Fréttablaðið - 13.12.2010, Side 6

Fréttablaðið - 13.12.2010, Side 6
6 13. desember 2010 MÁNUDAGUR Ætti að samþykkja nýja Icesave-samkomulagið? Já 44,1% Nei 55,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Gefur þú bók eða bækur í jólagjöf? Segðu skoðun þína á vísir.is DÓMSMÁL Tveir karlmenn voru í gær sýknaðir af innflutningi á tæplega fjórum kílóum af efninu 4-flúoróamfetamín á síðasta ári. Efnið er náskylt amfetamíni en þar sem það var ekki skráð óheimilt á íslensku forráðasvæði þegar því var smyglað inn var burðardýrið sýknað. Smyglarinn bar að hann hefði talið sig vera að flytja inn eitt kíló af „lyktar- lausu“ kókaíni. Hinn maðurinn, sem ákærður var fyrir skipulagningu smygls- ins, var einnig sýknaður þar sem vafi þótti leika á sekt hans. Efnið er skráð ólöglegt í dag og var það gert upptækt samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. - jss Tveir fengu sýknudóm: Fluttu inn efni sem er náskylt amfetamíni KJÖRKASSINN Gegn depurð Modigen inniheldur Hypericum perforatum L 300 mg samsvarandi 0,9 mg af hreinu hypericin. Náttúrulyf gegn depurð, framtaks- leysi og vægu þunglyndi. Skammtar: Fullorðnir 1-2 hylki á dag. Ekki ætlað börnum yngri en 12 ára nema í samráði við lækni. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú tekur Modigen ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti. Takið ekki með öðrum lyfjum nema í samráði við lækni. Lesið fylgiseðil vandlega áður en notkun hefst. Markaðsleyfishafi: Jemo-pharm A/S N EY 2 4 11 0 1 SJÁVARÚTVEGUR Matvælastofnun, MAST, mun ekki fela faggildum aðilum framkvæmd eftirlits með sjávarútvegsfyrirtækjum frá og með 1. mars 2011. Eftirlitið verður eftir þann tíma ríkisrekið. Þetta gengur þvert á vilja Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samtaka fiskvinnslufyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins og gegn tilmælum sjávar- útvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Allt frá því að fyrsta matvælafrumvarpið var lagt fram á Alþingi vorið 2008 hafa samtökin lagt til að núverandi fyrirkomulag haldi sér. Í reglum ESB er heimildarákvæði um að stjórnvöldum sé heimilt að framselja framkvæmd eftirlitsins til faggilts aðila, en ágreiningur hefur verið um túlkun reglna ESB að þessu leyti. „Það er álit okkar að í öllu falli hafi MAST verið heimilt að gera samninga við skoðunarstofurnar um að þær gegndu sínu hlutverki áfram í umboði MAST. Sjónarmiðum okkar hefur ítrekað verið komið á framfæri við meðferð málsins, bæði í með- förum Alþingis og í samskiptum við stjórnsýsluna. Ákvörðun MAST um [að] taka alfarið yfir eftirlitið eru því ákveðin vonbrigði,“ segir Friðrik Friðriks- son lögfræðingur á heimasíðu LÍÚ. Árið 1998 var gerð krafa um faggildingu skoðunar stofanna. Henni er ætlað að tryggja hlut- leysi og hæfni skoðunaraðilans. - shá Snúið frá núverandi fyrirkomulagi í eftirliti með sjávarútvegsfyrirtækjum: Eftirlitið framvegis hjá ríkinu VIÐ FLÆÐILÍNUNA Hverfa á frá fyrirkomulagi sem var komið á 1993 og endurskoðað 1998. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Spítalar sameinaðir Landspítalinn og St. Jósefsspítali í Hafnarfirði verða sameinaðir. Guð- bjartur Hannesson heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt Birni Zoëga, forstjóra spítalans, þetta með bréfi. Samein- ingin á að taka gildi 1. febrúar 2010 og þegar hefur verið skipuð verkefnis- stjórn yfir sameiningunni. HEILBRIGÐISMÁL STOKKHÓLMUR, AP Tvær sprengingar urðu í miðborg Stokkhólms síð degis á laugardag. Sú fyrri átti sér stað við Drottningargötu þar sem bif- reið sprakk og sú síðari varð nokkr- um mínútum síðar við hliðargötu og mun ódæðismaðurinn hafa sprengt sjálfan sig upp með rörasprengju. Fjöldi manns var í miðborginni á þessum tíma og segja sjónarvottar að líklega hafi maðurinn borið sprengjuna um sig miðjan þar sem hann var með mikið sár á magan- um. Tvennt slasaðist í árásinni en upplýsingar um líðan fólksins lágu ekki fyrir í gærkvöld. Stuttu áður en sprengingarnar áttu sér stað barst lögreglu og fjöl- miðlum tölvupóstur þar sem vera sænskra hermanna í Afganistan var fordæmd. Lögreglan rannsak- ar nú póstinn, en höfundur hans er sagður reiður út í veru sænskra hermanna í Afganistan og illt umtal um Múhameð spámann. Lögreglan telur ekki ólíklegt að um hryðju- verk hafi verið að ræða. Núverandi viðbúnaðarstig hefur ekki verið hækkað enn sem komið er, en sænsk yfirvöld hækkuðu í nóvember síðastliðnum viðbúnað- arstig sitt vegna ótta við hryðju- verkaárás. Ástæðan var sögð sú að menn sem hafðir voru undir grun um að undirbúa árás í Svíþjóð, breyttu mynstri sínu og sáu yfir- völd því ástæðu til þess að bregð- ast við því. Fredrik Reinfeldt, forsætisráð- herra Svíþjóðar, bað fólk um að sýna stillingu og vera ekki of fljótt til að draga ályktanir vegna atburð- anna. „Þetta er óviðunandi vegna þess að Svíþjóð er þjóðfélag þar sem fólk með ólíkar skoðanir, bak- grunn og trúarskoðanir getur búið hlið við hlið í opnu samfélagi.“ sara@frettabladid.is Tilræðismaðurinn sprengdi sig í loft upp Tvær sprengingar urðu í Stokkhólmi síðdegis á laugardag. Tvennt slasaðist í sprengjuárásunum. Ódæðismaðurinn lést eftir að síðari sprengjan sprakk. LÖGREGLUMENN Á VETTVANGI Mildi þykir að ekki fórr verr þegar tvær sprengjur sprungu í miðborg Stokkhólms á laugardag. Fjöldi fólks var í bænum og segja sjónarvottar líklegast að árásarmaðurinn hafi borið sprengjuna innanklæða. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Reykhaf í fjölbýlishafi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að fjölbýlishúsi á Klepps- vegi í gær vegna mikils reyks. Gleymst hafði að slökkva á eldavélahellu í einni íbúðinni. Tveir bílar brunnu Slökkviliðið var kallað út í gær vegna tveggja bílabruna. Auk þess var mikið að gera hjá sjúkraflutningamönn- um, sem höfðu í gærkvöldi sinnt 25 útköllum um helgina en það er töluvert fyrir ofan meðallag. LÖGREGLUFRÉTTIR HEILBRIGÐISMÁL Allar heilbrigðis- stofnanir í ríkiseigu geta nú sent rafræna umsókn um lyfjaskírteini til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Fyrsta apótekið hefur verið tengt SÍ rafrænt og er miðlað þaðan réttindastöðu og lyfjaskír- teinum. Áætlað er að apótek muni tengjast kerfinu eitt af öðru og þau verði öll tengd um miðjan janúar. Lyfjaskírteini staðfesta aukna greiðsluþátttöku SÍ og hafa læknar til þessa sent umsóknir um skírteini á pappír til SÍ fyrir ein- staklinga. - sh Skemmri bið eftir lyfjaskírteini: Öll apótek tengd í janúar VIÐSKIPTI Toyota á Íslandi hefur selt 145 Landcruiser-jeppa af stærri gerðinni frá áramótum. Ætla má að heildarverðmæti bílanna nemi í kringum 1,5 milljörðum króna. „Það hefur verið ágæt sala á stærri bílum hjá okkur á árinu,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýs- ingafulltrúi Toyota á Íslandi. Landcruiser-bílarnir eru af tveimur gerðum: Landcruiser 150, sem kom á markað fyrir ári og kostar á bilinu 8,5 til 12 millj- ónir króna, og Landcruiser 200 sem kostar upp undir 17,6 milljón- ir króna. Flestir taka Landcruiser 150 sem kostar tæpar tíu milljón- ir króna. Toyota hefur selt 128 Land- cruiser 150 frá áramótum og sautján Landcruiser 200. Enginn Landcruiser 150 er til hjá umboð- inu og er þriggja mánaða bið eftir nýjum bíl. Landcruiser 200 hefur tímabundið verið tekinn af markaði. Frumvarp um breyt- i nga r á vörugjöld- um liggur nú á borði efnahags- og skattanefndar og gæti orðið að lögum frá Alþingi fyrir áramót. Breytingin felur í sér að vörugjöld á bíla miðast við útblástur í stað vélastærðar. Það þýðir að bíll sem er sparneytinn ber lægri vörugjöld en annar sem mengar meira. Páll vill ekki segja til um hvort frum- varpið hafi áhrif á bílakaup fólks en útilokar ekki að einhverjir hafi vilj- að tryggja sér bíl fyrir áramótin. - jab Þriggja mánaða biðlisti eftir stærstu jeppunum hjá Toyota á Íslandi: Roksala á Landcruiser-jeppum LANDCRUISER

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.