Sameiningin - 01.11.1945, Blaðsíða 29
205
erindreki safnaðarins í Vancouver. Hafa konurnar starfað
vel og skörulega söfnuðinum til heilla. Þær hafa lagt til
sálmabækur og miklar peningagjafir til safnaðarins.
Gjafir til safnaðarins hafa komið að úr ýmsurn áttum.
Board ofAmerican Missions hefir gefið söfnuðinum upplag
af enskum sálmabókum -og altarisáhöld. Altarisdúkar hafa
komið frá söfnuði í New York ríki. Ekkja Sigfúsar F. Páls-
son sál. gaf söfnuðinum bókasafn hans, og hefir það verið
af hendi látið fyrir peninga, sem gengið hafa í kirkjubygg-
ingarsjóð safnaðarins, sem er nýmyndaður. Aðrar mynd-
arlegar gjafir hafa komið frá ýmsum nær og fjær. Gjafir
og samskot á jólum námu $265.00. Samskot til trúboðs
vors voru $30.00.
Aðsókn að messum virðist hafa farið vaxandi. Meðaltal
kirkjusóknar á ársfjórðungi fram að september-lokum s. 1.
var 62 manns; fyrir ársfjórðunginn fram að 31. des. 83; en
fyrir tímabilið á þessu ári fram að 31. maí, 141. Jólamessan
var sótt af 275 manns.
Meðlimatala safnaðarins hefir hækkað. Fermdir með-
limir eru nú 139. Meðlimir sem hafa gengið til altaris síðasta
ársfjórðung eru 60. Tuttugu börn voru skírð á árinu. Tuttugu
og tvær messur voru fluttar á sama tímabili. Samkvæmt
gefnum skýrslum hafa heimsóknir prestsins á árinu numið
168 al'ls.
í samanlögðum sjóðum safnaðarins og kvenfélagsins
voru $1,200 í byrjun ársins 1945, þar af í byggingarsjóði
$733.51. Af fyrirhuguðum prestslaunum hefir söfnuðurinn
tekið að sér að greiða einn þriðja part, en Board of American
Missions leggur til afganginn. Er gjört ráð fyrir að þessi
styrkur fari minkandi um 10% á ári hverju, og að söfn-
uðurinn taki að sér afgreiðslu þeirra hlutfalla. Er þannig
fyrirhugað, samkvæmt þessari áætlun, að söfnuðurinn verði
orðinn fjárhagslega sjálfstæður eftir tíu ár.
Vatnabyggðir í Saskatchewan.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir undanfarin ár, hefir
Trúboðsnefndinni ekki auðnast að sjá framtíð þessa stóra
og fjölmenna prestakalls borgið. En ekki mun nefndinni
finnast mál komið að leggja árar í bát. Þvert á móti, gjörir
nefndin ráð fyrir áframhaldandi viðleitni til að leggja grund-
völl undir varanlegt framtíðarstarf eftir því sem framast
er unt.