Fréttablaðið - 30.12.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.12.2010, Blaðsíða 10
 30. desember 2010 FIMMTUDAGUR10 VA LHÖL L BÁSAR Mjúk kláðafrí ullarnærföt úr 100% Merino ull. 100% Merino ull sem heldur vel hita á líkamanum og dregur raka frá húðinni. fyrir börn fyrir fullorðna Verð bolur: 5.900 kr. Verð buxur: 4.700 kr. Verð bolur: 10.800 kr. Verð buxur: 9.500 kr. SPÓI Góð 100% Merino ullarnærföt sem halda barninu þurru og hlýju. fyrir ungbörn Verð bolur: 3.800 kr. Verð buxur: 3.500 kr. Kláð afrí ull Kláð afrí ull Kláð afrí ull ELDUR OG ELDINGAR Þegar eldgos verður undir jökli, sjó eða vatni verða meiri eldingar en ella, segir á vef Almannavarna. Eldingarnar verða vegna rafhleðslu í gosmekkinum. Hleðslan verður til í gígnum við samspil vatns og kviku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Á FIMMVÖRÐUHÁLSI Fjöldi fólks vildi berja augum eldgosið á Fimmvörðuhálsi og svo það sem hófst í Eyjafjallajökli. Töluverð umsvif urðu því í að ferja ferðafólk í þyrlum upp að gosstöðvunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON GOSMÖKKUR Hér má sjá gosstrókinn liggja í suður frá gígnum í Eyjafjallajökli. Gosstrók- urinn náði oft mikilli hæð og barst aska yfir til meginlands Evrópu og truflaði flugumferð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖSKUÞVOTTUR Hér má sjá Ragnar Þorra Vignisson á bænum Hemlu, skammt austan Hvolsvallar, þvo ösku af heimilisbílnum með gosmökkinn í baksýn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Eldgos hófst í sprungu á norðanverðum Fimmvörðuhálsi, skammt vestan göngu- leiðarinnar, 20. mars síðastliðinn. Gosið stóð í tæpan mánuð og hafði ekki teljandi áhrif, þótt ný sprunga opnaðist í lok mánaðarins og hraun rynni í Hvann- árgil. Töluðu sumir um „túristagos“ en 12. apríl voru ekki frekari merki um elds- umbrot á þessum fyrstu gosstöðvum. Laust eftir miðnætti 14. apríl hófst hins vegar öflugra gos undir jökulhett- unni í aðalgíg Eyjafjalla með tilheyrandi flóðum. Rjúfa þurfti þjóðveginn við nýju Markarfljóts brúna og mikill viðbúnaður var af hálfu Almannavarna við að forða bæði fólki og búfénaði af hættusvæðum. Þá varð öskustrókurinn úr gosinu til þess að flugumferð í Evrópu lamaðist að stórum hluta í sex daga. Strókurinn stóð enda um níu kílómetra upp í loftið þegar mest lét. Sprengivirkni var mest fyrstu viku gossins, sem þó stóð fram í júní. Gosið hafði mikil áhrif hér heima vegna öskufalls nærri gosstöðvunum og vatna- vaxta og gætir þeirra áhrifa enn. Erlendis röskuðust hins vegar ferðaáætlanir um fimm milljóna manna. Kostnaður hér heima vegna gossins hefur verið metinn rúmlega 800 milljónir króna. Erlendis er kostnaður vegna áhrifa á samgöngur talinn í tugum milljarða. Á alþjóðlegri ráðstefnu Keilis um gosið kom fram að flugfélög eru talin hafa tapað 23 milljörðum króna á degi hverjum sem flugumferð lá niðri í Evrópu. Er þá ótalinn allur annar kostnaður. Þá er gosið í Eyjafjallajökli einn af fimm stærstu atburðum ársins á heimsvísu sam- kvæmt tölum leitarvélarinnar Google, en sú niðurstaða byggir á því hversu oft leitar- orð koma fyrir. Auk gossins voru talin til jarðskjálftinn á Haítí, Vetrarólympíuleik- arnir í Vancouver, olíuslysið í Mexíkóflóa og Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Eyjafjallajökull er fimmti stærsti jökull Íslands og hefur gosið þar fjórum sinnum síðan land byggðist, fyrst árið 920, þá 1612, 1821 og loks núna á þessu ári. - óká Eldosið sem hafði áhrif um allan heim INNLENDAR FRÉTTAMYNDIR ÁRSINS 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.