Sameiningin - 01.11.1945, Blaðsíða 16
192
á þessu söguríka 60 ára afmælisþingi kirkjufélagsins. Jafn-
fra-mt vil eg nota þetta tækifæri til þess að þakka kirkju-
félaginu hjartanlega fyrir hinar hlýju kveðjur, sem það
sendi félagi voru á 25 ára afmæli þess í fyrra vetur.
Slíkar 'kveðjusendingar eru miklu meira virði en marg-
an grunar. Þær eru gagnskifti góðviljans, en einskis er oss
fremur þörf í félagslegu starfi á hvaða sviði sem er.
Mér er það því sérstaklega ljúft hlutverk að hafa verið
falið að flytja kirkjufélaginu kveðjur og velfarnaðaróskir
Þjóðræknisfélagsins á þessum merku tímamótum í sögu
kirkjufélagsins. Kirkjan 'íslenzka vestan hafs hefir verið
meginstoð í þjóðræknisbarátt-u vorri á liðinni tíð. Trúrækni
og þjóðrækni hafa mjög fallið í sama farveg, verið vígðir
og fastknýttir þættir í sögu Islendinga í landi hér. Og enn
eru þeir áreiðanlega margir í vorum hópi, sem heilhuga
taka undir með skáldinu:
“Og allir þeir, sem guði sínum gleyma,
þeir glata fyrstir sinni þjóð.”
Ekki er það heldur orðinn neinn smáræðisskerfur, sem
þetta kirkjufélag hefir, beint og óbeint, lagt til þjóðræknis-
legrar viðleitni vorrar, til varðveizlu máls vors, hugsjóna-
arfs og annara menningar-verðmæta vorra, með víðtæku
og margþættu starfi sínu á liðnum 60 árum. Fyrir þá mikil-
vægu starfsemi í þágu þjóðræknismála vorra vil eg, í nafni
Þjóðræknisfélagsins, þakka kirkjufélaginu af heilum huga,
jafnframt því, sem eg flyt þér, herra forseti, prestum
kirkjufélagsins og safnaðarfólki þess í heild sinni kærar
kveðjur félags vors og blessunaróskir ykkur öllum til handa.
Hér er vitanlega hvorki staður né stund til þess að
rekja nánar fjölþætta hlutdeild kirkjufélagsins í þjóðræknis-
málum vorum, þó fróðlegt hefði verið, né heldur hægt að
geta allra hinna mörgu í hópi félagsmanna þess, karla og
kvenna, sem verið hafa einlægir unnendur þeirra mála og
lagt þeim lið víðsvegar um byggðir vorar. Eg verð að láta
mér nægja að nefna þá eina úr þeirra flokki, sem mest hafa
komið við sögu Þjóðræknisfélagsins, skipað þar lengst em-
bætti eða eiga nú sæti í stjórnarnefnd þess, jafnhliða því,
sem þeir -hafa gengt öðrum nefndarstörfum í þágu þess.
Úr hópi prestanna eru það séra Jónas A. Sigurðsson,
árum saman forseti Þjóðræknisfélagsins; séra Rúnólfur