Fréttablaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 38
22 2. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
LÁRÉTT
2. utan, 6. frá, 8. er með, 9. háttur, 11.
tveir eins, 12. umhverfis, 14. dralla,
16. karlkyn, 17. þvottur, 18. farfa, 20.
vörumerki, 21. útgáfunr. tónverks.
LÓÐRÉTT
1. steintegund, 3. skammstöfun, 4.
grasplanta, 5. kraftur, 7. flutningaskip,
10. gljúfur, 13. net, 15. eldhúsáhald,
16. nögl, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. nema, 6. af, 8. hef, 9. lag,
11. ll, 12. kring, 14. slóra, 16. kk, 17.
tau, 18. lit, 20. ss, 21. ópus.
LÓÐRÉTT: 1. talk, 3. eh, 4. melgras, 5.
afl, 7. farskip, 10. gil, 13. nót, 15. ausa,
16. kló, 19. tu.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Í sögunni um Öskubusku voru tær og hæll sneidd af til að skór passaði á fót. Grikk-
ir sögðu forðum frá Prokrustes, sem teygði
fórnarlömb sín eða hjó af þeim fætur til að
þeir pössuðu í legstæði. Svona sögur voru
mönnum áminning um að óhentugir staðlar
valda skaða.
NÚ hafa – í góðri trú – verið settar fram
á vegum Reykjavíkurborgar tillögur um
skóla og lífsskoðanir. Meina á börnum að
fara í fermingarbarnaferðir á skólatíma
og banna á að trúarritum verði útbýtt í
skólum. Banna á bænir, sálmasöng og list-
sköpun í trúarlegum tilgangi í skólunum.
Prestar verði ekki í áfallateymum. Þetta er
stefna, sem virðist skera trú frá skólum. Í
tillögunum er úthýst í stað þess að auðga
með fjölbreytni. Þar er þrengt en ekki
víkkað, þar er lokað í stað þess að opna.
Tillögur, sem þjóna mannréttindum
og þörfum samfélags ekki vel, þarf
að endurskoða.
FRELSI til trúar er mikilvægt
en líka frelsi til trúleysis. Skól-
ar eiga að virða ólíka afstöðu
barna og foreldra þeirra til
lífsskoðana. Réttur eins má
ekki að vera á kostnað annars.
Minnihlutahópur á ekki að kúga
meirihluta. Þjóðkirkjan hefur
verið afslöppuð í samskiptum við
skóla. En hún hafnar að skólar séu
tæki í þágu stjórnmálahreyfingar, einnar
lífsskoðunar, einhverrar menningarbylt-
ingar eða trúarstefnu. En hún hvetur til, að
skólar vinni með ábyrgu fagfólki annarra
stofnana og hreyfinga þegar hlutverk eru
skýr og samskiptahættir vel skilgreindir.
TRÚARLEG fjölbreytni vex í samfélagi
okkar Íslendinga. Umburðarlyndi í trúar-
efnum og gagnvart mismunandi lífsskoð-
unum verður ekki til með gettómyndun og
aflokun, heldur fremur við kynni, tengsl
og opnun. Lærum af mistökum nágranna-
þjóða okkar. Samfélaginu er lífsnauðsyn að
skólarnir taki þátt í mótun fjölmenningar-
samfélags. Skólum á ekki að loka og ala þar
með á ótta og átökum, heldur ætti að fjölga
heimsóknum fólks með ólíkar lífsskoðan-
ir. Efla þarf kynningu á mismunandi trú og
trúariðkun. Kristnin boðar virðingu gagn-
vart fólki og mismunandi trú.
Í stað þess að loka ættu ráð borgarinnar
að hvetja til kynningar lífsskoðana til að
Reykvíkingar framtíðar verði betur færir
um að meta með þroskuðum hætti trú og
trúleysi, gildi, dyggðir og lesti. Óttumst
ekki margbreytileikann, heldur fögnum
honum og eflum traustið. Leyfum stjúp-
unum, Öskubuskunum, öllum systrum og
bræðrum stórfjölskyldunnar að fara á ball-
ið í sínum fötum, dansa með sínum hætti og
án þess að eiga á hættu að missa tær, hæla,
svo ekki sé nú talað um fætur.
Skera tærnar af?
Bíddu bara
þar til þú
sérð hvað
þú keyptir
handa mér í
jólagjöf!
Ojojoj!
Þetta var
blóðugur
pakki!
Heldurðu
að þú sofir
eitthvað í
nótt Maggi
minn?
Ertu vitlaus? Djöfla-
nunnurnar III er
barnaefni! Númer tvö
var miklu verri! Hvað
er það ógeðfelldasta
sem þú hefur séð
pabbi?
Liverpool-
Arsenal
26. maí
1989!
Já, þessi þarna þegar
Michael Thomas var
í aðalhlutverkinu?
Þegar hann birtist
rétt í lokin og gerir
ógeðslega hluti?
Einmitt hann, já!
Ekki fara út í smá-
atriði! Þá verður
þetta erfið nótt!
Ertu viss um
að þú sért
ekki að ýkja
þetta aðeins?
Svona
líður
mér alla
vega.
Fæturnir mínir eru
orðnir feitir.
Ég var aldrei með feita
fætur, en nú eru þeir stór-
ir, útbelgdir og ógeðslegir!
Þetta er mér að
kenna, afsakið.
Það er best að
taka ábyrgð á
öllu því mér
verður hvort eð
er líklega kennt
um það hvort
eð er.
Mjaðmirnar
á mér voru
líka minni
áður en ég
kynntist þér...
20:30 Tónlist Kristskirkja
Opus 42
Lasse Thoresen
Nordic Voices
Tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs 2010
www.midi.is/Við inngang
17:00 Málþing Norræna Húsið
Samfélagslega
ábyrgir bankar
Leið að réttlátu hagkerfi
Umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs 2010
Aðgangur ókeypis
20:00 Kvikmyndir Bíó Paradís
Submarino
Leikstjórinn Thomas
Vinterberg situr fyrir
svörum eftir sýninguna
Kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs 2010
www.midi.is/Við inngang
Norræn listahátíð
Nordisk kulturfestival
Reykjavík
www.norraenahusid.is/ting 28.10.—7.11.2010
í d
ag
Meiri Vísir.
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
FÁÐU FÍNA OG FRÆGA
FÓLKIÐ Í HEIMSÓKN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN