Fréttablaðið - 26.01.2011, Qupperneq 28
20 26. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Ég hef sjaldan verið jafn drjúgur með mig og hinn 22. ágúst 2008. Daginn sem
Íslendingar unnu Spánverja í undanúrslita-
leik í handbolta á Ólympíuleikunum í Pek-
ing.
ÉG fylgdist með leiknum á veitingahúsinu
Vegamótum á Bíldudal. Ég man að skömmu
fyrir leik hitti ég Jón Kr. sem er einn ást-
sælasti listamaður okkar Bílddælinga.
Hann sat þá að snæðingi en ég spurði hvort
hann ætlaði ekki að horfa á leikinn. Hann
svaraði einhvern veginn á þessa leið:
„HORFA á leikinn? Hvað koma þessir
handboltapungar oft að horfa á mig?”
Mig rak ekki minni til þess að þeir
hefðu nokkurn tímann gert það. „Nei,
það er nefnilega það,“ sagði Jón Kr.
og sneri upp á sig. Þótti mér þetta vel
mælt hjá nafna en afréð þó að horfa
á leikinn.
ÞEGAR nokkrar mínútur eru
eftir og ljóst orðið að Ísland
muni gjörsigra Spanjólana
kemur hópur spænskra
ferðamanna á Vegamót
að fá sér Bíldudals-
bacalao. Að öðrum eins
hvalreka hafði ég ekki
orðið vitni í Arnarfirði.
Ég vind mér að hópnum til
að gamna mér og spyr samkvæmt íslenskri
hefð hvernig fólkið kunni við landið.
SÍÐAN benti ég þeim á að ekki væri nóg
með að hlíðin væri fögur og landkostir
góðir heldur byggju hér kappar miklir eins
og til dæmis þeir sem nú væru að taka
spænska landsliðið í karphúsið. Var mér
skemmt en þeim síður og féll tal okkar
niður.
SÍÐASTLIÐINN mánudag var síðan komið
að reikningsskilum. Þá var ég á Azahara-
kránni í spænska bænum Priego de Cór-
doba. Ég var einn innan um Spánverjana,
meira að segja íslenska bjartsýnin yfirgaf
mig strax í fyrri hálfleik. Varð ég því að
sitja undir gorti álíka því og ég hafði við-
haft á mínum heimaslóðum síðsumars
árið 2008. Ekki nóg með það heldur fékk
ég annan skammt af slíku þar sem ég hélt
tölu í framhaldsskóla í bænum síðar um
daginn. Kom ég þar sem gestakennari í
sagnfræði. Þurftu nemendur að hafa mörg
orð um ófarir landa minna fyrr um daginn.
Síðan rakti ég samband Íslands og Spánar
í gegnum tíðina. Er það mál manna að ég
hafi talað um Spánverjavígin af mikilli
innlifun.
MISKUNNARLAUS reikningsskil eftir
heimskulega typpastæla; sá er jafnan endir
á Íslendingasögum.
Viðureign mín og Spánverja
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. óskiptu, 6. fíngerð líkamshár, 8.
slæða, 9. skammstöfun, 11. í röð, 12.
bik, 14. hvíld, 16. til, 17. drulla, 18.
goð, 20. ekki heldur, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. bæli, 3. tveir eins, 4. land, 5. sár,
7. ósagður, 10. vöntun, 13. bein, 15.
felldi tár, 16. temja, 19. tveir eins.
LAUSN
Í guðanna bænum!!
Þú getur hætt að segja
mér að ég verði veikur
ef ég borða hráan
kjúkling! Ég næ þessu,
ókei!?!
Ég er ekki að rugla
í þér! Nýja græjan
hjá Haraldi er
postulínshásæti!
Klósett
er bara
klósett.
Nei, nei! Þarna siturðu
á fyrsta farrými, vinur
minn! Við erum að tala
um nýjustu græjurnar!
Trúðu mér! Þú getur
meira að segja skilað
kebabúrganginum úr
þér á virðulegan hátt
þarna!
Blessaður,
Haraldur! Langt
síðan við höfum
sést!
Í alvöru
talað Palli!
Af hverju
svararðu ekki
í símann??
Ég hef aldrei
verið hrifinn af
svona gömlum
tækjum með
snúru.
Ring!
Ring!
Ring!
Ring!
Ring!
Ring!
Ring!
Ring!
Ring!
Davíð átti fimm hundr-
uð krónur og fimm vini.
Hann gaf tveimur vinum
hvorum sinn hundraðkallinn
og þremur vinum ekkert.
Hvað átti Davíð
mikið eftir? Tvo vini.
Ég held að
vandamálið
snúist um
peninga.
Það er
einmitt það
sem þrír
fyrrverandi
vinir hans
hafa sagt.
LÁRÉTT: 2. öllu, 6. ló, 8. lín, 9. etv,
11. bd, 12. tjara, 14. áning, 16. að, 17.
for, 18. guð, 20. né, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. flet, 3. ll, 4. líbanon, 5.
und, 7. ótjáður, 10. van, 13. rif, 15.
grét, 16. aga, 19. ðð.
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
„Þessi leiksýning hefur allt
sem þarf til að skapa vel heppnað
og eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.
„Critics choice“
Time Out, London
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
SÝNT Í JANÚAR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI HALLDÓR
BALDURSSON
Meiri Vísir.
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja
„like“ við Vísi á Facebook geta unnið
óvænta vinninga í hverri viku.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!