19. júní


19. júní - 01.03.1995, Side 24

19. júní - 01.03.1995, Side 24
þær hver annarri að þær eru jafningjar. Körlunum finnst þetta vandamálatal afar framandi og álíta að konur sem beita því við þá hálfgerða vandamálasmiði og ótta- lega vælukjóa. Karlarnir tala um ópersónu- leg mál, s.s. bíla eða boltaleiki. Mismunandi stjórnunareiginleikar kynja Deborah segir að athuganir sýni að konur og karlar hafi oft ólíka kímnigáfu og segi ólíka brandara. Þetta leiði meðal annars til minni skilnings. Bestur árangur í samskiptum næst þegar fólk getur tamið sér nokkuð sveigjanlega framkomu eftir því hvaða hóp eða viðmæl- anda það hefur hverju sinni. ir við að tjá tilfinningar sínar en konur. Karlkyns stjórnendur nota oftast orða- Iagið ég gerði og ég hef ákveðið að gera. Kvenkyns stjórnendur segja fremur fleir- tölu, við höfum ákveðið. Deborah segir að skynjun fólks sé sú að konur virki frekju- legar þegar þær nota fyrra orðalagið. Deborah segir karla líklegri til að láta hlutina eiga sig og bíða þar til vandamálin koma í ljós. Þá bjargi þeir málunum og fái hrós fyrir. Konur hafi oftar næga fyrir- hyggju til að koma í veg fyrir að vandamál- in skapist. Við getum verið sammála um að síðari aðferðin sé almennt betri en gall- inn við hana segir Deborah sé sá að síður sé tekið eftir því að stjórnandinn sé góður af því að vandamálin komu aldrei í ljós og enginn tók því eftir lausninni. Greinarhöfiindur í góðum hópi samverkamanna t t jjg\ ^ - w ■ Bk ||| £1M' i 1 B\ <7 §f kM 1 ’ 1 1 vffyfyí5' “>« ~ivlV4''í- 'rkéj M JM Konur sem stjórnendur nota oftar óbeinar skipanir en karlar. Dæmi um óbeina skipun er t. .d. að segja: „Þessi skýrsla yrði betri ef bætt væri inn upp- lýsingum um heildarafkomu ársins." Bein skipun um sama efni gæti verið á þessa leið: „Bættu niðurstöðum um heildarafkomu ársins við þetta.“ Einum gæti þótt fyrri tjáningarformið óljósr en brugðist jákvætt við þeirri síðari og framkvæmt hana. Öðrum þætti sú síðari e.t.v. frekjuleg og þætti þægilegra að fá fyrirmælin á hinn óbeina hátt. Á hinn bóginn nota karlar mun óbeinni aðferð- Mjög áhugaverð bók Bókin er athyglisverð og geymir ótal góð dæmi um samskipti kynja á vinnustað, mismunandi stjórnunaraðferðir fólks og margt annað sem varpað getur ljósi á mis- munandi árangur fólks í starfi. Ég hver lesendur 19. júní eindregið til að útvega sér þessa ágætu bók og lesa hana gaumgæfilega. Bók sem þessi væri til dæm- is mjög gott viðfangsefni fyrir leshóp hjá KRFf. Lilja Ólafidóttir. PUNKTA- FRÉTTIR Dönskum VÍS- Erlendir vísindamenn indarannsóknum sem vlIJa vinna að rann“ sóknum í Danmörku þurfa að bíða svo lengi eftir að fá dvalarleyfi að það getur skaðað vís- indarannsóknir í Danmörku, segir forstjóri Embryoteknologisk Center í bréfi til danska vís- indamálaráðherrans. í bréfi forstjórans kemur fram að ungverskur vísindamaður þurfti að bíða í fimm mánuði áð- ur en hann fékk dvalarleyfi frá útlendingaeftirlit- inu og gat tekið við stöðunni sem beið hans á Embryoteknologisk Center, sem í fyrrasumar ætlaði að fylla stöðu rannsóknarmanns til þriggja ára og valdi ungverska vísindamanninn. En skriffinnskan lætur ekki að sér hæða og fimm mánuðir liðu frá því Ungverjinn lagði fram um- sókn sína og þar til dvalarleyfið loks fékkst. Forstjórinn bendir á að slíkur seinagangur hafi í för með sér óvissu og óöryggi og reyndar sé eingöngu að þakka góðu skaplyndi og þolin- mæði ungverska vísindamannsins að Danir fara ekki á mis við sérfræðiþekkingu hans en þessi langi dráttur geti gert það að verkum að út- lendingar kjósi ekki að starfa í Danmörku, eink- um sé um tímabundnar stöður að ræða. Hann bendir líka á að t.d. í Bandaríkjunum, Ástralíu og Frakklandi gangi úthlutun dvalarleyfa hratt og lipurt fyrir sig. Jafngildir ham- Franski rithöfundurinn ingja leiðindum? °g he‘mspekingurinn Bernard-Henry Levy verður ekki orðlaus þegar rætt er um kvennabar- áttuna, sem hann segir vera byggða á misskiln- ingi. En þó þykir sumum fyrst taka steininn úr þegar hann lýsir þeirri skoðun sinni að eigi kyn- mök að vera vel heppnuð verði þar alltaf að vera til staðar skuggahliðar mannlegrar náttúru: illska, synd og skömm. Kvennabaráttan sé hins vegar að leita að hamingjunni konum til handa, en hamingja sé ekkert annað en leiðindi! Levy segist í blaðaviðtali sannfærður um að ekki sé til kvenleg erótík án þess að í henni fel- ist a.m.k. vottur af masókisma. Þetta þykir blaðakonunni sem viðtalið tók merkilegt karl- mennskuviðhorf og klykkir út með þessari sam- antekt: „Að veröld þar sem konur ættu mögu- lcika á að vera hamingjusamar hljóti að vera leiðinleg! Fyrir hvern, má ég spyrja?“ Kínverjar vilja Kínverjar tileinka sér vestrænar gínur vestræna viðskiptahætti af miklum ákafa og sjálfsagt má nú kaupa þar allt sem hugurinn kann að girnast. í gluggum tískuverslana stór- borganna ma finna föt sem bera svip frá ýmsum heimshornum, og gínurnar sem bera varninginn eru undantekningarlítið hávaxnar, ljóshærðar og með blá augu! „Fólk hefur enga löngun til að kaupa föt sem eru sýnd á kínverskum kroppum,“ segir einn gínusalinn í Shanghæ sem hefur mikið úrval af gínum á boðstólum og segist lítið þurfa að skýra út fyrir kaupendum hvaða kostum vestrænar konur séu búnar umfram aðrar. „Allir vita að vestrænar konur eru fallegar," segir hann og bendir á hvað brjóstin séu stór og „fylli betur út í fötin.“ Flestar gínurnar eru framleiddar í Hong Kong, og þær gera mesta lukku. Sumar eru þó heimatilbúnar. 24

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.