19. júní - 01.03.1995, Blaðsíða 26
Formaður KRFl Inga Jóna Þórðardóttir heiðrar Auði Eir Vil-
hjálmsdóttur á jólafundi félagsins.
Frá jólafundinum
Fréttir úr starfi KRFI
0
pinn umræðufundur um áhrif
ofbeldis í fjölmiðlum og tölvu-
leikjum á börn og unglinga,
var haldinn á vegum KRFI
þann 16. nóvember að Fíótel
Loftleiðum. Fyrirlesarar voru þau Margrét
Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri, Anna Ól-
afsdóttir Björnsson þingkona, Ragnheiður
Sigurjónsdóttir frá Unglingadeild Félags-
málastofnunar og Adolf H. Petersen fjöl-
miðlafræðingur. Að fyrirlestrum loknum
voru pallborðsumræður og tóku þátt í
þeim auk fyrirlesara Agnes
Johansen, deildarstjóri barnaefnis
á Stöð 2, Auður Eydal, forstöðu-
maður Kvikmyndaeftirlits ríkis-
ins, Guðmundur Guðjónsson,
yfirlögregluþjónn í Reykjavík, og
fulltrúar foreldra voru þau Edda
Björgvinsdótdr og Hjörleifur
Sveinbjörnsson. Fundarstjóri var
Þórhildur Líndal umboðsmaður
bama og Hansína B. Einarsdótt-
ir afbrotafræðingur var umræð-
ustjóri. t undirbúningshópi um-
ræðufundarins voru Guðrún
Hallgrímsdóttir, Hulda Karen
Ólafsdóttir, Hansína B. Einars-
dótdr og Valgerður K. Jónsdóttir.
Jólafundur
Jólafundur KRFI var haldinn í byrjun
desember. Félagið heiðraði Auði Eir Vil-
hjálmsdóttur í dlefni af því að á árinu voru
liðin 20 ár frá því hún tók prestsvígslu
fyrst kvenna á Islandi. Séra Auður Eir hef-
ur unnið mikilvægt brautryðjendastarf og
verið ötull félagi KRFÍ alla tíð. Á fundin-
um var auk þess lesið úr nýútkomnum
jólabókum og ungt tónlistarfólk kom fram
auk ýmissa annarra dagskrárliða.
Fundurinn um heilsufar kvenna var vel sóttur
Málþing iini licilsular kvenna
Málþing var haldið á vegum KRFI um
heilsufar kvenna, laugardaginn 25. febrúar
að Borgartúni 6. Inga Jóna Þórðardóttir,
formaður KRFÍ, setti þingið og Valgerður
K. Jónsdóttir þjóðfélagsfræðingur flutti
inngangserindi. Þá fjallaði Kristín Ástgeirs-
dóttir alþingiskona um alþjóðlegar athug-
anir á heilsufari karla og kvenna, Þórdís
Kristmundsdóttir fjallaði um konur og
lyfjarannsóknir, Sæunn Kjartansdóttir fjall-
aði um sjúkdómsgreininguna
hysteríu og afleiðingar áfalla og
Reynir Tómas Karlsson var með
fyrirlestur um hvort læknisfræð-
in og kennsla í læknisfræði væri
karllæg, þ.e. of mikið tillit tekið
til karllíkamans.
Að loknu matarhléi ræddi
Marga Thome dósent um geð-
heilbrigði kvenna eftir fæðingu,
Sigurður Árnason læknir fjallaði
um konur og lungnakrabba-
mein, Lilja Jónsdóttir læknir um
hjarta- og æðasjúkdóma í kon-
um, Helga Hannesdóttir geð-
læknir um konur og geðheilsu
og Þórarinn Tyrfingsson læknir
Fyrirlesarar tóku þátt í panelumrœðum í lok fundar um heilsufar kvenna.
26