Sameiningin - 01.11.1943, Blaðsíða 13
107
stýrði ársfundinum, en aðalmál hans var “Þjóðerm og
kirkja”. Að loknum ítarlegum umræðum um þau mál, var
mjög ákveðin tillaga samþykkt í þjóðræknisáttina, og er
fyrsti liður hennar á þessa leið:
“Prestar staddir á 25. aðalfundi Prestafélags íslands
bindast samtökum um að gera það, sem í þeirra valdi
stendur til þess, að þjóðin standi á verði um menningu sína
og tungu og annað það, er stuðlar að sönnu sjálfstæði hennar
á kristilegum grundvelli — og beinir þvi til annara með-
lima félagsins og félagsdeildanna að hefjast handa í þessu
efni.”
í tilefni af 25 ára afmæli félagsins kom út stórt og
prýðilegt hefti af tímariti félagsins, “Kirkjuritinu”, þar sem
saga félagsins er skilmerkilega og nákvæmlega rakin. Leyfi
eg mér að vísa lesendum til umsagnar minnar um afmælis-
rit þetta í “Lögbergi” fyrir stuttu síðan.
Sýna gerðir aðalfundar Prestafélagsins, eigi síður en
samþykktir og störf Prestastefnunnar, að prestastéttin ís-
lenzka er vel vakandi og ber mjög fyrir brjósti, heill og
heiður og framtíð þjóðar vorrar; en öllum heimaöldum
sonum hennar og dætrum mun það metnaðarmál, að hún
gangi sigrandi af hólmi í baráttunni við þær hættur, sem
hún á nú við að stríða.
Efiir séra H. Sigmar.
I
Til Seaiile, Washingion.
í byrjun júlí-mánaðar lá leið mín til Seattle í Wash-
ingtonríki. Á þeirri ferð var eg í fylgd með tengdamóður
minni, Mrs. Eriku Thorlaksson, er var að heimsækja börn
sín á vesturströndinni, og með syni mínum og tengdadóttur,
sem voru að hverfa til hins nýja starfssviðs síns hjá Hall-
grímssöfnuði í Seattle. Þessi ferð féll mér x skaut, af því
mér hafði verið auðsýnt það traust, á nýafstöðnu kirkju-
þingi okkar, að kjósa mig forseta kirkjufélagsins íslenzka og
lúterska. Vegna hins nýja embættis varð það hlutskifti
mitt að setja son okkar hjónanna, Harald Steingrím Sigmar