Sólskin - 01.07.1937, Page 66
Finna: Þau eru h a n cl s t r e n g j ó 11. Sum-
ar jurtir hafa bogstrengjótt, aðrar
beinstrengjótt blöð.
Ósk: Hvernig geta jurtirnar haldið sér upp-
réttum, fyrst þær hafa enga beinagrind?
Finna: Tré og runnar hafa við í stönglum sín-
um, sem gerir þá stinna. Margar jurtir
hafa seiga strengi og sterka, sem nefnast
baststr engir. Vatnið stinnir jurtirnar
líka og hjálpar þeim til þess að halda sér upp-
réttum.
Ása: Já, ég veit það. Mamma gleymdi einu
sinni að vökva eitt gluggablóm, og daginn
eftir héngu blöðin á því máttlaus niður. En
þegar hún vökvaði þau, breiddu þau sig aftur
fallega móti birtunni.
Finna: Sumar jUrtir geta samt sem áður ekki
haldið sér uppréttum af sjálfsdáðum, en verða
að styðja sig við eitthvað.
ósk: Hvernig geta þær stutt sig við? Ekki.
hafa þær hendur.
Finna: Nei, en þær hafa mjóa g r i p þ r æ ð i
og vef ja þeim utan um granna hluti, er nærri
þeim standa.
Þór: Hafa nokkrar jurtir hér á landi grip-
þræði?