19. júní - 19.06.1960, Qupperneq 42
Frá K. R. F. 1.
Aðalfundur Kvenréttindafélags Islands var hald-
inn 24. febr. sl.
Formaður, Sigríður J. Magnússon, var endur-
kjörin. Aðrar í stjóm em nú: Lára Sigurbjörns-
dóttir, Kristín L. Sigurðardóttir, Guðrún Heiðberg,
Guðrún Gisladóttir, Guðbjörg Arndal, Guðriður
Jónsdóttir, María Þorsteinsdóttir og Anna Sigurð-
ardóttir.
19 fulltrúar voru kosnir á landsfund félagsins,
sem sennilega verður haldinn síðari hluta júní-
mánaðar.
Af starfsemi félagsins á árinu má m. a. nefna:
Öllum félögum innan vébanda International Al-
liance of Women var send skýrsla ríkisstjórnar Is-
lands um fiskveiðilögsöguna.
Send var áskomn til ríkisstjórnarinnar um hækk-
un á barnalífeyri til samræmis við aðrar bóta-
greiðslur, en hann hefur dregizt aftur úr um 30%,
miðað við aðrar bætur, síðan lögin voru sett 1946.
Send var áskorun til Alþingis um að samþykkja
frumvarp um breytingar á almannatryggingalög-
unum.
Stjómmálaflokkunum voru sendar áskoranir
fyrir báðar Alþingiskosningarnar um að tryggja
konum örugg sæti á framboðslistunum.
Skorað var á þær konur, sem sæti eiga á Alþingi,
að bera fram frumvarp um breytingar á hjúskap-
arlögjöfinni, og skipuð var nefnd til að athuga,
hvaða atriði helzt þyrftu leiðréttingar við.
Tveir fulltrúar frá félaginu voru sendir á fund
norrænnar nefndar, sem gera á tillögur um sam-
eiginlegt átak á öllum Norðurlöndunum um að
ryðja burtu hindrunum, sem leggja hömlur á þátt-
töku kvenna í atvinnulífinu, t. d. samsköttuninni
og launamisréttinu.
Fulltrúar frá félaginu fóru á nokkra aðal-
fundi héraðssambanda kvenfélaganna og héldu þar
erindi. Einnig voru nokkrir fundir haldnir með
kvenréttindanef ndum.
19. júní kom út að venju.
Merki Menningar- og minningarsjóðs kvenna
voru seld á afmælisdegi Bríetar Bjamhéðinsdóttur
í Reykjavík og víða um land. Styrk úr sjóðnum
fengu á árinu 19 konur, samtals 34 þús. krónur.
Félagið sá tvisvar á árinu um útvarpsdagskrá,
eins og venja hefur verið í mörg ár. önnur var
vegna minningardags stjórnmálaréttinda kvenna,
19. júní, og hin vegna Menningar- og minningar-
sjóðs kvenna.
Á vegum Kvenréttindafélags Islands og Barna-
verndarfélags Reykjavikur kom hingað til lands
frú Karen Berntsen, afbrotasálfræðingur, og hélt
tvö erindi í háskólanum. Fyrir frumkvæði félagsins
voru á síðastliðnu hausti stofnuð félagasamtökin
„Vernd“, sem hafa það markmið að aðstoða þá,
sem hafa gerzt brotlegir við landslög.
Samþykkt var á aðalfundinum þessi tillaga:
„Aðalfundur Kvenréttindafélags Islands, haldinn
24. febr. 1960, skorar á ríkisstjórnina, að hún gæti
þess við fyrirhugaðar breytingar á skattalöggjöf-
inni, að hlutur hjóna verði ekki gerður lakari en
sambúðarf ólks“.
\orsk kvlnncsaksforcniiijH.
hélt hátíðlegt 75 ára afmæli sitt í maímánuði
í fyrra með fundarhöldum og bókasýningu, þar
sem sýndar voru bækur eftir konur og um konur
m. m. Tvær konur frá K.R.F.l. sóttu þetta mót
og fundi i hinni svokölluðu Ábonefnd, sem sett var
á laggirnar á 9. fundi norrænu kvenréttindafélag-
anna í Ábo í Finnlandi 1956 í þeim tilgangi „að
gera sameiginlegt átak á öllum Norðurlöndum um
að ryðja burt hindrunum, sem leggja hömlur á
þátttöku kvenna í atvinnulífinu, t. d. samsköttun-
inni og launamisréttinu. Enn fremur að gera til-
lögur um bætt atvinnuskilyrði og hjálpargögn, er
geri konum auðveldara að gegna tvöföldum skyldu-
störfum: gagnvart heimilinu og þjóðfélaginu“.
Á fundinum í Osló var eingöngu rætt um launa-
misréttið og þá einkum, að safnað yrði frá hverju
landi sem beztum gögnum um launamál kvenna,
og þau síðan lögð fyrir 10. fund norrænu kven-
réttindasamtakanna, sem haldinn var 13.—15.
maí sl. í Stokkhólmi. Þann fund sótti engin frá
íslandi, en stutt greinargerð um ástand í launa-
málum kvenna hér var send fundinum, og að
sjálfsögðu fáum við senda fundargerð og tillögur,
sem samþykktar verða þar.
40
í 9. JÚNl