Sameiningin - 01.11.1945, Síða 21
197
Væri eitthvað, sem hægt væri að gera í þá átt mætti
snúa sér til forstöðukonu þeirrar nefndar, Mrs. H. G. Hen-
rickson.
Kvendjáknastarf U.L.C.A. var tekið upp á dagskrá þings-
ins í sumar og væntum við að geta vakið áhuga á því máli.
Vera má að svarið komi úr þessari átt og öflugt starf megi
í framtíðinni vera uppskera Bandalagsins. Við sáum — en
Guð gefur uppskeruna.
Á þessu demantsafmæli kirkjufélagsins er efst í huga
þær hugsjónir, sem feður okkar báru sér í hjarta. Látum
okkur af fremsta megni, gera alt sem í okkar valdi stendur til
að riðja þessum hugsjónum braut; leggja fram fé eftir
megni og sí-vaxandi áhuga og einlægan vilja til fram-
'kvæmda.
Elliheimilið Betel er ein slík hugsjón og það er líka
sómi íslendinga í þessu landi að þeir sjá fyrir sín.um öldnu
sonum og dætrum.
Látum okkur nú taka saman höndum og byggja fyrir
hina uppvaxandi kynslóð sem bráðum tekur við okkar
starfi.
Guð gefi sú hugsjón rætist.
Virðingarfyllst,
Margrét Stephensen.
Skýrsla
yfir bindindisstarfsemina, gefin af Mrs. A. S. Bardal
á þingi Hins Evangelisk Lúterska Kirkjufélags ís-
lendinga í Vesturheimi, haldið í Winnipeg
21.—26. júní, 1945.
Forseti og kirkjuþings-fulltrúar:
Eg legg hér fram mína skýrslu, sem erindreki yðar í
Manitoba Temperance Alliance. Það, að eg hefi verið ú-t-
nefnd ár eftir ár, sannar, að okkar lúterska kirkjufélag ber
bindindi fyrir brjósti, en kristnu bræður og systur, það er
ekki nóg að bara kjósa erindreka til að gefa skýrslu á
hverju ári um starfið. Það þarf að vera sýnt í verkinu í
öllu starfi okkar þinganna á milli, eins og önnur deildar-
störf, sem þetta þing tekur upp á sína dagskrá. Það þarf að