19. júní


19. júní - 19.06.1951, Page 26

19. júní - 19.06.1951, Page 26
sem á sér stað hið innra með mönnum og mál- leysingjum, ekki fremnr en sett sig lil lilítar í spor þess manns, sem skyndilega er hrifinn frá heimili sínu og linepptur í fjötra innan járn- bendra dyra. Það er næsta undrunarvert, live mislynt og mismunandi tíðarfarið getur verið hér á þessu litla landi okkar, því liér um Borgar- fjörð og suðvesturhluta landsins var eitt hið bezta sumar síðastliðið ár og veturinn snjóléttur og lirakviðralaus, en óvenjulega langstæð frost, })ó væg væru. Bóndi einn hér í grennd sagði við mig nýskeð, að hann hefði aldrei séð hér svo kuldalegt útlit á sumardaginn fyrsta, eins og nú í vor, 10 stiga frost, nýjar fannir niður fjallsldíðarnar og fjörðurinn ísi lagður. En svo kom blíðan, liægt og notalega, og nú teigir gróðurnálin sig upp úr túnunum og far- fuglarnir syngja vorljóð sín. Allt lifnar við og teigar fjör og þrótt úr liressandi vorloftinu. Kýrnar finna ferskan vorilminn, ef fjósið er op- ið og fara að baula og hænurnar viðra vetrar- kjólana og verða fjaðrafínar með liárauða kamb- ana og vappa starfsamar kring um bæinn. Hvarvetna finnur hin starfandi hönd ný og ný verkefni, sem vorið leggur mönnum á herð- ar og fær þeim í hendur og við hér í sveitinni sjáum ekki út úr þeiin störfum, sem krefjast skjótra aðgerða, því hendurnar eru svo fáar til starfa á bæjunum, en verkefnin eru fleiri og meira aðkallandi þegar seint vorar. Börnin em glöð yfir því að vera laus við skóla o'c próf orr mega nú vera út um allt með full- orðna fólkinu og hjálpa til og lilakka til að fá bráðum ;>ð sjá lítil lömb og lítil folöld, og finna kannske hreiður með eggjum. Hin elztu þeirra hafa þegar stigið yfir hina ósýnilegu merkjalínu milli bernsku- og unglingsáranna og ganga nú í hóp fullorðna fólksins. Þau fá ný áliugaefni og liorfa vonglöð móti framtíðinni, því þeirra er landið og allt, sem ehlra fólkið liefur á sig lagt og eftir skilið að leiðarlokum. Það hafa orðið stórfe!Idar framfarir á mörg- um sviðum í málefnum sveitanna og búnaðar- háttum síðasta liálfa öld, þó ekki sé lengra litið til baka. Byggingarframkvæmdir, stóraukin rækt- un og framræsla, vega- og brúargerð, hafnarbæt- ur og mikill véla- og bílakostur til stóraukinna afkasta og léttis við framleiðsluna, einnig votheys- gerð og súgþurrkun, sem því miður er enn ekki hagnýtt sem skyldi til öryggis í óþurrkasumrum og flýtisauka við heyöflunina o. f]., sem mætti 19. JÚNÍ telja til gagns og ánægju, svo sem síma og út- varp. Það er líka ánægjulegt að lieyra talað um að reistar verði sements- og áburðarverksmiðj- ur liér á landi, því ekki er lítil })örf fyrir þeirra vörur. Mér finnst það hlyti að liafa mikla þýð- ingu fyrir sveitirnar og framfaramál þeirra. En ekki finnst mér það vansalaust, að enn skuli ekki vera ræktaðar nægilega miklar kart- öflur í landinu sjálfu, en sú vara flutt inn í stórum stíl fyrir ærna peninga, vara, sem til- tölulega auðvelt er að rækta í flestum sveitum og sjávarplássum, en látið vanta sökum gjald- eyrisskorts ótalmargt annað, sem brýn þörf er fyrir og engin leið er að framleiða liér. Hinsvegar er ánægjulegur og lofsverður áliugi sá, sem mjög færist í vöxt á ræktun skóga og skrautgarða og liverskonar garðrækt og aðhlynn- ing á gróðri landsins og er þar þó vafalaust að- eins um byrjunarstarf að ræða. Þar tekur liin uuga kynslóð við og liagnýtir sér vísindi og tækni á því sviði og græðir og bætir fyrir rányrkju fyrri tíma. Ég óska þess að minnsta kosti og vona, að áður en langt um líður verði skóg- græn skikkja lögð um herðar Fjallkonunnar í stað hinnar fyrri er hún bar, þegar hun bauð hinum landflótta forfeðrum vorum víðáttumikl- ar lendur, friðsæl heimili og fegurð og öryggi í skjóli skóga og hátignarlegra jöktilkrýndra fjalla. Þróttinn hún finnur. Ofl í æðum funa, ólgandi fossa kynjamögnin duna. Auðlindir sævar ótæmandi bruna. Ónotuð frjógnótt beiskju vekur muna, kvað hið bjartsýna skáld og glæsilegi foringi Hannes Hafstein á morgni þessarar aldar til Fjall- konunnar. Og einnig þetta: Árdegið kallar, áfram liggja sporin. Fnn er ei vorri framtíð stakkur skorinn. Það eru kynjamögn fossanna, sem þarf að liagnýta fyrir sveitirnar. Það þarf að vinna að því á skipulegan og liagkvæman hátt að leiða rafmagn á sem flesta ba:i um landið þvert og endilangt og skapa með })ví möguleika til marg- víslegrar vélastarfsemi og aukin þægindi og lirein- læti á heimilunum. Sveitirnar þurfa að geta boðið unga fólkinu nokkuð af þeim þægindum sem það býr við á skólaárum sínum, ef það á að fella sig við að 12

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.