Barnablaðið - 01.04.1981, Qupperneq 8
8
HÆTTULEGUR
LEIKUR!
Þessi saga er sönn og þeir sem koma hér
fram, eru lifandi og geta staófest sannleiksgildi
hennar. Magnús og Pétur voru frískir drengir,
uppaldir í góðum heimilum. Þeim voru kenndar
bænir og frásagan um Jesúm frá Nasaret, var
þeim mjög kunn. Þeim gekk báóum mjög vel í
skóla og kepptust vanalega um efsta sætiö í
einkunnum. Mjótt var á mununum. Einkunnir
þeirra voru mjög háar. Oft höföu þeir góóan frí-
tíma og notuðu þeir stundirnar til aö fara í
göngur. Fjaran og klettótt strönd voru afar vin-
sælir göngustaöir. Ekki einungis vegna fegurðar
í landslagi, heldur var særinn mjög breytilegur
frá stillum í úfiö org og sog. Svo var alltaf eitt-
hvaö aö sjá í ríki náttúrunnar, frá hvölum og
niöur í margbreytilegar fuglategundir.
Þaó voru fleiri en Magnús og Pétur, sem
stunduðu gönguferóir. Oft kom fyrir, aö þeir
rákust á menn, sem voru á skytteríi, bæði af þörf
og svo stunduðu þetta ýmsir sem sport. Oft voru
skytturnar lánsamar og gátu veitt villibráö, til
þarfa heimila sinna og annarra. Bar þá vel í veiði,
ef hnísa eöa selur náöust. Skarfur, svartfugl og
endur voru eftirsótt villibráö.