Fréttablaðið - 13.12.2010, Síða 8
8 13. desember 2010 MÁNUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
–einfalt og ódýrt
TILBOÐ MÁNAÐARINS
PANODIL HOT
926 KR.
TILBOÐ GILDIR ÚT DESEMBER
Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is
Gefðu Gjafakort Arion banka í jólagjöf.
Gjafakort sem hægt er að nota hvar sem er.
Þú velur fjárhæðina og þiggjandinn velur gjöfina.
Þú færð gjafakortið án endurgjalds
í desember í öllum útibúum Arion banka.
Gjafakort
Arion banka
er hægt að nota
hvar sem er
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.
1 Hver er höfundur bókarinnar
Doris deyr?
2 Hver var formaður íslensku
Icesave-samninganefndarinnar?
3 Í hvaða sæti hafnaði íslenska
kvennaliðið í EM í handbolta?
SVÖR
1. Kristín Eiríksdóttir 2. Lee C. Buchheit
3. 15. sæti.
STJÓRNSÝSLA Ákvörðun tveggja ráð-
herra um að fella niður 126 milljón
króna skuld Menntaskólans Hrað-
brautar við ríkið var ólögleg. Þetta
er mat meirihluta menntamála-
nefndar og fjárlaganefndar. Einn
nefndarmanna vill kanna hvort
ráðherrarnir hafi gerst brotleg-
ir við lög um ráðherraábyrgð. Frá
þessu var greint í fréttum Stöðvar
2 í gærkvöld.
Í svartri skýrslu Ríkisendur-
skoðunnar á málefnum mennta-
skólans Hraðbrautar, sem birt var í
haust, kemur fram að skólinn fékk
192 milljónir ofgreiddar frá ríkinu
en það skýrist af því að skólinn
fékk greitt fyrir fleiri nemendur
en teknir voru inn.
Fram kemur í skýrslunni,
sem náði til áranna 2003-2009,
að árið 2007 hafi forsvarsmenn
Hraðbrautar náð samkomulagi við
menntamálaráðuneytið um að 126
milljón króna skuld skólans, sem þá
hafði safnast upp, yrði felld niður.
Endanleg ákvörðun um þetta var
tekin af þáverandi menntamálaráð-
herra annars vegar og fjármálaráð-
herra hins vegar. Menntamálanefnd
hefur undanfarið fjallað um málefni
skólans og birtir skýrslu um málið í
dag. Þar kemur fram það mat meiri-
hluta nefndarinnar að ráðherrarn-
ir hafi enga heimild haft til að fella
niður þessa skuld.
Ólafur Johnson, skólastjóri Hrað-
brautar, dregur þá upphæð sem
Ríkisendurskoðun segir að skólinn
hafi fengið ofgreitt í efa í samtali
við Vísi. Ríkisendurskoðun segir
upphæðina 192 milljónir en Ólafur
segir að hún sé nær 120 milljónum.
Ástæðan fyrir misræminu sú að
samkvæmt samningi við mennta-
málaráðuneytið fær Hraðbraut
fjármuni í samræmi við áætlanir
um svokölluð nemendaígildi.
Menntamála- og fjárlaganefndir um niðurfellda skuld Hraðbrautar:
Segja ákvörðun tveggja ráðherra ólöglega
SKÓLASTJÓRI HRAÐBRAUTAR Ólafur
Johnson segir skólann hafa fengið
ofgreitt í kringum 120 milljónir.
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi þeirra sem
leggjast inn á geðdeildir vegna
lystarstols hefur tvöfaldast hér á
landi á 26 árum. Eru það niður-
stöður nýrrar rannsóknar: Lystar-
stol 1983-2008: innlagnir, sjúk-
dómsmynd og lifun, sem birt er í
nýjasta tölublaði Læknablaðsins.
Rannsóknin byggir á sjúkra-
skrám þeirra sem lagðir voru
inn á geðdeildir á Íslandi á tíma-
bilinu 1. janúar 1983 til ársloka
2008, þar sem lokaúrtak var 84
einstaklingar, þar af 79 konur og
5 karlar. Meðalaldur sjúklinga var
18,7 ár og hafa tvær konur látist
vegna sjúkdómsins á rannsóknar-
tímabilinu, sem er lægra hlutfall
en á Vesturlöndum.
Rannsókninni var skipt niður í
tvö tímabil, 1983 til 1995 og 1996
til 2008. Á fyrra tímabilinu voru
nýjar innlagnir vegna lystarstols
1,43 á hverja 100.000 íbúa á ári,
11 til 46 ára. Á seinna tímabilinu
fjölgaði tilfellum um meira en 100
prósent, en þá voru innlagnir 2,91
á hverja 100.000 íbúa.
Guðlaug Þorsteinsdóttir, geð-
læknir hjá göngudeild geðsviðs
Landspítalans, segir að tilvikin
séu þrátt fyrir allt mjög fá og
alvarleg tilfelli af átröskunum
og lystarstoli séu afar sjaldgæf.
Aukningu nýrra tilfella megi
rekja til aukins nýgengis innlagna
hjá barna- og unglinga geðdeild
Landspítalans.
„Það er marktæk aukning síð-
ustu tíu árin, en þetta eru svo fáir
einstaklingar að það er erfitt að
draga ályktanir,“ segir Guðlaug.
„En upplýsingum um nýgengi til-
fella á Íslandi utan stofnana er enn
ábótavant.“
Meðallengd fyrstu innlagnar var
98 dagar á fullorðinsdeildum og
130 á unglingadeildum. Alls voru
tíu einstaklingar vistaðir nauðugir.
Rannsóknin sýndi fram á að
algengt er að lystarstols sjúklingar
skaði sjálfa sig eða reyni að fremja
sjálfsvíg inni á geðdeildum.
Á rannsóknartímabilinu var
hlutfall þeirra sem lögðust inn
oftar en einu sinni um fjörutíu
prósent. Eftir að átröskunarteymi
Land spítalans var komið á árið
2006 hefur legudögum lystarstols-
sjúklinga fækkað og meðferðar-
úrræði verið bætt.
„Enn vantar þó viðeigandi eftir-
meðferðarúrræði, meðferðar-
heimili þar sem fólk getur verið
í endurhæfingu, eins og tíðkast
í nágrannalöndum okkar,“ segir
Guðlaug.
sunna@frettabladid.is
Tvöfalt fleiri
greinast með
lystarstol
Fjöldi lystarstolssjúklinga hefur tvöfaldast frá árinu
1983. Aukninguna má rekja til aukins nýgengis á
BUGL. Konur eru 93 prósent sjúklinga. Dánartíðni
er lág og alvarleg tilfelli mjög sjaldgæf.
ÁTRÖSKUN Innlögnum á geðdeildir vegna lystarstols hefur fjölgað á síðustu árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN