19. júní - 01.03.1995, Qupperneq 19
Karlar gegn ofbeldi
IASOM
A síðasta ári stóö karlanefnd Jafnréttis-
um í Lundi I Svíþjóö. Hann er höfundur
bókanna Enter the Bourgeoisie og
Bjarmi nýrrar tíöar. Saga löju, félags
verksmiöjufóiks. Ingólfur býr meö Björk
Óttarsdóttur leikskólakennara og eiga
þau þrjú börn. Til að byrja meö munu
verkefni Ingólfs aðallega tengjast störf-
um karlanefndar Jafnréttisráðs, þ.e.
karlaráðstefnunni í Stokkhólmi og kynn-
ingu á niöurstöðum hennar, ásamt fyrir-
hugaðri herferð karla gegn ofbeldi sem
ýtt verður úr vör með haustinu.
Aðrir starfmenn á Skrifstofu jafnrétt-
ismála eru; Elsa S. Þorkelsdóttir lög-
fræðingur, sem hefur veitt stofnuninni
forstöðu frá 1986, Stefanía Trausta-
dóttir félagsfræöingur, sem kom til
starfa 1987 og Erna Jónsdóttir ritari frá
árinu 1991. Elsa tekur fæðingarorlof frá
og með 1. april til 31. september og
hefur Jafnréttisráð ákveöiö að Stefanía
gegni stöðu framkvæmdastjóra þessa
mánuði.
Skrifstofa jafnréttismála er til húsa á
Laugavegi 13 og er opin frá kl. 9 til kl.
16 alla virka daga. Eitt af mikilvægustu
verkefnum allra starfsmanna Skrifstofu
jafnréttismála er að veita upplýsingar
og fræða alla þá sem þangað leita um
stöðu kvenna og karla. Bókasafn stofn-
unarinnar er opiö á skrifstofutíma og
þangað hafa ótrúlega margir nemendur
á öllum skólastigum sótt gögn og
fræðslu vegna ritgerðavinnu.
gert ráö fyrir áframhaldandi norrænni
samvinnu og verkefnum um stöðu nor-
ræna karla. Undirbúningur að viðamik-
illli norrænni ráöstefnu um launamál
kynja hefst á þessu ári en ráðstefnan
verður haldin vorið 1996. Henni er ætl-
að að marka upphafið að endurnýjun
samstarfs Norðurlanda um aðgeröir til
að draga úr launamun kynja. Gert er
ráð fyrir að hvert land nýti tímann fram
að ráðstefnunni til að móta sínar leiðir
og sín næstu skref.
Aö lokum skal nefnt að á þessu ári
verður unnið aö útgáfu bókar um stööu
kvenna í stjórnmálum á Norðurlöndum,
„Halva makten - nordiska kvinnor pá
vág" er heiti hennar. Bókin er eins kon-
ar ný og endurbætt útgáfa af bókinni
„Det oferdige demokrati" sem kom út á
vegum Norrænu ráðherranefndarinnar
árið 1983. Nýju bókinni er þó ætlað að
vera mun ítarlegri að því leyti að auk al-
mennrar umfjöllunar um stöðu kvenna í
stjórnmálum, verður fjallaö um þær
leiöir sem farnar hafa veriö til aö fjölga
konum í stjórnmálum og koma þannig á
raunverulegu lýðræði og samspili
kvennahreyfinganna og rikisvaldsins á
þessu sviði.
EÞ
ráðs fyrir ráðstefnu í Norræna húsinu
undir þessari yfirskrift. Vakti ráðstefnan
mikla athygli og fékk verulega umfjöllun
í fjölmiðlum. Erindi þau sem á ráðstefn-
unni voru flutt eru nú komin út og fást á
Skrifstofu jafnréttismála. Karlanefndin
mun fylgja þessu eftir með herferð í
september og verður hún haldin undir
sömu yfirskrift. Markmið þessarar her-
ferðar eru meðal annars að efna til
rækilegrar umræðu um ofbeldi í öllum
myndum, að skilja ótvírætt á milli karl-
mennskunnar og ofbeldisins, að koma
á fót nefnd sem haldi umræöunni
áfram og að koma á laggirnar meðferð-
arstofnun fyrir ofbeldismenn.
Framkvæmd átaksins verður fólgið í
frumkvæði að markvissri umræðu í öll-
um fjölmiðlum um þetta vandamál,
vekjandi auglýsingaherferð, ofbeldisum-
fjöllun í framhaldsskólum og ýmsum
táknrænum aðgerðum.
IVG
Sjálfstyrking karla
Akureyri hefur um margt verið fyrirmynd-
arbær í jafnréttismálum. Þar var fyrst
ráðinn sérstakur jafnréttisfulltrúi og þar
hafa verið haldin nokkur námskeið í
sjálfstyrkingu fyrir konur. Og enn vísar
Akureyri veginn. í febrúar síðastliðnum
var haldið þar opið hús um stöðu,
sjálfsmynd og hlutverk karla. Þar var
einnig kynnt námskeiöið „Skynjaðu
styrk þinn“ sem er sjálfstyrkingarnám-
skeið fyrir karla.
Áhugi á slíku námskeiði reyndist all-
nokkur og var hugmyndin að halda nám-
skeiö 18.-19. mars. Veöur kom hins
vegar í veg fyrir aö það tækist og var
námskeiðinu frestað en verður haldið
seinni hluta apríl. Leiðbeinendur eru
sálfræöingarnir Ásþór Ragnarsson og
Kristján Magnússon.
Helstu efnisþættir námskeiðsins
eru: Karlmannsímynd, -hlutverk, -fyrir-
mynd. Kröfur umhverfisins til karla.
Hvað vilja karlar sjálfir? Samskipti og
samstaða karla. Samskipti kynjanna.
Jákvæðar og neikvæðar hliöar karl-
mennsku. Hvernig tökumst við á við til-
finningar?
Markmið námskeiðsins er að gefa
karlmönnum kost á að spegla sig í við-
horfum annarra karla. Með umræðum
og æfingum verður reynt að skapa að-
stæður sem fá þátttakendur til að
skynja eigin styrk og styrk samstöðu og
samkenndar hópsins. Kenndar verða
leiðir til bættra samskipta og bættrar
sjálfsmyndar sem karlmaður.
Þetta námskeið er fyrsta sjálfstyrking-
arnámskeið fyrir karla hérlendis og verð-
ur nánar sagt frá því síöar í Voginni. IVG
I Osló hefur aðsetur alþjóðleg stofnun
sem kallast The International Associat-
ion for Studies of Men. Norskur fræði-
maður, Oystein Gullvág Holter, veitir
henni forstöðu. Tilgangur stofnunarinn-
ar er að skapa tengslanet milli fræði-
manna og áhugamanna um rannsóknir
á körlum. Stofnunin hefur starfað í rúm
tvö ár og náð allnokkrum árangri í al-
þjóðlegri tengingu þeirra sem áhuga
hafa á karlarannsóknum og umræðum
um hlutverk og stöðu karla. Stofnunin
gefur út fréttabréf „The IASOM News-
letter" og fara þar fram umræður, sagt
er frá rannsóknum, ráðstefnum og af
stöðu karla í einstökum þjóðlöndum.
Hafi einhver áhuga á frekari upplýsing-
um um stofnunina veitir Skrifstofa jafn-
réttismála fúslega allt slíkt.
IVG
Ráðstefnur
Mjög fer vaxandi áhugi á þætti karla í
jafnréttismálum og jafnréttisumræöu
um allan heim. Á síöasta ári var haldin
ráðstefna í Danmörku um „Fjölskyldur
karla" og var þar til umræðu hlutverk
karla í fjölskyldum. Hefur áður verið
sagt frá þessari ráöstefnu í Voginni.
í lok apríl verður haldið í Stokkhólmi
mikið þing á vegum norrænu ráðherra-
nefndarinnar undir yfirskriftinni „Nor-
rænir karlar" og verður þar fjallað um
stöðu, óskir og væntingar þess fyrir-
bæris. Má búast við að þetta þing verði
þeim sem það sækja drjúgt veganesti í
íslenskri umræðu um stöðu karla.
Og loks ber að geta þess aö í maí
verður haldið í Gautaborg evrópskt
rannsóknarþing um fjölskyldutengsl
karlmanna. Mun dr. Sigrún Júlíusdóttir,
dósent T félagsráðgjöf við Háskóla ís-
lands, sækja það þing en hún hefur
rannsakað íslensku fjölskylduna í mörg
ár.
Allt þetta minnir á að hérlendis er
vart hægt að segja að átt hafi sér stað
nokkur umræða um íslenska karla og
stöðu þeirra í breyttum samskiptaheimi
kynjanna. Einstaka raddir heyrast en
þar er langt á milli og fáir nýir bætast
við. Og þetta minnir einnig á að þrátt
fyrir ítrekaðar ályktanir kærunefndar
jafnréttismála er karlmönnum enn frek-
lega mismunað þegar kemur að rétti til
töku orlofs í tengslum við fæðingu
barns. Treglega ætlar að ganga aö leiö-
rétta misréttiö meö kurteislegum at-
hugasemdum og má vera aö vænlegast
sé að fá einhvern málsaðila til að höfða
dómsmál. Verður gengið til þess í haust
að finna slíkan aðila.
IVG
19