Fréttablaðið - 10.12.2010, Side 37
10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Söngnemendur í Listaskóla Mosfellsbæjar halda tónleika
á jólamarkaðnum í Kjarna í dag klukkan 17.30. Þeir munu
flytja sígild jólalög við undirleik Sigurjóns Alexanderssonar.
Jólamarkaðurinn verður opinn á föstudögum fram að jólum
en þar verður á boðstólum allt frá kínverskum silkislæðum
yfir í íslenskt handverk.
A
rnþór Ásgrímsson er
nýkrýndur bikarmeist-
ari í Fitness. Hann þarf
að hafa mikið fyrir því
að koma sér í form fyrir keppni
en undirbúningurinn skiptist í
uppbyggingartímabil og niður-
skurð. „Ég æfi tvisvar á dag og
á uppbyggingartímabilinu borða
ég fjögur til fimm þúsund kalorí-
ur á hverjum degi. Niðurskurðar-
tímabilið hefst um það bil 14 til 16
vikum fyrir mót en þá fer ég að
draga úr hitaeiningafjöldanum.
Ég borða engin kolvetni sex daga
vikunnar en hef svo einn kolvetna-
hleðsludag í hverri viku. Fjórum til
fimm vikum fyrir mót fer ég svo í
algert kolvetnasvelti.
En gerir þetta líkamanum gott?
„Ég borða hollan mat en vitanlega
er álagið frekar mikið síðustu tvær
vikurnar fyrir keppni. Þá er ég far-
inn að vökvatæma líkamann, sem
veldur álagi á nýrun en er mikil-
vægt þegar kemur að því að líta vel
út á sviðinu.“ Arnþór segir ekki um
eðlilegt líkamsástand að ræða og
að engum sé eðlislægt að líta svona
út árið um kring. „Ég er í svona
formi um átta vikur á ári ef ég
miða við að keppa tvisvar.“
Arnþór borðar eins og gefur að
skilja mikinn kjúkling, enda er
hann góður próteingjafi. „Á niður-
skurðartímabilinu borða ég aðal-
lega kjúkling, nautakjöt, olíur,
majones, hnetusmjör, hnetur og
allt sem er grænt. Hins vegar
sneiði ég hjá kolvetnaríku græn-
meti eins og gulrótum og tómöt-
um og öllum ávöxtum.“ Arnþór
borðar 400 grömm af kjúklingi á
dag, sem kostar hann 25.000 krón-
ur á mánuði. „Þó að ég leggi mikið
upp úr einföldum mat er þetta dýrt
fæði og skiptir miklu að fá góða
styrktar aðila,“ segir Arnþór, sem
gerði nýverið samning við Holta-
kjúkling. „Ég elda einfaldan mat á
virkum dögum því annars hefði ég
ekki tíma til að sinna fjölskyldu,
vinnu og æfingum. Það er því lítið
um kjúklingaspjót og fínar sósur
nema þá kannski um helgar en þá
nýti ég mér oft uppskriftir af holta.
is.“ Arnþór segir það koma sér
vel að unnusta hans Hrafnhildur
Halldórsdóttir keppi líka í fitness
og hefur hún því fullan skilning á
mataræðinu.
Nú er hann farinn að byggja sig
upp á ný og ætlar að leggjast undir
smákökufeld um jólin. „Ég ætla að
leggja upp næstu mót en mig lang-
ar að taka þátt í tveimur hér heima
og svo jafnvel í einu á erlendri
grund.“ vera@frettabladid.is
Mataræði Arnþórs Ásgrímssonar er úthugsað og skilar honum góðum árangri.
Arnþór er nýkrýndur bikarmeistari í fitness. Í niðurskurðinum fyrir mót borðar hann 400 grömm af kjúklingi á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 Holta kjúklingabringa
½ rauðlaukur
10 sveppir
1 lófi kasjúhnetur
1 matskeið gróft hnetu-
smjör (lífrænt) 1
matskeið olía
spínat blöð
krydd á kjúklinginn:
ítölsk hvítlauksblanda
og tandoori
Skerið kjúklinginn í
litla bita og eldið
á pönnu upp
úr olíunni. Saxið
sveppi og rauð-
lauk og bætið út á
kjúklinginn. Slökkvið
á hellunni og bætið
hnetusmjörinu út á
pönnuna. Leyfið því
að bráðna saman
við kjúklinginn og
meðlætið. Hellið kasjú-
hnetum yfir og berið
fram með spínatblöð-
um. Þau má líka elda
á pönnunni með hinu
meðlætinu.
HNETUSMJÖRSKJÚKLINGUR
með spínati og kasjúhnetum FYRIR 1
Borðar kjúkling
á hverjum degi
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Verð 8.290 kr.
Tilboð mánudaga-miðvikudaga
7.290 kr.
Jólahlaðborð
b d b18. nóvem er - 30. esem er
Hið óviðjafnanlega jólahlaðborð Perlunnar
er hafið. Það borgar sig að panta borðið þitt strax –
enda eitt vinsælasta jólahlaðborð á landinu!
Skötu- og jólahlaðborð Perlunnar
Þorláksmessa, í hádeginu
Nýárskvöldverður
1. janúar 2011
Gefðu einstaka kvöldstund í jólagjöf!
Það borgar sig að panta
skötuna
snemma!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SKÚBB
Meiri Vísir.