19. júní - 01.03.1995, Síða 27
um
lyfjamisnotkun og áfengisneyslu
kvenna.
Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra
hefur skipað vinnuhóp til að kanna heilsu-
far á íslandi og gera tillögu um með hvaða
hætti má snúa vörn í sókn í þesum efnum.
í hópinn verða skipaðir fulltrúar frá emb-
ætti landlæknis, Krabbameinsfélagi Islands
og Kvenréttindafélaginu. An tilnefningar
hafa verið skipuð í hópinn Hrafn Túliníus
læknir, Laufey Tryggvadóttir faraldursfræð-
ingur og Sigríður Vilhjálmsdóttir félags-
fræðingur. Valgerður K. Jónsdóttir þjóðfé-
lagsfræðingur verður fulltrúi KRFÍ í vinnu-
hópnum.
Að fyrirlestrum loknum voru pallborðs-
umræður og stjórnaði Dögg Pálsdóttir skrif-
stofustjóri umræðum. Inga Jóna Þórðardótt-
ir, Valgerður K. Jónsdóttir og Hulda Karen
Ólafsdóttir unnu að undirbúningi málþings-
ins og Lilja Ólafsdóttir var fundarstjóri.
Leikhúsferð
Þann 3. mars var farið í leikhúsferð á
vegum KRFÍ. Það var bandaríska leikritið
OLEANNA eftir David Mamet sem fé-
lagsmönnum var boðið að sjá en leikritið
fjallar um kynferðislega áreitni. Að leiksýn-
ingu lokinni voru fjörugar umræður.
Ritstjóraskipli á 19. jiíní
Ellen Ingvadóttir, sem verið ltefur rit-
stjóri 19. júní undanfarin 4 ár, hefur látið
af störfum vegna anna og eru henni þökk-
uð góð störf í þágu blaðsins. Ellen hefur
verið ritstjóri á miklum breytingartímum
þar sem tölublöðum hefur fjölgað úr einu
á ári í þrjú. Þannig hafa komið út 8 blöð í
ritstjórnartíð Ellenar. Við ritstjórinni tekur
Valgerður K. Jónsdóttir sem verið hefur
ritstjórnarfulltrúi undanfarið ár og er hún
boðin velkomin til starfa. Valgerður er
þjóðfélagsfræðingur að mennt og hefur
unnið við blaðamennsku og ritstörf í fjöl-
mörg ár.
Ritnefnd er skipuð sömu konum og set-
ið hafa undanfarin tvö ár, þeim Ingu Dóru
Sigfúsdottur, Steinunni Jóhannesdóttur,
Sigrúnu Sigurðardóttur, Bryndísi Kristj-
ánsdóttur og Kristínu Leifsdóttur. Ljós-
myndari blaðsins er Rut Hallgrímsdóttir
og Þórdís Kristleifsdóttir er prófarkalesari.
Blaðið hefur fengið aðstöðu á skrifstofu
KRFÍ að Hallveigarstöðum.
Irene Sanliago
Undirbúningur að NGO Forum í Bej-
ing er í fullum gangi. I febrúar s.l. kom
Irene Santiago hingað til lands en hún er
framkvæmdastjóri NGO Forum. Fundur
var haldinn með Irene í Kornhlöðunni í
Bankastræti, en tilgangur ferðar hennar
hingað til lands var m.a. að safna pening-
XWREVfífZ/
leggið
miðjuna
á minnið
4-8 farþega
og hjólastólabílar
þú rceður ferðinni