Sameiningin - 01.11.1945, Blaðsíða 33
209
Til útgáfu blaðsins “Our Parish M'essenger” 75.00
Til Vancouver safn. (að meðtöldum sálmab.).... 544.65
Til Hallgrímssafnaðar (að meðtöldum sálmab.) 862.50
Til Girnli prestakalls (gjöf til húsbyggingar og
sálmabækur) ................................ 225.10
Námsstyrkur til guðfræðistúdenta ............ 750.00
Alls $2,457.25
Styrkur meðtekinn frá Board of American Missions á
síðastliðnum sex árum er alls að upphæð $22,770.31. Þar í
viðbót hefir B.A.M. lánað söfnuðum til "byggingarþarfa
$2,900.00.
Guð hefir gefið okkur góðan og blessunarríkan árangur,
þar sem trúboðsstarfið hefir undir Hans náðarríku hand-
leiðslu verið unnið á skipulögðum grundvelli. Guð gefi að
framtíðin veiti okkur margföld tækifæri til slíkrar bless-
unar í árangursmiklu starfi á öllum trúboðsakrinum. Vissu-
lega er sá mikli akur “hvítur til uppskeru”, — en verka-
mennirnir eru of fáir. Tveir ungir menn eru við undir-
búningsnám undir prestsstarf innan Kirkjufélagsins. Þeir
eru Eric H. Sigmar og Hjörtur B. J. Leo. Fleiri ungir menn
þurfa að fylkjast í lið með þeim. Myndi þá trúboðsvið-
horfið fljótt snúast á ennþá betri veg.
Árangurinn af heimatrúboðsstarfi okkar er góður. Guð
gefi 'hann betri. Trúboðsnefnd Kirkjufélagsins.
B. A. Bjarnason, skrifari nefndarinnar.
Ræðugerð og áheyrn
Ekki er það tilgangur minn að bera fram afsökun ræðu-
mensku presta né annara; ekki heldur er hér borin fram
ásökun í garð þeirra, sem hlýða á erindi manna, en eitt er
það atriði í þessu sambandi, sem lítið er minst á.
Það er sagt að ræður manna, sér í lagi prestanna, séu
misjafnar, vegna þess að þeir séu misjafnlega fyrir kallaðir,
mun það geta átt sér stað. Því er iðulega gleymt, að mat
ræðunnar og áhrif fer oft og einatt eftir því, hve áheyr-
endurnir eru fyrir kallaðir.
Menn geta verið þreyttir, sifjaðir eða að öðru leyti illa
á sig komnir, svo að ræður, jafnvel vel samdar og vel fram