19. júní - 01.03.1995, Qupperneq 29
„Hvers vegna eruþeir ekki
búnir að finna það upp?"
- Islenskar uppfinningakonur á kvennaþingi í Turku
Islenskar uppfinningakonur voru
meðal þeirra sem sóttu kvennaþing-
ið í Turku sl. sumar. 19. júní hitti
forsvarsmann hópsins, Jóhönnu
Fjólu Ólafsdóttur, til að fá nánari
upplýsingar um þennan félagsskap og hvað
hann var að gera í Finnlandi.
„Félag íslenskra hugvitsmanna var stofn-
að 14. febrúar 1987, en félaginu er ætlað að
taka á móti aðilum sem vilja stuðla að
framgangi íslensks
hugvits. Menn eru
aðstoðaðir við
frekari útfærslu
hugmynda og ráð-
lagt hvernig best
skuli staðið að
framleiðslu og
markaðssetningu.
Þegar menn koma
fram með nýja
hugmynd þarf
ennfremur að fara
fram svokölluð
nýnæmiskönnun,
þ.e. það þarf að
kanna hvort hug-
myndin sé ný eða
ekki. Það var Félag
uppfinninga-
kvenna á Norður-
löndum sem hafði
samband við Jafn-
réttisráð og það
leitaði okkur uppi.
Eg var þá tiltölu-
lega nýgengin í fé-
lagið, var með í
farteskinu hug-
mynd að kjörkassa
sem var þannig út-
búinn að hann
taldi atkvæðin um
leið og seðillinn
var settur í hann.
Hugmynd mín fór
svo í nýnæmis-
könnun og þá
reyndist aðeins
hluti hennar nýr.
Viðtal: Valgerður Katrín Jónsdóttir
Myndir: Ýmsir
Ég safnaði svo saman nokkrum konum
sem voru í Félagi íslenskra hugvitsmanna
og aðrar gengu í félagið í því augnamiði að
fara út og vera með í þeim verkefnum sem
við unnum að þar. Ég fékk reyndar hug-
myndina að kjörkassanum þegar ég var lít-
Dr. Farag Moussa í góðum félagsskap hugvitskvenna
Tóskurnar innihéldu ferðabaklinga til að kynna landið. Jóhanna Fjóla lengst til hagri.
il, en börn eru oft ótrúlega frjó og hug-
myndarík. Ég man að við vinkonurnar
vorum eitt sinn að ræða það að þegar við
yrðum orðnar stórar þá yrði áreiðanlega
hægt að fá berjasaft úr krönum og ein
skólasystir mín sagði 1953 að þegar við
færum að búa yrði áreiðanlega hægt að ýta
á takka til að fá kaffi og sú varð reyndar
raunin með tilkomu kaffivélarinnar!“
— Em konur uppfinningasamarí
„Já, en þær eru ekki duglegar að koma
hugmyndum sín-
um á framfæri og
segja gjarnan þegar
eitthvað má betur
fara í daglegu lífi:
„Hvers vegna eru
þeir ekki búnir að
finna eitthvað upp
sem léttir þetta
starf?“ Forseti al-
þjóðasamtaka hug-
vitsmanna, IFIA,
Dr. Farag Moussa
hefur mikla trú á
konum sem upp-
finningamönnum
og heldur því fram
að heimurinn væri
miklu fjölbreyttari
ef konur hefðu
meiri áhrif. Hann
er mikill kvenrétt-
indamaður, er
fæddur í Egypta-
landi, egypskur í
föðurætt en móðir
hans var banda-
rísk. Hann hefur
skrifað nokkrar
bækur um upp-
fmningakonur.
Hann segir að
konur hafi fundið
upp fjölmarga
gagnlega hluti en
þeim hafi hins
vegar ekki verið
hampað eins og
körlunum. Hann
29