19. júní


19. júní - 19.06.1951, Page 38

19. júní - 19.06.1951, Page 38
— Ég hef Iieyrt, aft' þér hafíft' verift mjög ungar aft aldir, þegar þér hófuft tónlistanám? - Ég var 10 ára göniul, þegar ég byrjafti aft leika á fiftlu. Lærði ég hjá Þórarni Guftmunds- syni, fiftluleikara, unz Tónlistarskólinn var stofn- aftnr, en þaft var árið 1930. Kennari minn þar var Hans Stepanek, og tók ég burtfararpróf árið 1935, en hélt þó áfram námi í skólanum tvö næstu árin. Jafnhlifta fiðlunáminu stundaði ég nám í píanóleik við skólann, og var kennari minn dr. Franz Mixa. Tók ég burtfararpróf í píanóleik árift 1934. Það ár útskrifuftust fyrstu nemendur Tónlistarskólans, en þeir voru Mar- grét Eiríksdóttir, Helga Laxness, Björn Ólafsson og ég. — Hafift þér stundað framhaldsnám erlendis? Nei — og þó. Draumur minn var að stunda nám erlendis aft afloknu námi hér heima, en efnin leyfðu þaft ekki, og lítift um opinbera styrki lil námsfólks þá. Skömnni eftir nám mitt giftist ég, og var ég búsett í Noregi í 0 ár. Þaft varð mér til góðs og mikils þroska, að ég kynnt- ist þar ýmsu ágætu og gagnmenntuðu tónlistar- fólki. Ég fékk mörg tækifæri til aft leika kammer- músikk, og einnig kom ég fram sem einleikari á hljómleikum. Ég átti því láni aft fagna, aft kynnast liinum afhragðssnjalla organleikara Helmut Weise frá Schneidemúhle í Þýzkalandi. Ilann var einnig afbragfts píanóleikari. Vift spiluftum mikift saman, sérstaklega sónötur, og fannst mér mjög þrosk- andi aft leika meft bonum. Oft lékum við saman á hljómleikum, eitt sinn í hinni undurfögru dómkirkju í Þrándheimi. A þeim liljómleikum voru saman komnir um 1300 manns. - Hvafta verk lékuft þift þar? Sónötu í A-dúr eftir Handel. Fleiri lista- menn komu einnig fram og léku sígild verk meistaranna. Var ekki minnst á þennan fjölsótta konsert í dagblöðunum? Jú. Það var skrifaft mjög vinsam'lega um liann. Mér leikur nú mikift liugur á að heyra og sjá, hvað skrifaft var um íslenzku listakon- una, sem tók þátt í þessum hljómleikum —? Frú Katrín fer hjá sér. - Ég var mjög ánægft meft ummælin, þau voru vinsamleg í minn garft, og þaft gleður mann alltaf, þegar fólk er ánægt meft frammistöðu manns — livort sem það er í tónlistinni eða annarsstaðar. Hún sýnir mér úrklippur úr dagblöftum. Ég les mér til glefti þessi orft: I sónötunni fyrir orgel og píanó eflir Hándel kynntumst vift Katr- ínnu Dalhoff fiftluleikara. Hún hefur óvenju- mikinn og hlý.jan tón og prýðilega tónmy.ndun. Kom í ljós, að lmn er afbragös Hándel-leikari. Túlkafti lmn hift tignarlega verk tónskáldsins með mikilli festu og öruggleik. Eg óska yftur til hamingju,frú Katrín, meft sigur þennan, sem þér unnuft í hinni fornfrægu dómkirkju Niðaróss, — þetta eru framúrskarandi ummæli. Og nú eruð þér, sem betur fer, komnar beim aftur, og miftlift börnum okkar og æsku- fólki af kunnáttu yðar og listgáfu. Kennift þér mörgum nemendum í Tónlistarskólanum ? Nemendur mínir eru 24, 9 fiðlunemendur og 15 píanónemendur. Af fiðlunemendunum eru fjórar stúlkur. Sú yngsta • af þeim er 12 ára. Byrjafti liún aft læra hjá mér á fiftlu 9 ára gömul. Píanónemendur eru alltaf í miklum meiri- hliita. — Hver er ástæðan? Ég held, aft hún sé sú, að byrjunarslig fiftlunáms er mun erfiðara en píanónáms. Fiðlu- nemandinn verftur aft yfirstíga marga örftugleika, unz honum tekst að draga bogann rétl og stilla fingrunum á strengina. A3 ég tali nú ekki um að mynda hreinan tón. Til þess þarf sérstaklega næmt eyra, eins og yfirleitt til að samlaga sig hljóðfærinu, en það gerir nemandinn meft tím- anum. Hljóftfærift verftur hluti af lioniim sjálf- um, og held ég, aft ég megi fullyrfta, aft fiðlu- leikari, sem ann hljómlistinni og liljóðfærinu, geti vart á heilum sér tekift, nema hann sé ineft hljóðfærift í höndunum. Á píanóinu er þetta á annan veg. Þar er nótnaborðið tilbúift, og hver tónn er þar fyrir. Annars hýst ég fast- lega vift, að Sinfóníuhljómsveitin komi til meft aft glæða áhuga ahnennings á strengjahljóðfær- unum, og að þess verfti ekki langt að bíða. aft nemendum í strengjahljóftfæraleik fjölgi til imnia. — Hvaft voruð þér gömul, þegar þér lékuft fyrst opinberlega? Ég var 14 ára og spilaði þá í Hljómsveit Reykjavíkur. Bjiirn Ólafsson fiðluleikari spilafti einnig í hljómsveitinni. Þegar búift var að ákvefta hljómleikadaginn, kom í ljós, aft hann bar upp á fermingardag okkar Björns, og var því hljóm- leikunum frestað til næsta sunnudags. 19. JÚNl 24

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.