Fréttablaðið - 24.01.2011, Page 35

Fréttablaðið - 24.01.2011, Page 35
Sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr þróunar- fjárframlagi til hrossaræktar. Markmið styrkveitinganna er að efla þróun og ræktun íslenska hestsins og fylgja þannig eftir árangri þeim er náðst hefur í aukinni fagmennsku í hrossarækt og þjálfun íslenska hestsins. Styrkhæf eru hverskonar verkefni er lúta að: A. Kynbótum hrossa, fóðrun þeirra eða meðferð. B. Tamningum og þjálfun hrossa sem stuðla að auknum árangri og ávinningi. C. Kynningar- og nýsköpunarstarfi. Lögð er megin áhersla á að styrkja átaks- og nýsköpunar- verkefni sem geta orðið sjálfbær eftir að þróunartímabili þeirra lýkur, útgáfu- og kynningarstarfsemi og hagnýtar rannsóknir. Samkvæmt fjárlögum ársins 2011 hefur sjóðurinn til ráðstöfunar 6 milljónir króna. Umsóknir skulu berast ráðuneytinu eigi síðar en 15. febrúar 2011. Í umsóknum skal gerð skýr grein fyrir verkefninu sem í hlut á; markmiði þess, framkvæmdaáætlun og ætluðum ávinningi. Hverri umsókn skal fylgja greinargóð kostnaðar- áætlun. Póstfang: Þróunarfjárnefnd hrossaræktarinnar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu Skúlagötu 4 150 Rekjavík. Nánari upplýsingar veitir: Kristinn Hugason í síma 545 8300, tölvufang: kristinn.hugason@slr.stjr.is Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Útboð Styrkir Tilkynningar Auglýsingasími

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.