Sólskin - 01.07.1937, Síða 42
á milli Kjalarness og Seltjarnarness, með öll-
nm eyjunum, sem við höfum talað um, heitir
Kollafjörður, eins og litli fjörðurinn, sem við
nefndum áðan.
Ósk: En hvar eru Rauðhólar?
Finna: Þeir eru norðaustan við Elliðavatn.
Það eru gamlir eldgígir, rauðir að lit. Gvend-
arbrunnar eru skammt fyrir austan vatnið.
Reykvíkingar fá þaðan sitt ágæta neysluvatn.
Það kemur þar upp úr jörðunni í hraunjaðri,,
þrýtur aldrei, en er allt af jafn heilnæmt.
Ása: Hvers vegna heita þeir Gvendarbrunnar ?
Finna: Það er líklega af því að Guðmundur
biskup góði hefir vígt þá, eins og mörg önnur
vatnsból víða um land.
Teitur: Er Rauðavatn nálægt Rauðhólum?
Finna: Já, rétt fyrir norðvestan þá. Þjóðveg-
urinn austur liggur fram hjá Rauðavatni.
Ása: Ekki man ég, hvað hálsinn heitir, þarna
sunnan við Fossvoginn.
Finna: Það er Kópavogshálsinn. Kópa-
vogurinn er fyrir sunnan hann. Hressingar-
hæli er við Kópavoginn. En fyrir sunnan
Kópavoginn tekur við A r n a r n e s h á 1 s ,
þá A r n a r n e s v o g u r. Vegurinn milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar liggur fram
hjá vogum þessum. Afvegur liggui1 af aðal-
40