19. júní - 01.03.1995, Blaðsíða 13
konuna? Nei. Það dugar ekki alltaf. Sum
mein eru ill strax frá upphafi. Þau hafa
hæfileika til að setja meinvörp og valda
dauða.
Ljóst er að brjóstakrabbamein tengjast
lifnaðarháttum. Það hefur sýnt sig að það
er algengara hjá fituætuþjóðum, og þjóð-
um sem nota hormóna. Ekki er þó vitað
hvað það er nákvæmlega í umhverfinu sem
hefur þessi áhrif. Þau tengsl sem eru milli
fituneyslu og brjóstakrabbameins og eru
viðurkennd í Bandaríkjunum, hefur ekki
verið hægt að finna hér á landi. Enda er
alltaf mjög vafasamt að heimfæra rann-
sóknir sem fara fram í einu landi, og sér-
staklega öðru menningarkerfi, yfir á annað.
Tengsl á milli leghálskrabba-
meins og reykinga
Tíðni sjúkdóma í hinum sérstöku líffær-
um sem konurnar eru með, eggjakerfi, legi
og leghálsi, hefur aukist aðeins frá 1958 til
1992 — en það eru engin stórhlaup. Mesta
aukningin hefur orðið á brjóstakrabba-
meinum og lungnakrabbameinum. En það
er ánægjulegt að sjá að tíðni leghálskrabba-
meins hefur minnkað. Af hverju? Jú, fyrst
horfum við til leitarinnar, sem er ein skýr-
ingin. En þetta er ekki einhlít skýring, því
á Vesturlöndum, þar sem skipulögð leit fer
ekki fram, hefur sjúkdómstilfellum einnig
fækkað. Ég held að það séu líka aðrar or-
sakir, t.d. aukið hreinlæti.
En það er athyglisvert að legháls-
krabbamein tengist líka reykingum. Hvað
hafa reykingar með leghálsinn að gera —
þetta er sinn hvor hálsinn? í fyrsta lagi
hefur verið sýnt fram á það að bæði nið-
urbrotsefni nikótíns og krabbameinsvald-
ar tóbaks berast út í slímhúðirnar. Það er
t.d. vel þekkt að reykingar eiga sér hlut í
þvagfærakrabbameini, eins og blöðru-
krabbameini, og það stafar mjög sennilega
af því að krabbameinsvaldarnir fara inn
með loftinu og út í blóðið og skiljast að
einhverju leyti út í gegnum nýrun. Þann-
ig er mun algengara að fólk sem reykir fái
blöðrukrabbamein en aðrir. Hvað varðar
leghálsinn þá hefur verið sýnt fram á að
efnin berast þar út líka. En það er kannski
ekki einhlít skýring, vegna þess að það
hefur sýnt sig að reykingafólkið hefur líka
aðra þá þætti í lífshegðun sinni sem ýta
undir myndun leghálskrabbameins. Reyk-
ingafólk er að gera það sem óhollt er og er
margt hvert ekki af hafa áhyggjur af hlut-
unum. Þetta kemur einnig fram í kyn-
hegðuninni. Það er ekki alveg vitað hvers
vegna reykingar hafa áhrif á legháls-
krabbamein en það er vitað að það eru
tengsl þarna á milli.
Að borða sig hcilbrigða
Almennt er hægt að tala um lífshegðan
sem minnkar líkurnar á krabbameini. Við
vitum orsökina fyrir lungnakrabbameini,
sem er reykingar, orsakirnar fyrir hinum
kvennakrabbameinunum eru miklu meira
á huldu. Við vitum að það eru umhverfis-
þættir. Við vitum að það eru hormóna-
þættir, bæði ytri og innri. Þá á ég við þá
hormóna sem líkami konu framleiðir og
svo hinna sem teknir eru inn. Svo eru aðrir
þættir sem einnig koma til greina. En er
eitthvað gagn að því sem við erum að gera
í heilbrigðismálum og inni á sjúkrahúsum?
Já, það er það. Auðvitað vildum við geta
fullyrt að það sé vegna þess sem við erum
að gera að horfur t.d. brjóstakrabbameins-
sjúklinga eru betri núna en fyrir nokkrum
árum. En það er fleira sem kemur til,
breytingar á samfélagsháttum og lífsstíl. En
hvað er hægt að gera til að minnka líkurn-
ar á að fá krabbamein? Það er náttúrulega
númer 1, 2, 3, og 4 að reykja ekki! Og
gæta hófs í áfengisnotkun. Minnka fitu-
neyslu, borða meira af trefjaríku fæði.
Sumar trefjar virðast laða að sér krabba-
nteinsvalda og flytja þá út úr kroppnum;
flýta fýrir gegnferðinni. Neyta A vítamíns,
C vítamíns og E vítamíns að einhverju
leyti. Það hefur sýnt sig að þessi vítamín
draga úr virkni krabbameinsvalda. Svo er
að borða grænmeti af krossblómaætt, eins
og t.d. blómkál, spergilkál og slíkt. Það er
talið að með efnum og vítamínum geti
þetta grænmeti haft þau áhrif að líkaman-
um gengur betur að losa sig við krabba-
meinsvaldana og brjóta þá niður. Síðan á
að borða reyktan, saltan og saltpéturs-
blandaðan mat í hófi. í hangikjöti eru t.d.
afskaplega öflugir krabbameinsvaldar. Það
sem bjargar okkur núorðið er að við borð-
um svo lítið af hangikjöti miðað við það
sem áður var.“
Það er ljóst af þessum lokaorðum Sig-
urðar að við konur getum gert heilmikið
sjálfar til að koma í veg fyrir að við veikj-
umst af krabbameini - eða öðrum sjúkdóm-
um, eins og kom fram hjá Lilju Jónsdóttur.
Hjá báðum læknunum hefur komið sterkt
og greinilega fram að reykingar eru hið
hræðilegasta eitur fyrir líkamann. En það
veit allt reykingafólk - og flest vill það innst
inni hætta að reykja. Ætli því gengi betur að
hætta ef líkaminn væri eins útlits að utan
eins og lungu þess eru að innan?
HÚSSTJÓRNARSKÓLINN
í REYKJAVÍK
Næsta skólaár verður hússtjórnardeild
rekin bæði á haust- og vorönn. Á
haustönn í 3Vz mánuð og vorönn í AVz
mánuð. Þá verða og námskeið í fatasaumi,
útsaumi, bótasaumi, matreiðslu og
vefnaði.
13