Fréttablaðið - 26.01.2011, Page 26
26. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR18
Ástkær eiginmaður minn,
Jónas Magnússon,
húsasmíðameistari,
áður til heimilis að Rauðalæk 32,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 22. janúar sl.
Sigríður Þorkelsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför okkar ástkæra
Baldurs Björnssonar
múrara.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilunum
Vífilsstöðum og Mörk fyrir frábæra umönnun sem
léttu honum lífið síðustu æviárin. Guð blessi ykkur öll.
Jóna Guðný Þorsteinsdóttir
Guðný Baldursdóttir
Kristbjörg Baldursdóttir
Guðmundur Baldursson
Björn Þór Baldursson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Guðbjörnsson
bifreiðastjóri Sóleyjarima 11,
lést á Landakoti sunnudaginn 23. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Þórdís Haraldsdóttir
Ingveldur J. Gunnarsdóttir
Kristján Á. Gunnarsson Hafdís Jónsdóttir
Hilmar B. Gunnarsson
Haraldur Gunnarsson Katrín Steingrímsdóttir
Gunnar G. Gunnarsson Jóna Kr. Rögnvaldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Kristín Laufey
Ingólfsdóttir
húsfreyja Brávallagötu 26,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 22. janúar. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 28. janúar
kl. 13.00.
Margrét Margeirsdóttir
Lilja Margeirsdóttir
Guðjón Margeirsson Margrét Jónsdóttir
Ingólfur Margeirsson Jóhanna Jónasdóttir
Óskar H. Margeirsson Jóhanna Magnúsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Árni Helgason
frá Neðri-Tungu
Þórsgötu 1, Patreksfirði,
lést aðfaranótt sunnudagsins 23. janúar. Útförin fer
fram frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn
29. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á
Slysavarnadeildina Unni, Patreksfirði.
Anna Hafliðadóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn
Friðfinnur Friðfinnsson
frá Baugaseli, Tjarnarlundi 13c
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn 23. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Rannveig Ragnarsdóttir og fjölskylda
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Leifur Sædal Einarsson
Heiðarhorni 6, Keflavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, föstudaginn
21. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
föstudaginn 28. janúar kl. 14.00. Þeim sem vildu
minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Suðurnesja.
Oddný Guðbjörg Leifsdóttir Björn Ólafsson
Leifur Gunnar Leifsson Brynja Hjaltadóttir
Bryndís María Leifsdóttir Friðrik Friðriksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Vagn Kristjánsson
Boðaþingi 7 Kópavogi,
áður Fellsmúla 14 Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum fimmtudaginn 20. janúar.
Útför hans fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn
28. janúar kl. 11.00.
Svana H. Björnsdóttir
Kristján Vagnsson Hólmfríður Ingvarsdóttir
Björn Vagnsson
Stefán Vagnsson Guðveig S. Búadóttir
Hreinn Vagnsson Guðrún Sverrisdóttir
Birgir Vagnsson Kristín Kristinsdóttir
Gunnar Vagnsson Elísabet H. Sigurbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Guðmunda Þ.
Guðmundsdóttir
frá Núpi í Fljótshlíð, Kleppsvegi 52,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 17. janúar, verður
jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 27. janúar kl. 15.
Katrín Guðmannsdóttir Steingrímur Guðjónsson
Matthildur Guðmannsdóttir Þórir S. Magnússon
Olga Steingrímsdóttir
Guðmann Þórisson
Birgir Þórisson
Katrín Steina Olgudóttir
Íslenska listakonan Hrafnhildur Arnar-
dóttir hlýtur stærstu textílverðlaun
Evrópu, The Nordic Award in Textiles,
sem hljóða upp á 250 þúsund sænskar
krónur.
Hrafnhildur, sem býr og starfar
í Brooklyn í New York, hefur vakið
athygli fyrir sérstæð verk sín úr gervi-
hári og mannshári. Hún hefur haldið
einkasýningar víða um heim, til dæmis
í hinu fræga MoMa og tekið þátt í fjöl-
mörgum samstarfsverkefnum. Hún
heldur góðu sambandi við íslenskan
uppruna sinn og heldur reglulega sýn-
ingar hér á landi. Mesta athygli hefur
hún vakið fyrir hárskúlptúra sem hún
bjó til fyrir söngkonuna Björk og sjást
á umslagi pötu hennar Medúllu en
einnig hafa verk hennar verið söngkon-
unni Lady Gaga innblástur í ótrúlegar
hárgreiðslur.
Hrafnhildur, sem einnig er þekkt
undir nafninu Shoplifter, er stödd í Sví-
þjóð: „Það vildi svo skemmtilega til að
ég fékk tilkynningu um þessi verðlaun
á afmælisdaginn minn,“ segir Hrafn-
hildur glöð í bragði. „Þetta er mikill
heiður og varla hægt að fá meiri við-
urkenningu fyrir vinnu sína,“ segir
Hrafnhildur sem kom á óvart að verða
fyrir valinu. „Mér skilst að í valinu hafi
verið litið til þess hvort listamaðurinn
hafi getað aukið framgang textílhefð-
arinnar í myndlistarlegu samhengi. Ég
hef unnið mikið með hár sem er þráður
og fellur því algerlega undir textíl en
innblástur hef ég fengið frá sænskum
hárblómum og einnig frá veggteppum
og vefnaði,“ segir hún.
Hún segir verðlaunin hafa tölu-
verða þýðingu fyrir sig. „Þetta er
mikil kynning á verkum mínum í Evr-
ópu og Skandinavíu þar sem ég hef
lítið sýnt. Þetta er líka hvatning til að
halda áfram og vinna hörðum hönd-
um að næstu verkefnum,“ segir hún
en 250 þúsund sænskar krónur koma
sér einnig vel. „Þannig hefur maður
kannski efni á að gera ýmislegt í vinn-
unni sem ekki var peningur fyrir áður,
nota efni eða aðferðir sem eru dýrar.“
Árið 2011 verður annasamt hjá
Hrafnhildi. Þegar hún snýr aftur til
New York mun hún klára hárbún-
ing sem hún vinnur með Eddu Guð-
mundsdóttur stílista fyrir fatahönnuð-
inn Bartlett, sem er með fatamerkið
VPL. „Síðan er ég að vinna að sýningu
í Hönnunarsafni Íslands fyrir Hönn-
unarmars en þar mun ég sýna hvern-
ig myndlistin mín hefur ratað í aðra
geira,“ segir hún. Þá hefur Norræna
húsið ráðið hana sem sýningarstjóra
fyrir næsta Nordic Fashion Biennale,
sem verður haldið í Seattle í Banda-
ríkjunum í september. „Þá vel ég hönn-
uði sem sýna skartgripi og tísku frá
Grænlandi, Færeyjum og Íslandi.“
Hrafnhildur mun taka á móti Nord-
ic Award in Textiles í Åhaga-tónlist-
arhúsinu í Borås í Svíþjóð í nóvember
á þessu ári. Á sama tíma opnar sýn-
ing á verkum úr smiðju Hrafnhildar í
Textílsafninu á sama stað. „Hér er frá-
bær sýningaraðstaða og margir mögu-
leikar í boði. Ætli ég sýni ekki lykil-
verk mín en svo ætla ég líka að vinna
glæný verk sérstaklega fyrir þessa
sýningu. - sg
Hlýtur evrópsk textílverðlaun
HESTUR Eitt af verkum Hrafnhildar sem unnið
er úr hári.
MEDÚLLA Hrafnhildur hefur unnið fyrir Björk,
meðal annars að umslagi plötunnar Medúllu.
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR Listakonan hlýtur eftirsótt evrópsk textílverðlaun sem hljóða
upp á 250 þúsund sænskar krónur.