Sameiningin - 01.11.1945, Síða 32
208
ár þjónað söfnuðinum í Winnipegosis meðfram prestakalli
sínu i Þingvallanýlendu. Formaður Trúboðsnefndarinnar,
Séra Egill H. Fáfnis, gjörir ráð fyrir að fara í heimsókn til
Winnipegosis einhverntíma í næsta mánuði og flytja þar
guðsþjónustu einnig.
Trúboðsnefndinni var það mikið ánægjuefni að geta
samið við ungan og efnilegan prestlærðan mann frá Íslandi
um nokkurra mánaða starf á komandi mánuðum. Sonur
íslands biskupsins vinsæla og göfuga, cand. theol. Pétur
Sigurgeirsson, varði undanförnu ári til áframhaldandi náms
við Mt. Airy prestaskólann lúterska í Philadeilphia. Hefir
hann nú lokið námi þar og hlotið lærdómsgráðuna “Master
of Sacred theology” (S.T.M.). Hefir hann meðfram námi
sínu unnið ágætt trúboðsstarf meðal íslendinga í New
York borg. Nú hefir hann, sem sagt, tekið að sér starf á
vegum Trúboðsnefndarinnar og Kirkjufélagsins á komandi
mánuðum. Bjóðum við hann hjartanlega velkominn til okk-
ar, og árnum honum blessunar og heilla í starfinu meðal
okkar. Vér væntum góðs af viðkynningu og starfi þessa
efnilega unga prests.
Séra S. Octavius Thorlakson hefir á árinu verið í þjón-
ustu hjá Northern California Council of Churches sem
framkvæmdarstjóri starfs þess, sem sá stóri félagsskapur
kristinna kirkjufélaga í norðurhluta Californiu-ríkis hefir
unnið meða-1 hermanna. Er það mjög umfangsmikið starf
sem þessi bróðir okkar hefir þar með höndum, og hefir það
að sjálfsögðu afar mikla þýðingu fyrir framtíð kirkju og
kristindóms á þeim stöðvum. Hefir hann þar yfirumsjón á
öllu kristilegu starfi Prótestanta kirkjunnar í þarfir hinna
miklu herfylkinga Bandaríkjanna og Bandamanna sem
streyma út og inn í gegnum aðlhafnirnar í San Francisco
og grend. Samkvæmt skýrslu hefir þetta starf afar víðtæk
og djúptæk áhrif til blessunar hinum ungu mönnum, sem
kallaðir eru til valstefnu á þessum ægilegu tímamótum
stríðs og friðar. fklæddir alvæpni Guðs munu þeir sigurinn
hljóta, mannkyninu til blessunar. Vér ár-um séra Octavíusi
til blessunar í starfinu góða; og vér hlökkum til þess að
fá aftur að njóta hans ágætu starfskrafta innan Kirkju-
félagsins á komandi friðarárum.
Að lokum, látum við hér með fylgja skýrslu yfir fjár-
framlög Board of American Missions til heimatrúboðs
kirkjufélagsins á árinu sem endar 30. júní 1945: