Sameiningin - 01.11.1945, Blaðsíða 17
193
Marteinsson, fyrrum vara-forseti þess og um mörg ár skóla-
stjóri laugardagsskóla þess; séra Valdimar J. Eylands, vara-
forseti félagsins um allmörg undanfarin ár og áður ritari
þess og vara-ritari; séra Sigurður Ólafsson, fyrrv. ritari
þess; séra Egiil H. Páfnis, núverandi vara-féhirðir og fyrr-
verandi vara-fjármálaritari, og séra B. Theodore Sigurd-
>on, fyrrverandi vara-ritari.
Úr flokki leikmanna skulu þessir sérstaklega nefndir:
Tón J. Bíldfell, forseti Þjóðræknisfélagsins um margra'ára
skeið, auk þess, sem hann hefir skipað sess vara-forseta og
ritara; Ásmundur P. Jóhannsson, féhirðir og vara-féhirðir
árum saman, umsjónarmaður laugardagsskóla félagsins í
meir en ártug, er átt hefir -kringum 20 ár sæti í stjórnar-
nefnd þess; Árni Eggertson, féhirðir félagsins í hálfan annan
áratug, er einnig gegndi embætti vara-forseta; Guðmann
Levy, fjármálaritari í meir en 10 undanfarin ár; Sigurbjörn
Sigurjónsson, skjalavörður félagsins fyrstu tvö árin; Sig-
urður W. Melsted, skjalavörður árum saman; Finnur John-
son, er gegndi því embætti um fjögra ára skeið; Klemens
Jónasson, fjármála- og vara-fjármálaritari um nokkur ár;
Mrs. Ingibjörg Jónsson, vara-ritari um allmörg ár og skóla-
stjóri laugardagsskólans um langt skeið, eina konan, sem
átt hefir sæti í stjórnarnefndinni; Grettir L. Jóhannsson
ræðismaður, núverandi féhirðir og Árni G. Eggertson, K.C..
núverandi vara-fjármálaritari. Enn aðra mætti nefna úr
leikmannahópi félagsins, þó eigi verði lengra út í þær sakir
farið. En þeim öllum, sem þar eiga hlut að máli, bera sér-
stakar þakkir fyrir áhuga sinn og menningarlega starfsemi
í þá átt.
Minnugur er eg þess einnig, að jafnframt því, sem
haldið er á þessu þingi 60 ára starfsafmæli kirkjufélagsins,
er að verðugu minnst 100 ára afmælis hins mikilhæfa og
ástsæla leiðtoga þess, dr. Jóns Bjarnasonar. Hann var ís-
lendingur og þjóðræknismaður í orðsins fegurstu og sönn-
ustu merkingu; vildi bæði varðveita og ávaxta hinn íslenzka
menningararf sinn og að vegur hinnar íslenzku þjóðar yrði
sem mestur. Hann getur verið oss til fyrirmyndar um heil-
huga og heilbrigða rækt við ættar- og menningarerfðir
vorar, og enn er snilldarræðan, sem hann flutti á fyrstu
þjóðhátíðinni íslenzku vestan hafs, í Milwaukee, 2. ágúst
1874, hin tímabærasta þjóðræknishvöt.