Fréttablaðið - 24.01.2011, Page 34
24. janúar 2011 MÁNUDAGUR18
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með
auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í
Reykjavík.
Vatnsstígur 4, Laugavegur 33, 33A
og 33B og Laugavegur 35, breyting
á deiliskipulagi.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Frakkastígsreits,
reits 1.172.1 sem markast af Laugavegi, Vatnsstíg,
Hverfisgötu og Frakkastíg.
Breytingin felst í að gert er ráð fyrir verndun
timburhúsa að Laugavegi 33 og 35 og steinhúss að
Laugavegi 33B sem snýr gluggahlið að Vatnsstíg
(hús með steyptu þaki). Gert verður ráð fyrir að
rífa steypta viðbyggingu austan við timburhúsið
Laugaveg 33 sem verður fært til austurs sem
því nemur. Við Vatnsstíg verður opið svæði til
almenningsnota en tilgangur með flutningi
hússins er aðallega að tengja þetta svæði betur
Laugaveginum. Lóðirnar Laugavegur 33 og 35
verða sameinaðar í eina lóð. Heildarbyggingarmagn
á lóðunum er nánast óbreytt, en minnkar þó
talsvert ofanjarðar. Aðaluppbyggingin verður bakatil
á lóðunum meðan byggingarmagni er haldið í
lágmarki næst götu. Eins og í gildandi deiliskipulagi
er áfram gert ráð fyrir að húsin að Vatnsstíg 4 og
Laugavegi 33A (stendur við Vatnsstíg) víki fyrir
nýbyggingu. Samkvæmt deiliskipulagstillögunni
skal nýbygging þessi taka mið af hlutföllum húsa
andspænis henni við Vatnsstíg og um leið að styrkja
götumyndina. Mögulegt verður að gera bílakjallara
með aðkomu frá Vatnsstíg.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar
að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20
– 16:15, frá 24. janúar 2011 til og með 7. mars
2011. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins,
www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 7. mars
2011. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir
innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem
eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 24. janúar 2011
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Íbúafundur
Breyting á aðal- og deiliskipulagi
fyrir Vísindagarða HÍ
Samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr.
40. gr. í skipulagslögum nr. 123/2010 skal kynna
skipulagstillögur og forsendur þeirra fyrir íbúum
sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum, á
almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Þriðjudaginn 25. janúar
verður því haldinn kynningar- og samráðsfundur
með öllum þeim sem áhuga hafa á breytingum
á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags á lóð
Vísindagarða Háskóla Íslands austan Oddagötu.
Fundurinn verður haldinn í stofu 102 á
Háskólatorgi og hefst hann kl. 16:45
Fulltrúar frá skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkurborgar og skipulagsráðgjafar
munu kynna forsendur og markmið þeirrar
deiliskipulagstillögu sem unnið er að. Að lokinni
kynningu verða umræður um tillögurnar, spurningum
svarað og fundarmönnum gefinn kostur á að koma
með athugasemdir og ábendingar.
Í kjölfar fundarins verður lögð lokahönd á
deiliskipulagstillöguna sem lögð verður fram í
skipulagsráði og borgarráði til að taka ákvörðun
um formlega kynningu.
Skipulagsstjórinn í Reykjavík.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
TilkynningarTilkynningar
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Meiri Vísir.
Úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í margfalt betri upplausn en áður og með
góðu aðgengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu með öllu því
sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á nýjum Vísi.
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook
geta unnið óvænta vinninga í hverri viku.
www.frettabladid.is | 512 5000
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á visir.is eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
GÓÐAR
FRÉTTIR
FYRIR
VESTUR-
LAND
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 31 stað
á Vesturlandi og 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing.
Vesturland
Fjöldi lausasölustaða á Vesturlandi
Bónus, Akranesi
Krónan, Akranesi
N1 verslun, Akranesi
Olís, Akranesi
Samkaup Strax, Akranesi
Bónus, Borgarnesi
Olís, Borgarnesi
Samkaup, Hyrnunni, Borgarnesi
Samkaup Úrval, Borgarnesi
Munaðarnes, Borgarnesi
Samkaup Strax, Bifröst
Verslunin Baulan, Borgarfirði
Hönnubúð, Reykholti, Borgarfirði
Bónus, Stykkishólmi
Olís, Stykkishólmi
Hrannarbúðin, Grundarfirði
Samkaup Úrval, Grundarfirði
N1 verslun, Ólafsvík
Olís, Ólafsvík
Hraðbúð N1, Hellissandi
Shell/Vélsmiðja Árna Jóns, Hellissandi
Samkaup Strax, Búðardal
Bónus, Ísafirði
Hamraborg, Ísafirði
N1 þjónustustöð, Ísafirði
Samkaup Úrval, Ísafirði
Olís, Bolungarvík
Samkaup Úrval, Bolungarvík
Skeljungur, Bolungarvík
N1 Flateyri
N1 Þingeyri
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Auglýsingasími