Fréttablaðið - 09.02.2011, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Miðvikudagur
skoðun 16
Suðrænar strendur með sól og yl í bland við menningar-borgir með ótal möguleikum til afþreyingar eru í boði á áfangastöðum Úrvals Útsýnar í ár. Stærsta ávaxtakista Evrópu og eini regnskógur álfunnar eru og innan seilingar.
Eftir að hafa komið landsmönnum á skíði í Alpana lítur Þorsteinn Guð-jónsson, framkvæmdastjóri Úr-vals Útsýnar, fram á vorið og sum-arið og er inntur eftir nýjungum í ferðaframboði. Hann nefnir fyrst Orlando. „Það er svolítið nýtt fyrir Íslendinga að fá pakkaferð til Flór-ída. Þarna erum við með f
stjóra sem tekur á móti fólkinu á flugvellinum og þaðan bjóðum við upp á akst-ur í gistinguna sem bæði getur verið á hótel-um í miðbænum eða í húsum utan borgarinnar en þá mælum við með að fólk hafi bíl til að geta farið í búð að versla,“ lýsir hann.
Lloret de Mar er nýr áfangastað-ur hjá Úrvali Útsýn. Sá tilheyrir gullnu ströndinni Costa Brava viðBarcelona St ð
risahótel,“ segir Þorsteinn. „Matar-gerðarlistin er í hávegum og óvíða fyrirfinnast fleiri Michelin-staðir. Að hafa svo hina heillandi borg Barcelóna í bakgarðinum býður upp á mikla möguleika.“ Önnur nýjung er Almería á Spáni, „falda perlan við Miðjarðar-hafið,“ eins og Þorsteinn orðar það. Ekki langt frá Costa del Sol. „Þetta er gríðarlega skemmtilegt svæði sem við bindum vonir við,“ segir hann og nefnir að ávaxta- og græn-metiskista Evrópu sé á svæðinu í kring.
Tenerife er staður sem Ísle ding k
allt árið enda temprar golfstraum-inn niður hitann á sumrin og hitar upp á veturna. Maturinn er góður og það er hellingur við að vera.“Hæsta fjall Spánar með athyglis-verðum þjóðgarði og eina regnskógi í Evrópu er meðal þess sem setur svip á Tenerife. „Þar er líka mikil afþreying fyrir alla fjölskylduna, vatnagarðar og fleira slíkt,“ segir Þorsteinn og heldur áfram. „Svo er gaman að kynnast andstæðum eyjanna. Lansarote er eldfjalla-eyja með eintómum vikri en ekki tekur nema hálftím ð
Faldar og fjarlægar perlur
Þorsteinn er
framkvæmdastjóri Úrvals Útsýnar.
Ekki er að efa að Tenerife er staður sem Íslendingar kunna vel að meta eins og Þorsteinn segir.
● Sala á ferðum í sólina fer einstaklega vel af stað hjá Úrvali Útsýn og mun meiri eftirspurn er eftir þeim í ár en í fyrra.
● Nýir áfangastaðir Úrvals Út-sýnar á Spáni vekja athygli landsmanna. Annar þeirra er Almería í austurhluta Andalúsíu. Þar eru heima-menn í meirihluta og einn-ig meðal gesta svo sérkenni spænskrar menningar, hvít-kölkuð hús, elskulegt fólk og seiðandi flamenco-tónlist ein-kenna staðinn.
● Annar nýr staður sem Úrval Útsýn er með ferðir til í sumar er Lloret de Mar á Costa Brava ströndinni. Að-eins tekur klukkustund að fara með lest þaðan beint á Römbluna í Barcelona svo auðvelt er að sameina sólar- og borgarferð.
● Tenerife er vinsælasti sólar-áfangastaðurinn hjá Úrvali Útsýn. Hitastigið á eyjunni er 28 til 32°C árið um kring.
● Apríl er yndislegur mánuður í Orlando á Flórída. Hitinn kringum 30 gráður og raka-stigið við hæfi Íslendinga. Pakkaferðir eru í boði þang-að á vegum Úrvals Útsýnar.
Eftirtektarvert
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 | KYNNING
9. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Að svífa um heiðloftin blá yfir Himalajafjöllunum er eftirlæti Hans Kristjáns Guðmundssonar.
Landslagið er
ólýsanlegt
Með fróðleik í fararnesti er yfirskrift reglulegra gönguferða sem Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands standa fyrir í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands. Næsta ferð er áætluð laugardaginn 12. febrúar en þá mun Pétur Ármannsson arkitekt leiða þátttakendur um miðbæinn til að skoða byggingar Guðjóns Samúelssonar. Ferðin hefst við Alþingishúsið klukkan 14.
Boníto ehf. Praxis, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opið mán. – fim.
kl. 11–17
fös. og lau.
kl 11–16 Verona sportskór. Til í svörtu og hvítu. Stærðir 36-42. Verð 7.900 kr.
California, með hrágúmmísóla.
Til í svörtu og hvítu. Stærðir
35-46. Verð 12.990
Leðurskór. Svartir.
Verð á par 14.990 kr.
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Ferðir
veðrið í dag
9. febrúar 2011
33. tölublað 11. árgangur
FÓLK „Tilhneigingin virðist vera að kaupa íslenskt en
stela erlendu. Menn sjá U2 auglýsta, rjúka inn á vef-
inn og kaupa Sálina,“ segir Engilbert Hafsteinsson,
framkvæmdastjóri vefverslunarinnar Tonlist.is.
Íslendingar kaupa hlutfallslega minna af tónlist
á netinu en aðrar þjóðir. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins er hlutfall tónlistar sem keypt er á
netinu undir tíu prósentum af heildarsölunni meðan
hlutfallið á heimsvísu er 29 prósent, samkvæmt
nýrri skýrslu samtakanna IFPI.
Engilbert telur að Íslendingar séu tveimur árum á
eftir öðrum þjóðum í tónlistarverslun á netinu, þrátt
fyrir að þjóðin virðist vera afar tæknivædd á öðrum
sviðum. „Ég held að verðið spili líka inn í. Virðisauka-
skatturinn á tónlist er 25,5 prósent á niður hali en
bara sjö prósent á geisladiski,“ segir hann.
Vefverslunin iTunes, sem er á vegum Apple, er
stærsta tónlistarverslun heims. Verslunin er ekki
aðgengileg Íslendingum og engin áform eru um að
opna iTunes á Íslandi. - afb / sjá síðu 34
Íslendingar eru eftirbátar annarra þjóða í sölu á tónlist á netinu:
Stelum U2 frekar en Sálinni
Vinsæl í Austurríki
Íslenska hjómsveitin
Groundfloor nýtur aukinna
vinsælda í Austurríki.
fólk 34
KB / Morgunblaði
ð
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
www.europris.is
Rúðuvökvi
4 ltr, 12°C499
ÞOLINMÓÐIR HVUTTAR Þessir fallegu og vel klæddu hundar spókuðu sig ásamt fylgdarkonu
fyrir utan Landsbankann í Austurstræti síðdegis í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISMÁL Sóttvarnalæknir
hefur ákveðið að gera sérstaka
heilsufarsrannsókn á íbúum
þriggja sveitarfélaga vegna díoxín-
mengunar frá sorpbrennslum. Við-
líka rannsókn hefur aldrei verið
gerð áður hér á landi.
Þetta var niðurstaða fundar
vinnuhóps sem sóttvarnalæknir
kemur að auk fulltrúa Umhverfis-
og matvælastofnunar vegna
mengunar frá sorpbrennslum.
Fundað var í gær til að meta
hvernig bregðast skyldi við niður-
stöðum nýjustu mælinga þar sem
díoxín greindist í töluverðu magni
í kjöti, mjólk og fóðri hjá bændum
í nálægð við sorpbrennsluna Funa
á Ísafirði.
Eins og Fréttablaðið greindi
fyrst frá í janúar mældist díoxín
tuttugu falt yfir viðmiðunarmörk-
um hjá Funa árið 2007. Mælingar
í sorpbrennslunni á Kirkjubæjar-
klaustri á sama tíma sýndu díoxín
95-falt yfir mörkum og frá sorp-
brennslunni í Vestmannaeyjum
mældist 84 sinnum meira díoxín en
viðmiðunar mörk gera ráð fyrir.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
segir að ráðist verði í heilsufars-
rannsóknina til að hægt verði að fá
úr því skorið í eitt skipti fyrir öll
hvort fólk hafi orðið fyrir mengun
frá sorpbrennslunum. „Fram-
kvæmdin liggur ekki fyrir í smá-
atriðum en þetta verður gert í sam-
ráði við vísindamenn við Háskóla
Íslands. Við erum að skipuleggja
hvernig sýnin úr fólkinu verða
tekin.“
Haraldur segir að ekki þurfi endi-
lega að koma til þess að tekin verði
vefjasýni úr íbúum. „Hægt er að
taka blóð- og hársýni auk þess sem
það má sjá þetta í brjóstamjólk. Það
er hægt að kanna þetta frá ýmsum
hliðum og því vonumst við til þess
að fá góða mynd af raunverulegri
útbreiðslu díoxíns í fólki.“ Haraldur
segir ekki liggja fyrir til hversu
margra rannsóknin muni ná. Fyrst
verði teknar prufur úr völdum
hópum og framhaldið síðan metið.
Haraldur ítrekar að hann eigi ekki
von á að fólk hafi orðið fyrir heilsu-
tjóni af völdum mengunarinnar.
Hins vegar snúi rannsóknin, sem á
sér enga hliðstæðu hér á landi, að
því mikilvæga atriði að leita upp-
lýsinga um hvað gerðist í sveitar-
félögunum þremur. Rannsóknin
falli inn í allsherjarúttekt þar sem
Matvælastofnun muni meðal annars
gera sérstaka rannsókn á jarðvegi í
nágrenni við sorpbrennslurnar.
Enn er sorp brennt á skóla-
tíma í brennslustöðinni á Kirkju-
bæjarklaustri, sem er sambyggð
grunnskólanum og sundlauginni
á staðnum. Sveitarstjórinn Eygló
Kristjánsdóttir kvaðst í gærkvöldi
ekki geta svarað því hvort þess-
ar nýjustu fréttir hefðu áhrif á
fyrirkomulagið. Hún væri nýbúin
að frétta af málinu og væri ekki í
vinnunni. „Það verður sjálfsagt
skoðað á morgun. En það hefur svo
sem ekkert breyst hjá okkur við
þetta. Ég veit ekki hvað stjórnin vill
gera í ljósi aðstæðna og ætla ekki að
ákveða það.“ - shá
Hár- og blóðsýni skimuð við
leit að díoxínmengun í fólki
Sóttvarnalæknir ætlar að gera heilsufarsrannsókn á Ísafirði, Klaustri og í Vestmannaeyjum til að kanna
hvort fólk hefur orðið fyrir díoxínmengun. Óvíst hvort málið hefur áhrif á brennslu á skólatíma á Klaustri.
Hægt er að taka
blóð- og hársýni auk
þess sem það má sjá þetta í
brjóstamjólk.
HARALDUR BRIEM
SÓTTVARNALÆKNIR
VÍÐA SKAPLEGT Í dag verða
suðvestan 8-13 m/s, en SA 10-18
norðaustast. Slydda eða rigning
A-til, en skúrir og síðan él V-til.
Kólnandi veður.
VEÐUR 4
3
3
2
5
4
Álfar en engir draugar
Vertinn á Hesteyri hefur
fengið fjölda fyrirspurna
um draugagang vegna sögu
Yrsu Sigurðardóttur, Ég
man þig.
allt 2
Orkuboltinn í
Maryland-liðinu
Haukur Helgi Pálsson er
á fyrsta ári í bandaríska
háskólakörfuboltanum.
sport 30 VÍSINDI Vísindamenn hafa fengið
í hendurnar elsta bjórsýni sem
fundist hefur. Til stendur að
greina það, endurgera uppskrift-
ina og brugga hann á ný.
Bjórinn fannst á meðal ótal
kampavínsflaskna í skipsflaki í
Eystrasalti, undan Álandseyjum,
í fyrrasumar. Talið er að skipið
hafi farist í upphafi nítjándu
aldar. Landsstjórn Álandseyja
hefur nú fyrirskipað rannsókn á
uppskrift bjórsins en búist er við
að rannsóknin verði flókin og ekki
er víst að hún beri árangur.
Fjórir atvinnubjórsmakkarar
hafa þegar bragðað á bjórnum
og segja bragðið súrt, sem gæti
skýrst af gerjun, og ekki síst
gamalt, sem þótti svo sem ekki
óvænt. - sh
Fannst í skipsflaki í Eystrasalti:
Elsti bjór heims
bruggaður á ný