Sameiningin - 01.11.1945, Side 19
195
Skýrsla
yfir starf Bandalags Lúterskra Kvenna s. I. ár.
Herra forseti og erindrekar:
Áður en eg skýri frá starfi Bandalagsins á hinu liðna
ári, vil eg færa þessu sextugasta og fyrsta kirkjuþingi Hins
Evangelisk Lúterska Kirkjufélagi árnaðar- og blessunar-
óskir frá systurfélaginu B.L.K.
Við lítum ætíð til baka á öllum merkum tímamótum,
og við þetta tækifæri viljum við minnast þeirra sem á
fyrstu árunum lögðu grundvöllinn, traustan og guði þókn-
anlegan grundvöi! ulndir starf kirkjufélagsins. Á þeim
grundvelli hefir, einn mansaldur eftir annan, verið byggt og
starfið blessast — og á þessu aldarafmæli Dr. Jóns Bjarna-
sonar vildum við líka minnast með lotningu hins ógleyman-
lega, andlega leiðtoga sem átti svo drjúgan þátt í að leggja
þann grundvöll.
Starf Bandalags lút. kvenna hefir á s. 1. ári miðað að
því að koma á stofn hinum fyrirhuguðu sumarbúðum
Engin kristindómskensla starfrækt í s. 1. 2 ár, vegna þess
að ómögulegt var að fá leigðan “Camp”. Árið 1942 var,
fyrir ötula frammistöðu séra Egils Fáfnis, staríræktur
“Camp” að Rock Lake í Argyle bygð, en því miður fékst
ekki það pláss 1943. Ómögulegt var, vegna stríðsins að
hefja neina framkvæmd í Árnes, þar sem keyptur hafði
verið blettur fyrir “Camp”. Vakti það töluvert mikið um-
tal að ekki var hægt að koma þar á neinum framkvæmd-
um og almenn óánægja gerði nauðsynlegt að ræða um
hvort heppilegra væri að breyta til. I vor kom boð frá
manni, Sem bauð tvær ekrur af landi rétt sunnan við
Gimli. Þetta þótti mjög lítið pláss og að mörgu leyti alls
ekki ákjósanlegt, en forseti kallaði fund með stjórnar-
nefnd B.L.K. til að ráðstafa boðinu. Var plássið skoðað, en
með því að nefndin sem staðið hafði fyrir kaupum á Árnes
landinu, fannst engin bót í að eignast þetta pláss, var ekki
gengið til atkvæða, en boðið féll í gegn af sjálfu sér.
í fyrstunni þegar farið var að hugsa um land fyrir
sumarbúðir, hafði oft verið minst á Húsavík, sem ákjósan-