Fréttablaðið - 09.02.2011, Side 26
9. FEBRÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR6 ● ferðir
Pýramídar hafa fundist víða
um heim. Meðal annars í Mið-
og Suður-Ameríku, Súdan,
Eþíópíu, Grikklandi, Kýpur,
Ítalíu, Indlandi, Taílandi og á
nokkrum eyjum í Kyrrahafi.
Þekktastir eru pýramídarnir í
Egyptalandi en þeirra frægastir
eru pýramídarnir í Giza í norður-
hluta landsins.
Keops(Khufu)-pýramídinn í
Giza, oft kallaður pýramídinn
mikli, er stærsti pýramídi heims.
Hann var eitt af upphaflegum sjö
undrum veraldar og það eina sem
enn stendur.
Stóru pýramídarnir þrír í Giza;
Keops, Kefren og Mýkerínos, eru
kenndir við þá faraóa sem létu
reisa þá. Þeir tilheyrðu fjórðu
konungsættinni sem ríkti á
árunum 2575 til 2465 f. Kr.
Talið er að um 20 til 30 þúsund
menn hafi byggt pýramídana við
Giza á áttatíu ára tímabili.
Keops-pýramídinn var 146,5 m
hár og hliðar hans 230 m langar. Í
dag er hæð hans aðeins 137 metrar
en ræningjar hafa í gegnum tíðina
stolið fínum ljósum kalksteini sem
pýramídinn var klæddur með. Þeir
steinar voru meðal annars notaðir
til að byggja hús og moskur í
Kaíró.
Í pýramídanum, sem byggður
er nánast eingöngu úr gulum kalk-
steini, eru um 1,3 milljónir stein-
blokka sem vega frá 2,5 tonnum
upp í 15 tonn.
Keops-pýramídinn er enn
hæstur allra pýramída. Umfangs-
mestur er þó pýramídinn í Cholula
í Mexíkó.
Árið 2008 höfðu 138 pýramídar
fundist í Egyptalandi. Mun fleiri
pýramída er þó að finna í Súdan,
en þar eru þeir 220 talsins.
Keops-pýramídinn var hæsta
bygging heims allt þar til árið 1311
þegar dómkirkjan í Lincoln á Eng-
landi var reist.
Elstu pýramída Egyptalands
er að finna í Saqqara en Djoser-
pýramídinn er elstur, byggður
2630-2611 f.kr.
Lengi var haldið að þrælar
hefðu byggt pýramídana. Nú
er talið að verkamennirnir hafi
verið Egyptar og að stór þorp hafi
myndast í kringum byggingar-
framkvæmdirnar. Fornleifa-
uppgröftur hefur sýnt að í þorpun-
um voru bakarar, slátrarar, brugg-
arar, hús, kirkjugarðar og jafnvel
heilsugæsla enda eru dæmi þess
að fólk lifði það af að missa útlim.
Heimild: wikipedia.org,
Vísindavefur.is og
nationalgeographic.com
Grafhýsi gullaldarkonunga
Þekktastir eru pýramídarnir í Egypta-
landi. NORDICPHOTOS/GETTY
Stóru pýramídarnir þrír í Giza; Keops,
Kefren og Mýkerínos, eru kenndir við þá
faraóa sem létu reisa þá.
Elsta og þekktasta dæmið um sfinx er
stytta í Giza í Egyptalandi sem var reist
á tímum Khafre konungs (um 2575-2465
fyrir Krist.
Pýramída er að finna víðs vegar um heim, meðal annars í Suður-Ameríku. NORDICPHOTOS/GETTY
Guðmundur Jónasson ehf. er al-
hliða ferðaþjónustufyrirtæki. Ný-
verið fór í loftið ný heimasíða,
ferdir.is, þar sem er að finna ferð-
ir bæði innanlands og utan.
„Á vefsíðunni er fjölbreytt
úrval ferða og þangað munum við
tína reglulega inn nýjungar, eitt-
hvað fyrir alla,“ segir Emil Örn
Kristjáns son, deildarstjóri utan-
landsdeildar. Fyrirtækið Guð-
mund Jónasson þekkja flestir sem
hópferðabíla enda hóf fyrirtækið
starfsemi sína sem slíkt. Fyrir-
tækið hefur þó í mörg ár skipulagt
utanlandsferðir fyrir hópa, eins
og starfsmannafélög, kvenfélög
og klúbba og býður alhliða ferða-
þjónustu á opnum markaði.
„Við teljum okkur hafa góða
reynslu af skipulagningu ferða og
viljum bjóða fleirum að njóta ferða
með okkur,“ segir Emil Örn og
ítrekar að áhersla sé lögð á vand-
aðar ferðir þar sem gestir fái sem
mest fyrir aurinn.
„Það einkennir ferðir hjá okkur
að vel er haldið utan um hópinn. Ís-
lensk fararstjórn er í öllum ferð-
um og mikið við að vera fyrir
ferðafólk. Við leggjum áherslu á
menningar tengdar ferðir og einnig
útivistarferðir og að fólk kynn-
ist því svæði sem heimsótt er og
sögu þess. Ferðirnar eru almennt
hannaðar þannig að sem flestir
geti notið þeirra óháð aldri eða at-
gervi. Í vor verður til dæmis farið
til Norður-Englands og Skotlands
þar sem meðal annars verður lagt
nokkuð upp úr því að kynnast fræg-
ustu framleiðsluafurð Skota, viskíi
og auk þess sögu og sérkennum
landanna. Einnig er ferð til Würz-
burg í Þýskalandi, þar sem einn-
ig verður farið til Rothenborgar
og um vínræktarhéraðið Franken
og smakkað á vínframleiðslunni
þar, og til Normandí í Frakklandi
þar sem litið verður yfir vígvelli
seinni heimsstyrjaldar og smakkað
á ostum og eplavíni héraðsins.
Þá er yfirgripsmikil ferð til
Suður-Englands ein af vinsæl-
ustu ferðunum hjá okkur. Einnig
bjóðum við mjög vandaða ferð til
Norður-Ítalíu á slóðir sem ekki
hefur verið farið mikið á áður,
svo sem um Como-vatn, Tórínó,
vínræktarhéraðið Asti, Genúa og
Cinque Terre.“
Ævintýrasigling til Grænlands
er einnig ein af nýjungum fyrir-
tækisins. Þá verður siglt með 80
manns á skipi í níu daga og tekið
land á Grænlandi í gúmmí bátum.
Grænlandsferðin er ekki eina
siglingin sem í boði er en með Guð-
mundi Jónassyni má einnig fara í
fimm daga Rínarferð þar sem
meðal annars er siglt upp eftir
Rínarfljóti í þrjá daga og búið um
borð í fljótaskipi.
Það hefur því mikið vatn runnið
til sjávar frá því að Guðmundur
Jónasson fór fyrstu rútuferðina
með ferðamenn inn á hálendið.
„Guðmundur Jónasson var
frumkvöðull á sínum tíma í ferða-
þjónustu á Íslandi og við rekum
ennþá öfluga innanlandsdeild. Við
eigum nýtískulegan og stóran rútu-
flota fyrir allar stærðir af hópum
og við tökum að okkur að skipu-
leggja lengri og skemmri ferðir
bæði innanlands og utan fyrir
minni og stærri hópa.“
Áhersla á menningarferðir
Ferðaþjónustufyrirtækið Guðmundur Jónasson býður fjölbreytt úrval ferða bæði
innanlands og utan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA