Sameiningin - 01.08.1892, Blaðsíða 15
—79-
iö uppi vörn fyrir söfnuðinn, vottar kirkjuþingið innilegt þakk-
læti sitt.
3. Sá hluti safnaðarins, sem hlítti úrskurði forseta kirkju-
fjelagsins og heldur við sín gömlu safnaðarlög, heldur áfram,
eins og áður hefur verið lýst yfir, að vera hinn löglegi Selkirk-
söfnuður og heldur áfram að vera eigandi ísl. kirkjunnar í Sel-
kirk samkvæmt lögum safnaðarins.
4. Kirkjuþingið felur st.nefnd þeirri, sem kosin verður á
þessu þingi, á hendur, að hjálpa söfnuðinum til þess að ná eign-
arrjetti á kirkjunni hið allra bráðasta.
M. Paulson. Asv. Sigurð'sson. P. S. Bardal.
Nefndarálitið samþykkt.
Tilkynning Victoriasafnaðar. Nefndin lagði fram brjef
frá fulltrúum safnaðarins, er tilkynnti forseta kirkjufjelagsins,
að söfnuðurinn tryði því ekki, „að allar hinar kanonisku bækur
gamla og nýja testamentisins sjeu guðs opinberaða orð.“ Enn
fremur var gerð fyrirspurn um, hvort söfnuðurinn gæti fram-
vegis álitizt meðlimur kirkjufjelagsins. Álit nefndarinnar var
þannig:
„ Eptir brjefinu frá Victoriasöfnuði að dæma, lítur út fyrir,
að söfnuðurinn hafi ekki gjört sjer vel ljósa grein fyrir þýðing
fundarsamþykktar þeirrar, sem gjörð var á safnaðarfundinum þ.
7. ]:>. m.
þess vegna leggur nefndin það til, að þingið feli forsetan-
um að skrifa söfnuðinum, ef ske mætti, að hann fyrir bróður-
legar leiðbeiningar sæi að sjer og hjeldi svo áfram að vera trúr
við játningu hinnar lútersku kirkju vorrar.
iV. St.gr. þorlálcsson. B. B. Jónsson. Sig. Sigurðsson.
Málið urn ferðakostnað lcirkjuþingsmanna. Nefndarálit:
- Nefndin, sem sett var í málið um ferðakostnað erindsreka
á kirkjuþing, leyfir sjer að leggja fram eptirfylgjandi álit:
Af því málið var eigi rætt áður en það var sett í nefnd, og
því eigi tækifæri til að gera neina uppást. í því, álítum vjer
nauðsynlegt að taka það fram, að ílutningsmaður þess fer fram
a, að kirkjufjel. borgi ferðakostnað erindsreka á þing.
Oss finnst málið vera í alla staði þess vert, að þingið gefi
því alvarlegt athygli sitt. í því fyrirkomulagi, sem það fer fram
á, kemur fram sú jafnaðarhugmynd, sem ætíð ætti að ríkja inn-