Fréttablaðið - 09.02.2011, Page 2
2 9. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
FÓLK „Það er ekki nema von að
menn séu hissa á því að verið sé
að sækja um vínveitingaleyfi
fyrir heilsustofnun,“ segir Ólafur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
NLFÍ hótel sem hefur fengið leyfi
til að selja vín á heilsuhælinu í
Hveragerði.
Náttúrulækningafélagið hefur
rekið heilsustofnunina í Hvera-
gerði í 55 ár. Ólafur segir að vegna
tíu prósenta niðurskurðar á fjár-
framlögum frá ríkinu þurfi að
grípa til óhefðbundinna ráða. Því
verði starfsfólkið allt sent samtím-
is í sex vikna frí og beðið að taka
sér hálfs mánaðar launalaust leyfi
að auki. Á meðan, frá 20. júní til
20. ágúst, verði rekið sumarhótel
fyrir almenna ferðamenn í hús-
næði stofnunarinnar. Það verð-
ur gert undir heitinu Hot Springs
Hotel.
„Þá kom upp ein stór spurning
sem hefur nú staðið í mörgum:
Eigum við að fara að bjóða upp á
öðruvísi mat og jafnvel vín? Þess
vegna sóttum við um þetta leyfi
til öryggis en við erum ekki alveg
búnir að taka lokaákvörðun um það
hvort við verðum með léttvín með
mat. Það eru náttúrlega ferðamenn
sem myndu nýta sér þetta. Ég er
hræddur um að þeir myndu ekki
sætta sig við kalda vatnið,“ segir
Ólafur.
Grænmetisfæði hefur verið
aðalsmerki Heilsustofnunarinnar.
Sveigt verður inn á aðrar braut-
ir á sumarhótelinu. „Við ætlum að
leggja miklu meiri áherslu á fisk-
inn sem við Íslendingar erum svo
stoltir af, heimatilbúinn mat
og auðvitað mikið af okkar
eigin grænmeti. Svo verð-
um við kannski með einn
kjötrétt – svona til þess
að mæta blóðþörfinni,“
segir framkvæmdastjór-
inn.
Að sögn Ólafs sparast
mest á því að ekki þurfi að
ráða fagfólk í afleysing-
ar auk þess sem mun
færra starfsfólk þurfi
til að sinna venjuleg-
um hótelrekstri miðað
við heilsustofnunina.
Í boði eru 180 rúm
í 110 herbergjum á
Hot Springs Hotel auk nokkurra
íbúða. Ólafur kveðst hafa kann-
að stöðuna hjá öðrum seljendum
gistiþjónustu á svæðinu og komist
að því að sumarhótelið muni ekki
trufla starfsemi þeirra.
„Sem betur fer erum við ekki að
keppa við neinn á Suðurlandi því
það er allt orðið fullt hjá þeim
í dag. Við ætlum ekki að vera
alltof ódýrir svo við sé ekki
ódrengilegir í samkeppni við
aðra,“ segir framkvæmda-
stjóri NLFÍ hótel.
gar@frettabladid.is
Svo verðum við
kannski með einn
kjötrétt – svona til þess að
mæta blóðþörfinni.
ÓLAFUR SIGURÐSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI NLFÍ HÓTELS
Hot Springs hótel með
áfengi á Heilsuhælinu
NLFÍ hótel sem rekur heilsuhæli Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði fær
leyfi til vínveitinga. Nýta á leyfið á svokölluðu Hot Springs hóteli þá tvo sumar-
mánuði sem hefðbundin starfsemi hælisins liggur niðri vegna niðurskurðar.
Í HEILSUSTOFNUN NLFÍ Mjög góð aðstaða er hjá Náttúrulækningafélaginu í Hvera-
gerði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓLAFUR SIGURÐSSON
Framkvæmdastjóri
NLFÍ hótels telur
almenna ferða-
menn ekki munu
sætta sig við að fá
aðeins kalt vatn að
drekka.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ingibjörg, er þetta nýi stíllinn?
„Já, nú verður að ganga í þetta og
koma hreyfingu á málið.“
Hreyfiseðlar hafa verið teknir upp í
ákveðnum tilvikum í stað lyfseðla í
Svíþjóð og hillir undir slíkt hér. Ingibjörg
H. Jónsdóttir, dósent í lífeðlisfræði og
varaforstöðumaður streiturannsóknar-
stöðvar í Gautaborg, sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær hreyfingu geta hentað
þeim sem hefðu ákveðna kvilla.
AFGANISTAN, AP Hamid Karzai, for-
seti Afganistans, segir að þegar
Afganar taka sjálfir við umsjón
öryggismála
verði nauðsyn-
legt að loka
þeim alþjóð-
legu herstöðv-
um, sem sinna
einkum upp-
byggingar- og
þróunarstarfi í
sveitum lands-
ins.
Hann segist
ekki krefjast þess að herstöðv-
unum verði lokað strax, heldur
jafnhliða því að Afganar taka við
öryggismálunum af fjölþjóðaher-
liðinu.
Sunset Belinsky, talskona fjöl-
þjóðahers Atlantshafsbandalags-
ins í Afganistan, segir að seinni
partinn í mars verði skýrt nánar
frá því hvaða fyrirkomulag verði
haft á því, þegar Afganar taka
við umsjón öryggismála. - gb
Forseti Afganistans:
Vill láta loka
herstöðvum
HAMID KARZAI
Frestur framlengdur
Umsagnarfrestur um orkustefnu fyrir
Ísland hefur verið framlengdur til 20.
febrúar. Nú þegar hafa á annan tug
umsagna borist frá einstaklingum og
fyrirtækjum. Síðari hluta árs 2009
skipaði iðnaðarráðherra stýrihóp til
að vinna að heildstæðri orkustefnu
fyrir Ísland. Vinna stýrihópsins er nú á
lokasprettinum.
UMHVERFISMÁL
EFNAHAGSBROT Ekki er útilokað að eftir ár
muni mál tengd öllum þeim fjármálafyrir-
tækjum sem farið hafa í þrot eða í gegnum
fjárhagslega endurskipulagningu verða í
skoðun hjá embætti sérstaks saksóknara.
Þetta segir Gunnar Andersen, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, FME.
Þetta á við um VBS fjárfestingarbanka,
Byr sparisjóð, Sparisjóðinn í Keflavík,
SPRON, Sparisjóðabanka Íslands, áður
Icebank, Askar Capital og fjármögnunar-
fyrirtækið Avant. FME mun á næstunni
senda eitt til þrjú mál til sérstaks sak-
sóknara.
Málin eru af svipuðum toga og þau sem
FME hefur þegar sent sérstökum saksókn-
ara. Þau varða grun um grófa markaðs-
misnotkun, innherjaviðskipti, ranga skýrslugjöf
og óheilbrigða vafasama viðskiptahætti.
Strax eftir fall stóru viðskiptabankanna þriggja
fékk FME óháða sérfræðinga til að gera athugun á
starfsemi þeirra og vinna skýrslu um málið. Slíkt
hið sama var gert í tilviki þeirra fyrir-
tækja sem fóru í slitameðferð eða í gegn-
um endurskipulagningu í kjölfarið.
Gunnar segir að á grunni skýrslnanna
séu einstök mál rannsökuð og þau send
áfram til sérstaks saksóknara ef tilefni
þykir til. Hjá FME starfa tvö rannsókn-
arteymi með þrettán manns og hafa þeir
aldrei verið fleiri. Gunnar segir líklegt
að þeim verði fjölgað um fjóra á næst-
unni.
FME hefur fram til þessa sent frá sér
54 mál til sérstaks saksóknara sem teym-
in hafa unnið og átti eftirlitið 60 prósent
mála sem lágu hjá embættinu um mitt
síðasta ár. Gunnar segir rannsókn FME
hvergi nærri lokið.
„Það eru mörg mál í vinnslu, að vísu er ekki búið
að skoða þau öll. Þetta er langt í frá að verða búið,“
segir Gunnar. Samkvæmt stefnuskjali FME mun
rannsóknum á falli bankanna ljúka á næsta ári.
- jab
Forstjóri FME segir mörg mál í rannsókn sem tengjast föllnum fjármálafyrirtækjum:
Allir grunaðir um efnahagsbrot
SEATTLE, AP Lögreglan í Seattle
handtók um helgina mann sem
er grunaður um rán í kjörbúð og
bensínstöð í borginni.
Það sem gerir málið sérstakt
er að ræninginn var afar kurteis
á meðan á ránunum stóð. Á
bensín stöðinni tók hann 300 dali
og sagðist þurfa peninga vegna
fjölskyldu sinnar. Áður en hann
yfirgaf staðinn lofaði ræninginn
svo að endurgreiða upphæðina ef
hann kæmi undir sig fótum á ný.
Upptaka úr öryggismynda-
vélum stöðvarinnar fór á netið og
vakti mikla athygli, en eftir það
barst lögreglu ábending um hvar
mætti finna meintan ræningja.
- þj
Grunaður um rán í Seattle:
Kurteisi bófinn
handtekinn
GUNNAR
ANDERSEN
NEYTENDUR Eigendur Brúneggs eru
nú að skoða þann möguleika að
setja vistvæna unghana sem mat-
vöru á markað.
Vistvænar unghænur frá Brún-
eggjum hafa verið seldar í verslun-
um Krónunnar, Nettó og í Melabúð-
inni, en það eru hænur sem hafa
lokið varpi.
Kristinn Gylfi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Brúneggja, segir
fyrirtækið nú vera að skoða hvort
hagur sé í því að ala upp hanana
og gera úr þeim vistvæna matvöru
þegar þeir hafa náð um 10 vikna
aldri.
Í eggjaframleiðslu er hönum
venjulega fargað.
„Þetta er verkefni sem við
höfum verið með til skoðunar hjá
okkur undanfarið,“ segir Krist-
inn. „Þetta yrðu minni kjúklingar
en gengur og gerist hér á landi og
mjög gott kjöt sem er nálægt líf-
rænum sjónarmiðum.“
Kjúklingarnir hjá Brúneggjum
eru aldir á vistvænu fóðri og
vaxa því mun hægar en hjá stærri
kjúklingaframleiðendum, þar sem
kjúklingarnir eru venjulega um 4
til 5 vikna gamlir þegar þeim er
slátrað.
„Við létum framleiða smávegis
af kjötinu fyrir okkur í janúar og
prófuðum okkur áfram,“ segir
Kristinn. „Það gafst mjög vel.“
Brúnegg hefur verið með egg á
markaði í tvö ár, frá hænum á gólfi
en ekki í búrum. Kristinn segir
vaxandi áhuga vera bæði á kjötinu
og eggjunum á markaðnum. Engar
salmonellusýkingar hafa komið
upp í framleiðslu Brúneggja.
Eins og kunnugt er uppgötvuð-
ust rúmlega 50 tilfelli af salmon-
ellusmiti á síðasta ári hjá þremur
stærstu kjúklingaframleiðendum
landsins. - sv
Brúnegg skoðar nú möguleika á að selja frjálsa unghana sem matvöru:
Vilja setja vistvænan kjúkling á markað
VISTVÆN BRÚNEGG Framkvæmdastjóri
Brúneggja segir mikla eftirspurn eftir
vistvænum eggjum og kjúklingakjöti.
FRÉTTABLAÐIÐI/GVA
HOLLAND, AP Réttarhöldunum
yfir Charles Taylor, fyrrverandi
einræðisherra Líberíu, ætlar
að ljúka með sama hætti og þau
hófust, nefnilega með því að sak-
borningurinn mætir ekki í réttar-
salinn og segir
réttarhöldin
ósanngjörn og
runnin undan
pólitískum
hvötum.
Courtenay
Griffiths, hinn
breski lögmað-
ur Taylors,
rauk út úr rétt-
arsalnum þegar dómararnir neit-
uðu að samþykkja sex hundruð
blaðsíðna samantekt hans á því
sem fram hefur komið í réttar-
höldunum undanfarin þrjú ár, frá
sjónarhóli hins ákærða.
Taylor neitaði sömuleiðis að
fara aftur inn í réttarsalinn eftir
næsta réttarhlé eftir þetta.
Taylor er sakaður um stríðs-
glæpi og glæpi gegn mannkyn-
inu. - gb
Stríðsglæpamáli að ljúka:
Taylor ekki við
lokasprettinn
CHARLES TAYLOR
Skokkari gaf sig fram
Maður sem réðst á tólf ára gamlan
dreng í Hveragerði í fyrrakvöld gaf sig
sjálfur fram við lögreglu í gær eftir að
lýst var eftir upplýsingum um málið í
fjölmiðlum. Hann býr á höfuðborgar-
svæðinu en hafði gert sér ferð til
Hveragerðis til að skokka þar um
götur. Hann mætti til skýrslutöku hjá
lögreglu á Selfossi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS
®