNUDAGUR2
MEIRA ÚRVAL - LÆGRA VERÐ
AF ÖLLUM INNRÉTTINGUM
25% AFSLÁTTUR
w
w
w
.fr
ifo
rm
.is EINNIG ÚRVAL RAFTÆKJA Á FRÁBÆRU VERÐI
PRÓTÍNBOMBUR!
Samkvæmt skýrslu Matís er
harðfiskur hollari en áður var talið.
Langhollasti þorramaturinn.
Fæst í Bónus
H R E I N Í S L E N S K F Æ Ð U B Ó T
„Í nýju bókinni verða upp-
skriftir að sparilegri flíkum sem
henta íslensku sumri, peysur,
kjólar og sjöl,“ útskýrir Patrick,
sem lærði að prjóna sem barn af
móður sinni. „Mamma kenndi
systrum mínum að prjóna og
ég lærði það þá líka. Ég byrjaði
þó ekki að ráði fyrr en ég flutti
hingað til Íslands frá Svíþjóð
árið 2001. Rússneska heklinu,
sem er hálfgerð blanda af hekli
og prjóni, kynntist ég svo í
prjónakaffi hjá Nálinni á Lauga-
veginum en langamma mín, sem
var mikil hannyrðakona, „prjón-
aði“ með einni nál sem mér
fannst mjög skrítið sem krakki
en nú geri ég það sjálfur.“
Þegar það berst í tal að
óvenjulegt sé að karlmenn
sökkvi sér ofan í hannyrðir eins
og prjónaskap segir Patrick
hlæjandi að hann hafi þó verið
með nokkrum körlum í prjóna-
kaffi. Það geti verið að rúss-
neska heklið höfði til karla þar
sem það sé grófara en venjulegt
prjón.
Patrick segist hafa fallið fyrir
íslenska lopanum, bæði vegna
þess hve litaúrvalið sé fjölbreytt
og eins vegna þess hve lopinn sé
ódýr hér miðað við í heimalandi
hans. Honum fellur sjaldan verk
úr hendi og er duglegur að hekla
á fjölskyldu og vini.
„Ég hef heklað jakka á
mömmu og sjal á systur mínar
og mágkonur. Oft hekla ég sýnis-
horn af nýrri uppskrift í litlum
stærðum og þá gef ég flíkina
einhverjum sem hún passar.
Rússneska heklið er ekki sein-
legra en venjulegt prjón, sér-
staklega ekki þegar ég er að
hekla eitthvað nýtt og með mörg-
um litum. Í ullarteppinu eru svo
margir litir að ég verð alltaf
glaður þegar ég breiði það á mig.
Sérstaklega er gott að nota það
ef ég ligg veikur, litirnir hressa
mig við.“
Patrick kennir rússneskt hekl
á námskeiðum á vegum Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands.
heida@frettabladid.is
Straujárn til forna voru gerð úr smíðajárni. Járnplat-
an var flöt með handfangi og var platan hituð í eldi.
Rafmagnsstraujárnið var fundið upp árið 1882.
Patrick fellur sjaldan verk úr hendi og
situr við hannyrðir hverja lausa stund.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Létt og sumarlegt sjal sem Patrick
heklaði á mágkonu sína.
MYND/PATRICK HASSEL ZEIN
Patrick féll meðal annars fyrir litunum
í íslenskum lopa. Fjólublátt sjal með
rússnesku hekli eftir Patrick.
Björg í bú er fyrirtæki
sem vinnur meðal
annars að matarhönn-
un, en síðast sendi
það frá sér kjötbretti
fyrir jól. „Innblásturinn
fengum við af gömlu
nautaskrokksmynd-
inni sem hékk gjarnan
fyrir ofan kjötborðið
í verslunum hér áður
fyrr, þessari sem sýnir
hvernig á að sneiða skrokkinn niður,“ segir Edda Jóna Gylfadóttir, einn
þeirra þriggja vöruhönnuða sem standa að baki Björg í bú, og bætir við að
brettið endurspegli í raun myndina. „Línurnar á brettinu minna á þær sem
eru á teikningunni og drekka að auki safann úr kjötinu í sig þegar það er
sneitt niður.“ Brettið fæst meðal annars í Epal, Kirsuberjatrénu og Mýrinni
í Kringlunni.
Niðurskorinn nautaskrokkur innblástur
BJÖRG Í BÚ SENDI FRÁ SÉR NÝJA OG SKEMMTILEGA VÖRU FYRIR JÓL.
Mislyndissófinn eða
Moodycouch heitir
þessi sófi eftir unga
þýska hönnuðinn
Hanna Emelie Ern-
sting. Áklæði sófans er
mun stærra en sófinn
og því hægt að móta
það eftir hug notand-
ans hverju sinni.
dezeen.com
Framhald af forsíðu
M
YN
D
/P
AT
R
IC
K
H
A
SS
IL
-Z
EI
N