Fréttablaðið - 09.02.2011, Qupperneq 23
ferðir ●MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 3
Fjölbreyttir og spennandi
áfangastaðir einkenna það úr-
val sem er í boði hjá Ferðaskrif-
stofunni VITA fyrir komandi
vor og sumar. Ber þar helst
að nefna nýjasta sólaráfanga-
staðinn, grísku draumaeyjuna
Korfu, en VITA verður með
beint flug þangað í allt sumar.
„Það hefur verið mikill vöxtur hjá
okkur síðustu tvö ár og eftirspurn
eftir ferðalögum er að aukast á ný.
Við fundum fyrir miklum þrýst-
ingi frá okkar viðskiptavinum um
að bjóða upp á nýjan áfangastað
næsta sumar og Korfu á Grikk-
landi er okkar svar við því,“ segir
Helgi Eysteinsson, framkvæmda-
stjóri Ferðaskrifstofunnar VITA
sem verður með beint flug til eyj-
unnar Korfu í allt sumar.
Korfu, sem liggur við mynni
Adríahafsins og er með útsýni til
meginlands Grikklands og Albaníu,
hefur lengi verið vinsæll áfanga-
staður meðal ferðamann frá öðrum
Norðurlöndum en það er ekki fyrr
en nú sem Íslendingum gefst kost-
ur á að sækja eyjuna heim.
„Það hefur verið ákveðið tóma-
rúm á markaðnum eftir að ferða-
skrifstofur hættu að vera með
beint flug til Krítar. Veðurfar
og andrúmsloftið á Korfu svipar
mikið til Krítar en munurinn felst
einkum í menningarþættinum,
þar sem ferðamenn á Korfu upp-
lifa skemmtilega blöndu af grískri
og ítalskri stemningu,“ útskýrir
Helgi.
Allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi á þessari grísku drauma-
eyju að hans sögn. Korfu iðar
af mannlífi allt sumarið og fjöl-
breytt afþreying er í boði. Til að
mynda er hægt að stunda köfun
við strendurnar og annað sjósport,
enda hafið hreint og tært. Þá eru
víða litlar, skemmtilegar bryggjur
lagðar út í víkur og flóa, þar sem
hægt er að njóta þess að sitja í sól-
inni.
Þá er í boði skemmtanalíf fyrir
alla aldurshópa. Sem dæmi finnst
ungu fólki á öllum aldri gaman að
heimsækja vatnagarðinn Aqualand
meðan fullorðnir gætu notið þess
að bregða sér út á lífið, en á Korfu
eru fjölmargir barir, klúbbar og
diskótek.
Loks má nefna að hægt er upp-
lifa blöndu af grískri og ítalskri
stemningu í höfuðborginni Ker-
kyra, nefnd Corfu Town á ensku.
Hún hefur á sér meiri heimsborgar-
brag en gerist í öðrum bæjum á
eynni, þar sem finna má sögu-
frægar byggingar, kaffihús, veit-
ingastaði og sjarmerandi þröngar
göngugötur.
Fyrsta brottför er 28. maí
og flogið verður á tíu til ellefu
daga fresti fram að 1. október.
Flogið verður í beinu leiguflugi í
flugvélum frá Icelandair.
Gríska draumaeyjan Korfu
Ferðaskrifstofan Vita verður með beint flug til eyjunnar Korfu í allt sumar, þar sem hægt er að njóta lífsins í sólinni.
Helgi Eysteinsson hjá Ferðaskrifstofunni VITA segir ferðamenn upplifa skemmtilega
blöndu af grískri og ítalskri stemningu á Korfu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bodrum er lítill og heillandi hafnarbær við
Eyjahafið í vesturhluta Tyrklands sem hefur
slegið í gegn sem áfangastaður síðustu ár.
Ferðaskrifstofan Vita verður með beint flug
þangað með Icelandair í sumar frá 21. maí
og til 27. september á þessu ári.
Bodrum er meðal annars þekkt fyrir fal-
lega höfn, sem segja má að sé lífæð bæjar-
ins, en þar eru fjölmörg kaffihús og veitinga-
staðir, þar sem ljúffengur matur er í boði,
og spennandi verslanir, en hinn glæsilegi St.
Péturskastali gnæfir yfir öllu saman.
Þá er hægt að sóla sig á fögrum baðströnd-
um, upplifa náttúruna í gegnum einstakt
landslag eða heimsækjandi nærliggjandi
smábæi og hafnarsvæði, í aðeins nokkurra
mínútna akstursfjarlægð. Þar má upplifa
raunverulegan menningarheim Vestur-
Tyrkja, upplifa lífshætti þeirra og dagleg
störf. Þeir sem vilja kynna sér enn betur
menninguna á Bodrum-skaganum geta heim-
sótt sögufræga staði á borð við grafhýsið í
Halikarnassus og Efesus og Didyma, sem
eru merkar borgarrústir.
Heillandi hafnarbær
Hægt er að gera ýmislegt sér til dundurs í Bodrum, meðal annars sóla sig á baðströndum og upplifa
einstaka náttúru.
Eftirfarandi borgarferðir verða
í boði hjá Ferðaskrifstofunni
VITA í vor.
Dublin á Írlandi er einstök borg
sem hefur unnið hug og hjörtu
margra Íslendinga í gegnum
árin, enda er varla annað hægt
en að hrífast af umhverfinu,
menningunni og lífsgleði inn-
fæddra. Farnar verða tvær ferð-
ir til Dublin á Írlandi: Páskaferð
21. til 25. apríl í fjórar nætur
og þriggja nátta helgar ferð 29.
apríl til 2. maí.
Sevilla er höfuðborg Andalúsíu
á Suður-Spáni. Þróttmikil og
lifandi borg með sjarmerandi
göngugötum, tapas-börum,
iðandi mannlífi og flottum
verslunum. Farnar verða þrjár
ferðir til Sevilla:
31. mars-4. apríl í 4 nætur
5.-8. maí í 3 nætur
6.-9. maí í 3 nætur
Auk þess býður VITA upp á
vikulegt flug til Alicante frá
14. apríl til 6. október. Þaðan
er stutt til Benidorm og Albir
og býður VITA upp á fjölbreytt
úrval af gistingu á því svæði.
Einnig er mikið framboð af
golfferðum, æfinga- og keppn-
isferðum, göngu- og hjólaferð-
um auk ýmissa
annarra sérferða.
Má þar nefna æv-
intýralega ferð
til Kína og
Tíbet sem
verður
farin í
septem-
ber.
Spennandi
borgarferðir