Fréttablaðið - 22.02.2011, Side 2
22. febrúar 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu (LRH) hafði
nýlega hendur í hári tveggja karl-
manna sem höfðu í fórum sínum
myndefni sem sýnir börn á kyn-
ferðislegan og klámfenginn hátt,
eftir að ábendingar höfðu borist
hingað frá Interpol annars vegar
og hins vegar frá Europol. Þetta
staðfestir Björgvin Björgvinsson,
yfirmaður ofbeldisbrotadeildar
LRH. Ríkissaksóknari hefur
þegar ákært annan manninn, en
hinn bíður ákæru.
Í rannsókn sem Interpol og
Europol voru með og náði víða um
Evrópu komu fram tvær íslensk-
ar IP-tölur, sem leiddu til þess að
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lagði hald á tölvur og tölvugögn í
báðum málunum. Í báðum tilvik-
um reyndist vera nokkurt magn
af kynferðislegu ofbeldismynd-
efni með börnum, mun meira hjá
þeim sem ákæra hefur enn ekki
verið birt. Bæði er um ljósmyndir
og hreyfimyndir að ræða.
Báðir mennirnir eru af höfuð-
borgarsvæðinu og báðir voru þeir
með ofbeldismyndirnar heima hjá
sér. Báðir eru þeir um þrítugt.
Málið á hendur þeim sem
þegar hefur verið ákærður var
þingfest fyrr í þessum mánuði.
Sama dag voru þingfestar ákær-
ur yfir tveimur öðrum níðingum
sem voru með ofbeldismyndir
af börnum í tölvubúnaði á heim-
ili sínu. Hjá öðrum þeirra fundu
tæknimenn þjónustufyrirtæk-
is myndefnið eftir að maðurinn
hafði farið með tölvu sína í við-
gerð. Annar níðinganna tveggja
hefur verið dæmdur í 200 þúsunda
króna sekt.
Dröfn Kærnested, aðstoðarsak-
sóknari hjá ríkissaksóknara, segir
embættið lengi hafa talað fyrir
þyngri refsingu á hendur fólki
sem sé með kynferðisofbeldis-
myndir af börnum í fórum sínum.
Reynslan hafi sýnt að dómarar líti
fremur til magns en grófleika í
málum af því tagi. Hinir seku séu
dæmdir til sektargreiðslu í yfir-
gnæfandi meirihluta mála.
Michael Moran, yfirmaður hjá
Interpol, var nýlega staddur hér
á landi á vegum Félags íslenskra
rannsóknarlögreglumanna. Hann
sagði þá í viðtölum við fjölmiðla
að á tímum internetsins væru
engin landamæri. Barnaníðingar
sem notuðu internetið til að dreifa
kynferðislegum ofbeldismyndum
gætu verið hvar sem er í veröld-
inni og trúlega einnig hér á landi.
jss@frettabladid.is
BARNAKLÁMSMÁL RANNSAKAÐ Umfangsmikil rannsókn Interpol og Europol teygði
anga sína til Íslands. Ríkissaksóknari hefur þegar ákært einn mann vegna málsins en
annar bíður ákæru. NORDICPHOTOS/AFP
Alþjóðleg lögregla
benti á tvo níðinga
Lögreglan handtók nýlega tvo menn um þrítugt með myndefni af barnaníði í
fórum sínum eftir ábendingar frá Interpol og Europol. Aðstoðarsaksóknari telur
dóma í slíkum málum of væga. Um of sé horft á magn efnis í stað grófleika þess.
EFNAHAGSMÁL SP Fjármögnun hefur rift bílakaup-
leigusamningum við áttatíu viðskiptavini sína.
Fólkið, sem hefur allt sótt um greiðsluaðlögun hjá
umboðsmanni skuldara, fékk tilkynningu um málið
sent heim í bréfi í síðustu viku.
Samtök lánþega benda á að með riftunum á bíla-
samningum skuldara sem eru í umsóknarferli um
greiðsluaðlögun séu fjármögnunarfyrirtækin að
fara fram á að skuldari fremji lögbrot með því að
mismuna kröfuhöfum á síðari stigum. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá samtökunum.
Þar segir að í mörgum tilfellum sé um að ræða
samninga þar sem ljóst sé að eignarhlutur skuldara
í bifreið sé umtalsverður. Í slíkum tilfellum sé verið
að mismuna kröfuhöfum. Verið sé að ganga gegn
almennum rétti neytenda með því að svipta þá eign
sinni án þess að fullnaðaruppgjör komi á móti. Er í
því tilefni bent á hæstaréttardóma sem segi kaup-
leigusamninga vera lánasamninga og því sé lánþegi
hinn rétti eigandi bifreiðar og fjármálafyrirtæki
óheimilt að ráðstafa þeirri eign.
Samtökin krefjast þess að SP Fjármögnun láti
þegar af þessari háttsemi og taki upp viðræður við
lánþega um aðrar útfærslur á málunum.
Um leið og fólk sækir um greiðsluaðlögun hjá
umboðsmanni skuldara má það ekki borga af skuld-
um og er það ástæðan fyrir riftun samninganna. - sv
SP Fjármögnun riftir kaupleigusamningum við 80 manns í greiðsluaðlögun:
Samtök lánþega gagnrýna SP
BÍLAFLOTI SP Fjármögnun rifti samningum við 80 manns í
greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara í síðustu viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ORKUMÁL Kaup Global Geother-
mal Limited á rafmagnsfram-
leiðslustöð Orkuveitu Húsavíkur
ganga ekki gegn ákvæðum laga
um erlenda fjárfestingu. Þetta er
niðurstaða nefndar um erlenda
fjárfestingu en nefndin skilaði
iðnaðarráðherra áliti sínu nýlega.
Global Geothermal Limited
er félag með heimilisfestu og
starfsemi í Bretlandi. Félagið er í
meirihlutaeigu ástralsks félags.
Á vef ráðuneytisins segir að til-
gangur félagsins með kaupunum
sé að framleiða orku úr jarð-
varma með svokallaðri Kalina-
tækni sem félagið hefur einka-
leyfi fyrir. - þj
Fjárfesting í orkumálum:
Mega kaupa af
hitaveitunni
KJARAMÁL Mikill meirihluti þeirra
sem tóku afstöðu í könnun ASÍ styð-
ur þá stefnu að lögð verði áhersla á
sambærilegar launahækkanir fyrir
alla í yfirstandandi kjaraviðræðum.
Í könnuninni, sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands gerði
fyrir ASÍ, sögðust 94 prósent svar-
enda hlynnt því að verkalýðshreyf-
ingin legði áherslu á sambærilegar
launahækkanir, frekar en að þeir
sem starfi í útflutningsgreinum
njóti meiri hækkana.
Þá vilja 48 prósent að verkalýðs-
hreyfingin leggi mesta áherslu
á að tryggja kaupmátt launa í
yfirstandandi kjaraviðræðum, 24
prósent vilja að áherslan sé á að
tryggja atvinnuöryggi og 19 prósent
beinar launahækkanir.
Úrtak könnunarinnar var 1.200
félagar í stéttarfélögum og var
svarhlutfall um 63 prósent.
Nokkur styr hefur staðið um hina
svokölluðu samræmdu launastefnu
sem ASÍ og SA hafa talað fyrir,
en nokkur stéttarfélög hafa dreg-
ið samningsumboð sitt til baka og
semja upp á eigin spýtur. Viðræð-
ur ASÍ og SA héldu áfram i gær og
verður fundað á ný í lok vikunnar.
- þj
Könnun Félagsvísindastofnunar um áherslur í kjaraviðræðum:
Flestir vilja sambærilegar hækkanir
SAMRÆMDAR HÆKKANIR Svarendur í
könnun ASÍ eru fylgjandi samræmdri
launastefnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJARAMÁL Félag grunnskólakenn-
ara segir inngrip Halldórs Hall-
dórssonar, formanns Sambands
íslenskra
sveitarfélaga,
í kjaraviðræð-
ur kennara og
launanefndar
sveitarfélag-
anna vera
„með öllu óþol-
andi og óvið-
eigandi“.
Í tilkynningu
frá félaginu
segir að ummæli Halldórs um
vinnuframlag kennara séu sjá-
anlega sett fram til að „skapa
andúð almennings á störfum
kennara“ og þess er krafist að
hann „láti af árásum á kennara
og störf þeirra“. Málið snýst um
niðurstöður skýrslu OECD, þar
sem fram kom að um 35 prósent
af vinnutíma grunnskólakenn-
ara færu í kennslu.
Í samtali við Vísi.is í gær
hafnaði Halldór ásökunum um
árásir á kennara. „Það er alveg
af og frá. Ég er einfaldlega að
vitna í skýrslu OECD.“ - þj
Átelja ummæli formanns:
Segja inngrip
Halldórs með
öllu óþolandi
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
SJÁVARÚTVEGUR Ágæt loðnuveiði
hefur verið hjá skipum HB
Granda eftir stutt hlé sem varð
á úthaldinu vegna verkfalls-
boðunar bræðslumanna.
Mikill hraði hefur verið á
loðnugöngunni og er sú loðna,
sem lengst er gengin, nú að ganga
norður fyrir Snæfellsnes. Veiði-
svæðið var í gærmorgun um sex
til sjö sjómílur vestur af Önd-
verðarnesi og þykir mönnum
loðnan ganga óvenju djúpt fyrir
Snæfellsnes að þessu sinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
uppsjávardeild félagsins eru nú
óveidd um 20 þúsund tonn af um
59 þúsund tonna loðnukvóta á
þessari vertíð. Fjögur skip stunda
veiðarnar. - shá
Ágæt veiði á miðunum:
Loðnan veiðist
við Snæfellsnes
VÍINGUR AK 100 Fór á veiðar á föstudag
og landaði fullfermi, 1.400 tonnum, á
Vopnafirði í gær. MYND/KARL SIGURJÓNSSON
TÆKNI Bandaríkjamaðurinn Dan
Loewenherz hefur hannað sér-
stakt forrit á samskiptavefnum
Facebook, þar sem fólk getur
skráð sig inn og þá sem það hefur
augastað á, og forritið lætur vita
ef sambandsstaðan breytist á
vefnum.
Samkvæmt New York Post
fæddist hugmyndin þegar Dan
fann hinn eina rétta handa systur
konu sinnar til þess eins að upp-
götva að viðkomandi ætti í ástar-
sambandi samkvæmt Facebook
Forritið skimar vefinn á tíu
mínútna fresti og um leið og hinn
eini rétti, eða sú eina rétta, breyt-
ir sambandsstöðunni á Facebook,
fær hinn ástfangni fyrstu til-
kynninguna um það póstleiðis.
Forvitnir á Facebook:
Fá boð breytist
hjúskaparstaða
NEYTENDUR Væri samnorrænt holl-
ustumerki, eins og Skráargatið,
tekið upp hér á landi myndi
það auka neytendavernd barna.
Þetta segir Gísli Tryggvason,
talsmaður neytenda.
„Leiðbeiningar um neytenda-
vernd barna yrðu strax mun
virkari ef hollustumerki að
skandinavískri fyrirmynd (skrá-
argatsmerki) yrði tekið upp,“
segir á heimasíðu Gísla. Tals-
maður neytenda og umboðsmað-
ur barna fagna umræðunni um
hollustumerkið og auknum áhuga
stjórnvalda á því að taka merkið
upp hér á landi. - sv
Samnorrænt hollustumerki:
Eykur neyt-
endavernd
barnanna
GÆLUDÝR Hundurinn Lúkas, fræg-
asta gæludýr Íslandssögunnar,
drapst á sunnudaginn eftir stutt
veikindi.
Þetta staðfesti Kristjana Mar-
grét Svansdóttir, eigandi Lúk-
asar, í viðtali við visi.is í gær-
kvöldi. Lúkas komst í fréttir árið
2007 eftir að hann hvarf í um tvo
mánuði. Voru kenningar uppi um
að hundurinn hefði verið drepinn
á sviplegan hátt, áður en hann
kom fram heill á húfi. Ekki er
nema vika síðan kona var dæmd
fyrir meiðyrði fyrir að fullyrða
að Helgi Rafn Brynjarsson hefði
sparkað hundinn í hel. - shá
Drapst eftir veikindi:
Lúkas er allur
SPURNING DAGSINS
EGYPTALAND David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, kom
til Egyptalands í gær. Hann er
fyrstur þjóðarleiðtoga til að
heimsækja landið síðan Hosni
Mubarak fór frá völdum þar.
Cameron fundaði með yfir-
mönnum hersins, varnarmálaráð-
herra og forsætisráðherra í heim-
sókn sinni. Hann hitti einnig fólk
úr mótmælendahreyfingunni.
Breski forsætisráðherrann
segir ferðina gott tækifæri til að
tryggja að raunverulegar breyt-
ingar muni eiga sér stað og að sjá
hvað vinaþjóðir Egyptalands í
Evrópu geti gert til að hjálpa. - þeb
Fundar með ráðamönnum:
Cameron til
Egyptalands
Hrafn, steinliggur þetta?
„Nei, við hraunum yfir það.“
Leikfangaframleiðandinn Krummi hefur
hannað leiktæki fyrir börn sem byggja
á flæði í náttúrunni, skriðjöklum og
rennandi hrauni. Hrafn Ingimundarson er
eigandi fyrirtækisins.