Sameiningin - 01.11.1945, Síða 30
206
Tilraun var gjörð, sem reyndist árangurslaus, að fá
séra S. Oct. Thorlakson til að taka að sér aukið heimatrú-
boðsstarf á prestlausum svæðum kirkjufélagsins, og skyldi
hann verja alt af hálfu hverju ári í Saskatchewan. Var hinn
góði bróðir fús til þess, en Board of American Missions var
búið að ráðstafa framtíð hans á annan hátt.
Síðar var tilraun gerð til að fá Board of American
Missions til að kalla séra Guðmund P. Johnson til um-
ferðaprestsstarfs, og skyldi hann hafa aðsetur í Wynyard,
starfa þar í Vatnabygðum part af tímanum en heimsækja
einnig aðrar bygðir og prestslaus svæði. En B. A. M. dauf-
heyrðist við þeirri beiðni. Gáfu þeir sem sinn úrskurð,
að ef um köllun væri að ræða yrði hún að koma frá hlut-
aðeigandi söfnuðum. En, eins og sakir standa, eru söfnuð-
irnir í Saskatchewan iekki á því þroskaskeiði staddir að um
prestsköllun af hálfu safnaðanna sé að ræða.
Trúboðsnefndin hefir nú farið þess á leit við séra Sig-
urð Ó-lafsson, að ihann taki sér sex vikna starf á yfirstand-
andi sumri í Vatnabygðum. Skuli hann á því tímabili gjöra
sitt ítrasta til að endurreisa starfið og glæða safnaðarlífið
eftir beztu getu. Hefir hann gefið kost á sér til þessa starfs,
og mun innan skamms tíma fara til Vatnabygða í þeim
erindum. Board of American Missions hefir lofað allri
mögulegri samvinnu og fjárhagslegum styrk til þessa fyrir-
tækis. í ljósi þeirrar skýrslu sem séra Sigurður mun vænt-
anlega að loknu starfi vestra gefa nefndinni, verða þær
ráðstafanir gjörðar er nefndin telur heppilegastar.
Gimli prestakall.
Eins og skýrt var frá í fyrra, réðist Gimli prestakall
í það að byggja prestshús. Til að standa straum af hinum
mikla kostnaði sem þessi ákvörðun hafði í för með sér, var
fengið lán sem nemur $2,500 frá Church Extension deild-
inni af Board of American Missions. Samkvæmt skilmálum,
átti lán þetta að endurborgast með ársfjórðungslegum af-
borgunum og vera fullgreitt á tíu árum. Prestakallið hefir
gengið vel fram í þessu máli, og stendur í beztu skilum við
lánadrottna sína. Húsið sem smíðað var er hið myndar-leg-
asta. Sama lýsingarorð gildir um safnaðarfólkið á Girnli.
Það lét sér ekki nægja það eitt að leggja presti sínum til
nýtt hús, heldur heimsóttu sóknarbörnin prestshjónin einn
góðan veðurdag og skildu eftir vandaða nýtízku húsmuni