Sameiningin - 01.11.1945, Side 13
189
Þessa kveðju mína sendi eg ykkur með vini mínum,
prófessor Ás-mundi Guðmundssyni. Eg gleðst af því, að hann
hefir verið til þess kjörinn að flytja ykkur kveðjur móður-
kirkjunnar hér á íslandi; því að bæði þekki eg af all-langri
og ljúfri samvinnu við hann áhuga hans fyrir eflingu
kristindómsins og kristilegrar menningar hjá okkar þjóð,
og eins þann hlýja hug sem hann ber til ykkar.
Kona mín og börnin senda ykkur ásamt mér hjartan-
legustu kveðjur sínar og árnaðaróskir. Guð blessi Kirkju-
félagið og efli það til blessunarríks starfs öllum Vestur-
íslendingum til heilla. Guð blessi ykkur öll og alla Vestur-
íslendinga.
Ykkar einlægur vinur og bróðir
Friðrik Hallgrímsson.
Kveðja frá séra Jakob Jónsynni
Lesin af Próf. Á. Guðmundssyni.
Reykjavík, 18. júní, 1945.
Með þökk fyrir samverustundirnar á júbilþinginu fyrir
tíu árum, er eg naut gestrisni Kirkjufélagsins, og minnugur
þeirrar velvildar og trausts, sem Immanúelssöfnuður í
Wynyard bar til mín, er eg um skeið hafði prestsþjónustu
hjá honum ásamt Sambandssöfnuðunum, sendi eg kirkju-
þingi hins evangelisk lúterska kirkjufélags, heillaóskir mín-
ar og bið því blessunar Guðs.
Jakob Jónsson.
Kveðja
Flutt Hinu Evangelisk Lúterska Kirkjufélagi fyrir
hönd Hins Sameinaða Kirkjufélags, af séra Philip
M. Péturssyni, föstudagskvöldið, 22. júní, 1945.
Lesin af séra Philip M. Péturssyni.
Mér hefir verið falið það hlutverk af kirkjufélagsnefnd-
inni, sem eg tilheyri, Iiins Sameinaða Kirkjufélags íslend-
inga í Norður Ameríku, að bera þessu kirkjufélagi, Hinu
Evangelisk Lúterska Kirkjufélagi íslendinga í Vesturheimi,