Fréttablaðið - 09.02.2011, Síða 19
9. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Þ
etta var alveg súperferð,“
segir Hans Kristján Guð-
mundsson um för sína til
Nepals nú í janúar með
svifvænginn sinn. Þar var hann í
þrjár vikur. „Það er vetur í Nepal,
hitastigið 15-20 gráður yfir daginn
en dettur niður undir frostmark
á nóttunni. Ferðamátinn hjá mér
gekk út á að fljúga af einu fjalli á
annað með hjálp uppstreymisins,
gista og halda áfram að kynnast
framandi slóðum,“ lýsir hann.
Hans Kristján rekur gisti-
heimilið Flying Viking á Ránar-
götu 10. Nafnið vísar að hluta til
í áhugamálið, svifvængjaflug.
„Maður þarf að vera svolítið
lunkinn í að finna uppstreymi, fara
eins hátt og maður getur og svífa
á næsta stað. Kosturinn við svif-
væng er sá að hægt er að pakka
honum saman og hann vegur ekki
nema 15-20 kíló,“ segir hann og
kveðst hafa haft með sér mat,
drykk, tjald og svefnpoka á ferðum
sínum um Himalajafjöllin. Ég
flaug meðal annars 50 kílómetra
hring sem yfirleitt er ekki floginn
á þessum árstíma. Yfir tvo fjall-
garða og til baka og var eitthvað
um þrjá klukkutíma í þeirri ferð,“
lýsir hann og kveðst hafa komist
upp í 4.500 metra hæð. „Lands-
lagið er ólýsanlegt og náttúra og
mannlíf heillandi enda er Nepal
Mekka útivistarfólks og á kvöldin
hitti ég ferðalanga hvaðanæva að
úr heiminum.“ gun@frettabladid.is
Að svífa um heiðloftin blá yfir Himalajafjöllunum er eftirlæti Hans Kristjáns Guðmundssonar.
Landslagið er
ólýsanlegt
MYND/ÚR EINKASAFNI
Með fróðleik í fararnesti er yfirskrift reglulegra gönguferða sem Háskóli
Íslands og Ferðafélag Íslands standa fyrir í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands.
Næsta ferð er áætluð laugardaginn 12. febrúar en þá mun Pétur Ármannsson
arkitekt leiða þátttakendur um miðbæinn til að skoða byggingar Guðjóns
Samúelssonar. Ferðin hefst við Alþingishúsið klukkan 14.
fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík,
Selfossi og Barðanum Skútuvogi
Startaðu betur í vetur
TUDOR rafgeymirinn er hannaður til að lifa allan
veturinn af. Forðastu óvæntar uppákomur.
TUDOR rafgeymar - betra start í allan vetur!
Boníto ehf. Praxis,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opið mán. – fim.
kl. 11–17
fös. og lau.
kl 11–16
Verona sportskór. Til í svörtu og hvítu.
Stærðir 36-42. Verð 7.900 kr.
California, með hrágúmmísóla.
Til í svörtu og hvítu. Stærðir
35-46. Verð 12.990
Leðurskór. Svartir.
Verð á par 14.990 kr.